Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 16
16 Fréttir 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
F
rá árinu 2008 hefur eitt megin
stef verið ráðandi í stjórnmál
um og umfjöllun fjölmiðla:
Efnahagskreppan í Evrópu.
Hér á landi hefur Hrunið verið
þetta meginstef, er enn og verður að
öllum líkindum um ókomin ár. Það fer
í sögubækurnar sem skrifaðar verða
í framtíðinni og er nú þegar komið í
sumar. Góðærinu, sem nær algerlega
var fjármagnað með lánum og rangri
gengisskráningu, lauk haustið 2008,
þegar hið einkavædda bankakerfi Ís
lands hrundi, enda orðið tíu sinnum
stærra en þjóðarframleiðsla landsins.
Einkavæddir banka hrundu eins og
spilaborgir eftir aðeins nokkurra ára
líf á eigin fótum. En hvernig bregðast
íbúar í „kreppulöndum“ við krepp
unni? Í þessari grein verður reynt að
bregða upp svipmyndum af kreppu
viðbrögðum í nokkrum löndum
Evrópu.
Grikkland
Fá lönd hafa verið meira í fréttum
undanfarin misseri en Grikkland.
Þinghúsið í Aþenu og götur borgar
innar hafa verið svið fjöldamótmæla
vegna hrunsins í Grikklandi. Fjöldinn
hefur notað lýðræðislegan rétt sinn
til að láta óánægju sína í ljós. Margt
bendir til þess að Grikkir og grískir
stjórnmálamenn hafi verið lykil
gerendur í hruni landsins. Grikkir
lugu sig t.d. inn í evrusamstarfið með
því að falsa hagtölur. Ríkisumsvif
voru gríðarleg í grísku efnahagslífi og
margt afar sérkennilegt í gangi, t.d.
að lífeyrisréttindi erfðust innan fjöl
skyldna. Laun hjá starfsmönnum hins
opinbera hækkuðu um 50% frá 1999–
2007, langt umfram það sem gerðist
í öðrum Evrópulöndum og innan
evrusvæðisins. Þá skuldsettu þeir sig
gríðarlega vegna Ólympíuleikanna
árið 2004. Þetta eru aðeins nokkur
dæmi.
Líkar ekki við skatta
Grikkir hafa aldrei verið hrifnir af
því að borga skatta og svört atvinnu
starfsemi gríðarlega útbreidd. Í að
draganda kosninga árið 2008 hljóm
uðu viðvörunarbjöllur og varað var
við því að auka ríkisútgjöld og gefa
út feit kosningaloforð. En allt kom
yrir ekki og Grikkir stigu enn frekar á
bensíngjöfina. Efnahagskerfi lands
ins beið skipbrot árið 2009. Í kjölfarið
fylgdu neyðarlán og niðurskurður.
Viðbrögðin við grísku kreppunni birt
ast meðal annars í auknum áhrifum
nasistaflokksins Gylltrar dögunar,
sem fékk 18 þingsæti af 300 í kosn
ingum í fyrra. Flokkurinn vill reka alla
útlendinga frá Grikklandi og liðsmenn
hans hafa ráðist á útlendinga á götum
úti. En það er ekki allt kolsvart, sam
kvæmt nýjustu fréttum eykst fjöldi
ferðmanna á Grikklandi að nýju, en
ferðamannaiðnaðurinn er einn af
burðarásum efnahagslífsins.
Írland
Margir hafa bent á mikil líkindi með
Íslandi og Írlandi, enda er írskt blóð í
mörgum Íslendingnum. Báðar þessar
eyþjóðir voru gríðarlega vanþróaðar
langt fram á tuttugustu öldina. Bent
hefur verið á að stjórnmálamenning
landanna sé lík, með miklum kunn
ingja og vinatengslum sem gegn
sýrt hafi stjórnmálalífið. Fyrir aðild
að Evrópusambandinu var Írland eitt
vanþróaðasta land Evrópu, en smám
saman tók efnahagslífið stórstígum
framförum og var kallað „keltneski
tígurinn.“ Stórfyrirtæki á borð við Dell
og Microsoft komu sér fyrir í landinu.
Hagvöxtur var gríðarlegur frá 1995–
2000, eða um 10% á ári, en var um 6%
frá 2000–2008, þegar kreppan skall á
landinu. Viðbrögð Íra hafa verið með
allt öðrum hætti en t.d. Grikkja og lítið
sem ekkert hefur verið um mótmæli
og fjöldagöngur.
Gríðarleg spilling
Í Silfri Egils sagðist Stephen Kinsella,
prófessor við háskólann í Limerick,
ekki hafa neina skýringu á því. Í þessu
áhugaverða viðtali kom einnig fram
að gífurleg spilling hafi ýtt undir þá
gríðarlegu bólu sem myndaðist í hag
kerfi Íra, sem síðan sprakk árið 2008.
Í áratugi var Írlandi stjórnað af tveim
ur flokkum, Fianna Fail og Fine Gael.
Sá fyrrnefndi var stofnaður 1932 og
hefur verið í stjórn í 61 ár af síðastliðn
um 79 árum. Í síðustu kosningum var
flokknum refsað grimmilega og beið
hann afhroð, fékk 17,4% miðað við
41,6% í kosningum árið 2007. Mesta
fylgi flokksins var árið 1938, er hann
fékk rúmlega 51% atkvæða! Hagvöxtur
í landinu var um 0,9% á síðasta ári.
Landið bað um neyðarlán í nóvem
ber 2010 til að endurfjármagna írska
bankakerfið.
Spánn
Spánverjar glíma við mikil efnahags
vandræði, samdrátt, niðurskurð og
atvinnuleysi. Sérstaklega meðal ungs
fólks, þar sem það er um 50%. Þetta
hefur lengi verið vandamál á Spáni og
er meðal annars rakið til stífra reglna
á spænskum vinnumarkaði og van
kanta á menntakerfi landsins. Sam
kvæmt nýlegum fréttum stendur til að
breyta reglum á spænskum vinnu
markaði til að glíma við þetta mikla
vandamál.
Byggingabóla springur
Gríðarlega byggingabóla tók að
myndast um miðjan áttunda ára
tuginn og þegar hún sprakk árið 2008
fylgdi mikill samdráttur. Þessum
aðhaldsaðgerðum hafa fylgt póli
tísk mótmæli sem hafa mótmælin í
Grikklandi og Arabíska vorið að fyrir
mynd. Landið fékk 100 milljarða evra
neyðarlán í fyrra til að hreinsa upp í
spænska bankakerfinu – ekki til að
styrkja efnahag spænska ríkisins, öf
ugt við það sem gerðist í Grikklandi.
Á stjórnmálasviðinu hafa tveir
flokkar verið ráðandi á Spáni,
Sósíal íski verkamannaflokkurinn
og Þjóðarflokkurinn. Sá fyrrnefndi
sat lengi við völd og hafði innan
borðs virta leiðtoga á borð við Felipe
Gonzales. Flokkurinn tapaði hins
vegar í kosningum til hins mið
hægrisinnaða Þjóðarflokks, undir
forystu Mariano Rajoy og fékk rúm
lega 44% fylgi.
Ísland
Besti flokkurinn lofaði
ísbirni í Húsdýragarðinn
Besti flokkurinn, stofnaður af grínist
anum Jóni Gnarr og Heiðu Kristínu
Helgadóttur (Helga í Ríó Tríó) kom
eins og stormsveipur inn í stjórnmálin
hjá fjúkandi reiðri þjóð fyrir borgar
stjórnarkosningarnar vorið 2009.
Undir slagorðinu „Áfram allskonar“
og „Allskonar fyrir aumingja“ er óhætt
að segja að ferskir vindar hafi fylgt
Besta flokknum. Kannski má líta á
flokkinn sem „hina pólitísku grein“
Smekkleysu, framsæknasta hljóm
plötufyrirtækis landsins, þar sem Ási
í Gramminu var fremstur í flokki. Ein
ar Örn (Benediktsson) Sykurmoli var
þarna líka og Margrét Kristín Blöndal
úr Risaeðlunni, ásamt Óttari Proppé,
söngvara HAM og Birni Blöndal
bassaleikara. Grínistar Baggalúts, m.a.
Karl Sigurðsson, eru líka innanborðs.
En hver var stefna flokksins? Að fá Ís
björn í húsdýragarðinn? Jú, það var
vissulega eitt af því sem Jón Gnarr og
félagar lofuðu fyrir kosningarnar, en
þau sögðu líka að þau myndu svíkja
kosningaloforðin. Á heimasíðu flokks
ins má lesa orð á borð við heiðar
leiki, velferð, lýðræði, réttaröryggi,
umhverfisvernd, gegnsæi og virðing.
Flokkurinn segist taka það „besta“ úr
stefnum allra hinna og skammast sín
ekkert fyrir það.
Brenndi skólabækurnar
„Ég kveikti í einkunnablaðinu mínu.
… Ég kveikti líka í skólabókunum mín
um … reif þær í tætlur … mér fannst
gott að sjá þær brenna. …
Skólataskan fór líka á
eldinn.“ Þetta skrifar
núverandi borgar
stjóri, Jón Gnarr, í
byrjun endurminn
ingabókarinnar Sjó
ræninginn. Þar lýs
ir hann einnig aðdáun
sinni á stjórnleysisstefnunni, anark
isma. Jón Gnarr leiddi Besta flokk
inn til stórsigurs í borgarstjórnar
kosningunum vorið 2009, fékk 34,7%.
Sjálfstæðis flokkurinn fékk rúmlega
prósenti minna. Besti flokkurinn hafði
því í raun rassskellt aðalvaldaflokk
borgarinnar. Á ensku er þetta kallað
„jarðskjálftasigur.“
Björt framtíð
Í landsmálapólitíkinni hefur Besti
flokkurinn getið af sér afkvæmi, sem
er Björt framtíð. Þar er Guðmundur
Steingrímsson fremstur í flokki og
helsti talsmaður. Flokkurinn var stofn
aður í byrjun febrúar 2012 og er eitt
þeirra fjöldamörgu framboða sem
keppir um atkvæði kjósenda í kosn
ingum á laugardag. Guðmundur er
sonur Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra og formanns Fram
Pólitísk afsprengi
kreppunnar í Evrópu
n Hvernig bregðast lönd við kreppu? n Eru viðbrögðin öðruvísi á Íslandi en Grikklandi?
Í bál og
brand
2002
Einkavæðing íslenska
banka kerfisins hefst.
2004
Einkabankarnir fara inn á húsnæðis-
lánamarkaðinn.
2004–2007
Góðæri á Íslandi, en
að stórum hluta
fjármagnað með
erlendum lánum.
September 2008
Lehman-bankinn fer
í þrot.
Október 2008
Íslenska bankakerfið hrynur, neyðar-
lög sett.
Janúar 2009
Ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálf-
stæðisflokks fer frá í kjöl-
far mikilla mótmæla,
búsáhaldabyltingar-
innar.
Apríl 2009
Samfylking og Vinstri
græn mynda fyrstu
hreinræktuðu vinstri stjórn
Íslands.
Maí 2010
Grikkland fær neyðarlán upp á 110
milljarða evra.
Maí 2010
Jón Gnarr tekur við embætti borgar-
stjóra í Reykjavík.
Nóvember 2010
Írland biður um
neyðarlán frá ESB
og AGS.
Febrúar 2012
Grikkland fær annað
neyðarlán.
sóknarflokksins á sínum tíma, sem
sjálfur var sonur Hermanns Jónasson
ar, sem sjálfur var forsætisráðherra.
Pólitík í hverjum blóðdropa
Hér er því pólitík í hverjum blóð
dropa. Guðmundur Steingrímsson
sagði sig úr Framsóknarflokknum
í ágúst 2011 og hóf þá undirbúning
þess sem nú er Björt framtíð. Heiða
Kristín er einnig áberandi og hef
ur komið fram fyrir hönd flokksins í
fjölmiðlum. Besti flokkurinn segist
vera frjálslyndur, umhverfisvænn og
grænn flokkur, sem vill minnka sóun,
minna vesen og aukna fjölbreytni.
Flokkurinn vill markmiðasetningu í
stjórnmál í stað loforða og hefur skor
að ágætlega í skoðanakönnunum.
Spurningin er hvort íslenskir kjós
endur treysti sér til þess að kjósa flokk
sem lofar engu? n
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
skrifar ritstjorn@dv.is
Gríska kreppan
Efnahagsástandið í Grikklandi hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarin misseri og er
það land sem stendur einna verst í Evrópu.