Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 24
24 Kosningar 26.–28. apríl 2013 Helgarblað n Ekki láta plata þig n Flokkarnir keppast við að yfirbjóða hver annan Hversu raunhæf eru loforðin? S tjórnmálaflokkarnir kepp- ast við að yfirbjóða hvorn annan með loforðum sem gagnast eiga heimilum og fyrirtækjum í landinu. Skuldaniðurfærslur og afnám verð- tryggingar eru einna fyrirferða- mestu loforðin og hefur allt að 45 prósenta niðurfærslu verið lofað. Í þeim tilgangi að reyna að af- rugla umræðuna og koma í veg fyr- ir að kjósendur láti plata sig fékk DV hóp álitsgjafa til að vega og meta kosningaloforðin með tilliti til þess hversu raunhæf þau eru. Álitsgjafarnir koma úr mismun- andi áttum en eiga það allir sam- eiginlegt að hafa fylgst með stjórn- málalífinu undanfarin ár. Gefnar voru einkunnir á skal- anum einn til fimm þar sem einn stendur fyrir mjög óraunhæft lof- orð og fimm mjög raunhæft loforð. Tekið var mið af því hvað flokkarn- ir leggja mesta áherslu og hvað þeir sextíu þúsund þátttakendur í Al- þingisprófi DV töldu mikilvægustu málaflokkana. Einkunnin sem birt- ist hjá hverju loforði er meðaltals- einkunn frá álitsgjöfunum. n Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Sjálfstæðismenn ætla að lækka tekju- skatt og afnema þrepaskiptingu hans, fjár- magnstekjuskatt, tekjuskatt fyrirtækja, tryggingagjald, virðisaukaskatt sem jafn- framt verði aðeins í einu þrepi, auðlinda- gjald, tollar og vörugjöld, eldsneytisgjöld, erfðafjárskatt og áfengisgjald. Þá ætlar flokkurinn að afnema eignarskatta, þar með talinn auðlegðarskatt, stimpilgjöld, gistináttagjald, kolefnisgjald á eldsneyti, raforkuskatt og bifreiðagjöld. Einnig á að hækka persónuafslátt. Umsögn: „Það er að vísu tæknilega hægt að gera þetta, en afleiðingarnar yrðu hrikalegar.“ Framsóknarmenn ætla að afnema verð- trygginguna. Fyrst ætla þeir að setja þak á hækkun verðtryggingar neytendalána og skipa síðan starfshóp til að undirbúa þær breytingar sem þurfa að eiga sér stað á stjórn efnahagsmála samhliða afnámi verðtryggingar. Engin áætlun eða leiðir hafa verið kynntar um hvernig afnema eigi verðtrygginguna en flokksmenn hafa horft til starfshópsins um lausnir á því. Umsögn: „Fátt fast í hendi í þessu - og til þessa ekki vafist fyrir stjórnvöldum að skipa starfshóp - spurning hvað kemur út úr þeim.“ Skuldaniðurfell- ingar og skuld- breyting Hægri grænir hafa talað fyrir magnbundinni íhlutun til að afnema verðtrygginguna og fella niður allt að 45 prósent af verðtryggðum skuldum heimila. Leiðin felst í því að Seðla- bankinn láni fé á mjög lágum vöxtum í sérstakan afskriftasjóð sem kaupir verðtryggðar skuldir og endurlánar þeim sem skulda á föstum, óverðtryggðum vöxtum. Sjóðurinn endurgreiðir svo Seðlabankanum lánið með vaxtamis- muninum. Umsögn: Gæti verið erfitt að útfæra þetta þótt markmiðið sé ágætt. Nýr gjaldmiðill og stöðugleiki Samfylkingin ætlar að klára aðildarviðræður við Evrópusambandið, gerast aðilar að því og taka upp evruna. Þannig vill flokkurinn ná stöðugleika. Samningaviðræður hafa staðið frá því á miðju kjörtímabili en hafa verið settar á ís núna. Enn á eftir að semja um erfiðustu og umdeildustu málin; sjávarútveg og landbúnað. Umsögn: „ESB og evran er engin töfralausn, en ef Íslendingar taka nógu veltil í sínum ranni til að uppfylla skilyrði evrusamstarfsins skapar það ákveðinn stöðugleika“. Björt framtíð vill gera það að ófrávíkj- anlegu markmiði að setja á laggirnar húsnæðislánamarkað með lágum raun- vöxtum til langs tíma. Engar útfærðar leiðir eða ákveðin skref eru lögð fram með þessu loforði eða markmiði en flokkurinn segir að ræða þurfi grundvöll efnahags- lífsins, minnka verðbólgu varanlega, auka útflutningstekjur, sýna aðhald í ríkisfjármálum og tryggja stöðugleika gjaldmiðilsins Umsögn: „Erfitt að gefa þessu einkunn því þetta er markmið en ekki loforð og gott og göfugt sem slíkt.“ Dögun talar fyrir hvalrekaskatti, eða upp- gripaskatti, á fyrirtæki sem hagnast mikið á gengissveiflum eða á því sem flokkurinn segir ekki vera frá eðlilegri viðskiptastarf- semi. Flokkurinn hefur í samhenginu bent á eignir bankanna sem færðar voru frá gömlu bönkunum yfir til þeirra nýju með miklum afslætti. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hvernig flokkurinn ætlar að sækja þessar eignir aftur í tímann en hug- myndir eru um að setja skattinn á í formi eignarskatts eða setja háan en tímabund- inn skatt á útstreymi gjaldeyris. Umsögn: Kannski ekki óvitlaus hugmynd en erfitt að útfæra og hugsanlega mjög kostn- aðarsamt. Einnig spurning hvort það samrýmist lögum að breyta leikreglum eftirá. n Arna Schram, fyrrverandi blaðamaður og upplýsingafulltrúi. n Ásta Möller, forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands. n Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórn- málafræði við Háskólann á Bifröst. n Grétar Þór Eyþórsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Akureyri. n Gylfi Magnússon, dósent við Háskóla Íslands og fyrrverandi ráðherra. n Valgerður Anna Jóhannesdóttir, verk- efnisstjóri og aðjúnkt við meistaranám í blaða- og fréttamennsku við félagsvís- indadeild við Háskóla Íslands. Verðtryggingin Skattalækkanir Lágir raunvextir á húsnæðislánum Einkunn: 3,1 Einkunn: 2,7 Einkunn: 3,1 Einkunn: 3,0 Einkunn: 1,8 Einkunn: 2,2 Framsóknarmenn vilja nota svigrúm sem hugsanlega myndast við uppgjör gömlu bankanna til að færa niður verðtryggð húsnæðislán. Talað hefur verið um að allt að 800 milljarðar gætu fengist til að lækka skuldir með samningum við kröfuhafa gömlu bankanna þegar þeir færa eignir sínar út úr landinu að loknu uppgjöri. Skuldaniðurfellingar Einkunn: 2,1 Þau voru álitsgjafar:Hvalrekaskattur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.