Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Qupperneq 23
Kosningar 2013 23Helgarblað 26.–28. apríl 2013
Þrettán þúsund
á kjörskrá erlendis
n Um 70 prósent búsett á Norðurlöndunum n Dagur Sigurðsson flaug 800 kílómetra til að kjósa
Haukur Logi Karlsson, Ítalíu:
Fylgist of vel með
H
aukur Logi Karlsson er 34 ára
doktorsnemi í lögfræði við
European University Institu
te í Flórens. Hann hefur verið
búsettur erlendis frá árinu 2007. Fyrst
var hann í tvö ár í meistaranámi í lög
fræði í Stokkhólmi í Svíþjóð. Þaðan lá
leiðin til Brussel í Belgíu þar sem hann
starfaði í þrjú ár áður en hann ákvað
að fara í doktorsnám til Ítalíu. Þar býr
hann nú ásamt Áslaugu Dögg Karls
dóttur, unnustu sinni, sem er lyfja
fræðingur.
Í samtali við DV segir Haukur
að hann hafi ekki getað kosið í al
þingiskosningunum nú þar sem Ís
lendingar eigi engan ræðismann í
Flórens. „Ég ætlaði að reyna að kjósa
þegar ég fór og heimsótti félaga minn
til Barcelona fyrir nokkrum vikum.
Við náðum hins vegar ekki að komast
til ræðismannsins í tæka tíð þannig
að sigur einhvers framboðsins verður
ekki jafn stór og ella. Ég kaus hins vegar
oft í Brussel, meðal annars um Ice
save og forseta, og líka í Stokkhólmi,“
segir hann. Þess skal getið að Haukur
er sjálfur ekki ókunnugur stjórnmál
um en hann var formaður Ungra fram
sóknarmanna fyrir um áratug.
Líklega fylgst of vel með
kosningabaráttunni
Þegar hann er spurður að því hvort
hann hafi fylgst með kosningabar
áttunni heima á Íslandi játar hann
því. Segist reyndar hafa fylgst það vel
með að Áslaugu hafi oft þótt nóg um.
„Það er tvennt sem stendur upp úr að
mínu mati. Fyrst er það ferskleikinn í
Framsóknarflokkum sem býður upp
á róttækar félagshyggjuhugmyndir
og formann sem virðist hafa burði
til að fylgja þeim eftir. Hitt er hversu
óhemju slappir hinir í fjórmenninga
klíku hefðbundnu flokkanna hafa
verið. Samfylkingin og Sjálfstæðis
flokkurinn eru að vísu mjög óheppn
ir með formenn fyrir þessar kosningar
þannig að það var kannski ekki við
miklu að búast frá þeim. Ég hef hins
vegar trú á Katrínu Jakobsdóttur. Hún
þarf kannski bara smá tíma til að berja
í brestina og gera Vinstri græn stjórn
tæk á ný. Hljómgrunn Framsóknar
má kannski helst skýra með því að
þeir einir hafa eitthvað raunverulega
áhugavert fram að færa á meðan
hinir flokkarnir eru fastir í einhverju
„ bönker“ hugarfari þar sem allt er
annaðhvort ömurlegt eða æðislegt
eftir því úr hvaða „ bönker“ það kem
ur,“ segir Haukur. n
Doktorsnemi á Ítalíu Haukur Logi Karlsson er 34 ára doktorsnemi í Flórens á Ítalíu en
myndin af honum er einmitt þaðan.
Þ
óra Helgadóttir er 33 ára hag
fræðingur og býr í Bretlandi.
Hún flutti þangað árið 2007 og
býr nú í norðurhluta London
í Hampsteadhverfinu ásamt Tom
Frost, unnusta sínum. Þar starfar
hún sem hagfræðingur hjá The
Office for Budget Responsibility, sem
er sjálfstæð stofnun á vegum ríkisins
sem sér um, meðal annars, hag og
fjármálaspá breska ríkisins. „Í raun
er það okkar starf að sjá til þess að
ríkið sé að standa við sínar fjármála
reglur hvað varðar hallarekstur og
skuldasöfnun. Ég er í fimm manna
teymi sem sér um hagspána sem
ásamt stefnum ákvarðar síðan tekjur
og gjöld ríkisins. Þess á milli starfa ég
sem jógakennari, en ég kláraði jóga
kennaranám hér úti síðasta sumar,“
segir Þóra í samtali við DV. Hún seg
ist hafa kosið í sendiráðinu í London
fyrir stuttu. Gerði hún sér sérstaka
verð þangað með lest þrátt fyrir að
vera kominn sjö mánuði á leið en
hún og Tom eiga von á sínu fyrsta
barni nú í júní.
Vantar harðari gagnrýni frá
fjölmiðlum
Þegar kemur að kosningabaráttunni
segist Þóra aðeins hafa fylgst með
henni að undanförnu. „Mér finnst
hún því miður bera keim af popúl
isma með fókus á fortíðina. Áður
en ég kaus renndi ég yfir stefnuskrá
flestra flokka, aðallega stefnu í efna
hagsmálum, sem er mitt sérsvið. Ég
verð að viðurkenna að mér fannst oft
vanta nánari upplýsingar um hvernig
flokkarnir ætluðu á ná sínum mark
miðum fram og hver væru áhrifin á
stöðu ríkisins og á hagkerfið í heild.
Í raun kom mér á óvart hversu stutt
ar margar stefnuskrár voru. Hérna
úti er maður vanur því að hart sé
sótt að mönnum af fjölmiðlum þegar
stefnur eru ekki skýrar og útpældar.
Það finnst mér vanta á Íslandi,“ segir
Þóra.n
Ber keim af lýðskrumi
Þóra Helgadóttir, Bretlandi:
Hagfræðingur í London Þóra Helgadóttir er 33 ára hagfræðingur og hefur verið búsett
í London frá árinu 2007. Hún fór með lest í sendiráðið í London að kjósa þrátt fyrir að vera
komin sjö mánuði á leið.
M
argrét Elín Ólafsdóttir er
28 ára og býr í borginni
Kielce í Póllandi. Hún er
heimavinnandi en Þórir
Ólafsson, eiginmaður hennar, er
landsliðsmaður í handbolta og spilar
sem atvinnumaður með liði Kielce.
Þau eiga tvo stráka, þá Jason Dag
sem er sjö ára og Óskar Braga sem
verður tveggja ára nú í sumar. Fjöl
skyldan hefur verið búsett erlendis
frá árinu 2005, lengst af í Þýskalandi
en árið 2011 sölsuðu þau um og
fluttu til Póllands.
Aðspurð hvort hún hafi nýtt sér
kosningarétt sinn segist Margrét
því miður ekki hafa gert það. Frá
því að þau fluttu út árið 2005 hafa
þau alltaf búið mjög langt frá næsta
ræðismanni og þess vegna hafa
þau ekki séð sér fært að nýta sér
kosningarétt sinn mikið á undan
förnum árum. Þau hafi þó náð að
kjósa í forsetakosningunum síð
asta sumar en þá voru þau stödd á
Íslandi.
„Ég hef ekki mikið fylgst með
kosningabaráttunni þetta árið en
Þórir hefur horft og lesið mikið á
netinu. Ég hef ekki myndað mér
neinar skoðanir, og ætli það sé ekki
út af því að við náum ekki að fara
á kjörstað. Þegar við flytjum aftur
heim til Íslands mun ég fylgjast með,
mynda mér skoðun og reyna að kjósa
rétt,“ segir Margrét. n
A
rndís Baldursdóttir býr í
Tromsø en hún er 48 ára og
vinnur við bókhald hjá bíla
umboði. Hún flutti til Nor
egs fyrir tveim árum en þar býr hún
ásamt norskum manni sínum og
tveimur börnum.
Í samtali við DV segist hún hálf
skammast sín fyrir að játa að í fyrsta
skipti á ævinni hafi hún ekki nýtt
sér kosningarétt sinn vegna alþing
iskosninganna sem nú fara fram á
Íslandi. Ástæður þess séu meðal
annars þær að hún hafi aldrei ver
ið eins óákveðin hvað hún ætti að
kjósa. „Þá finnst mér líka að ég hafi
ekki kynnt mér nægilega vel hvernig
frambjóðendur hafa staðið sig í um
ræðum í sjónvarpi og útvarpi. Ég hef
bara fylgst með umræðunni í gegn
um blöðin á netinu. Verðtryggingin
og umræðan um lánavanda fjöl
skyldna hefur greinilega náð til
stjórnmálamanna og loforðum rign
ir yfir okkur kjósendur hvernig flokk
arnir ætla að leysa það,“ segir hún.
Líkt og margir Íslendingar segist
Arndís sjálf standa í sömu sporum
og svo margir aðrir, að geta ekki selt
húsnæði sitt á Íslandi samfara því
að áhvílandi lán hafi hækkað langt
upp fyrir hugsanlegt söluverð. Henni
finnist þó að úr fjarlægð sé kosninga
umræðan keimlík því sem hún var
þegar síðast var kosið til Alþingis um
vorið 2009. n
Arndís Baldursdóttir, Noregi:
Kaus ekki – í fyrsta
skipti á ævinni
Margrét Elín Ólafsdóttir, Póllandi:
Alltaf mjög langt
í ræðismann
Búa í Póllandi
Margrét Elín Ólafs-
dóttir býr í borginni
Kielce í Póllandi
ásamt Þóri Ólafssyni,
eiginmanni sínum, en
þau eiga tvo stráka.
Óákveðin Hún
segist hálfskammast
sín fyrir að hafa ekki
kosið. Ein ástæða
þess hafi verið að
hún hafi aldrei verið
jafn óákveðin hvað
hún ætti að kjósa.
Íslendingar
erlendis
Íslendingar á kjörskrá erlendis
12.757
Þar af í Evrópu
11.143
Skipting milli landa
1. Noregur 3.560
2. Danmörk 3.378
3. Svíþjóð 2.007
4. Bretland 596
5. Þýskaland 366
6. Sviss 170
7. Spánn 145
8. Lúxemborg 136
9. Pólland 105
10. Holland 101
Flestir á kjörskrá í Noregi Hvergi er
fleiri kosningabæra Íslendinga að finna utan
Íslands en í Noregi.