Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 30
30 Erlent 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Ljósmyndarar Reuters
festa á filmu stórvið-
burði á hverjum einasta
degi allan ársins hring. Á
meðfylgjandi myndum
má sjá brot af því helsta
sem gerðist í vikunni
sem senn er liðin. Þar
á meðal frá fögnuði
samkynhneigðra í Frakk-
landi, stórleik í fótbolt-
anum í Þýskalandi og
aðgerðasinnum í Belgíu.
Borin til grafar Syrgjendur sjást
hér við útför hinnar 29 ára Krystle Campbell
sem lét lífið í hryðjuverka árásunum í Boston
í síðustu viku. Þrír létu lífið og á þriðja
hundrað særðust í sprengingunum sem urðu
við endamark Boston-maraþonsins þann 15.
apríl. Lögreglan hafði hendur í hári annars
tilræðismannanna, Dzokhar Tsarnaev, á
föstudaginn í síðustu viku en eldri bróðir
hans, sem einnig var viðriðinn hryðjuverkin,
lést eftir skotbardaga við lögreglu. Tsarnaev
er enn á sjúkrahúsi í Boston en hann gæti
átt yfir höfði sér dauðarefsingu vegna
tilræðisins.
Byggingin hrundi Ringulreið ríkti í bænum Savar, sem er í 30 kílómetra fjarlægð frá Dhaka, höfuðborg Bangladess, á miðvikudag þegar átta hæða bygging hrundi til grunna. Að minnsta kosti 170 manns biðu bana og yfir 500
slösuðust þegar byggingin hrundi, að því er virðist, fyrirvaralaust. Í húsinu var meðal annars að finna fataverksmiðju og verslunarmiðstöð og voru flest fórnarlambanna verkafólk.
Sigurgleði í München Einn stærsti knattspyrnuleikur
ársins til þessa fór fram í München í Þýskalandi á þriðjudagskvöld þegar
heimamenn í Bayern tóku á móti stórliði Barcelona. Um var að ræða
fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það
er skemmst frá því að segja að Bayern München fór með auðveldan
4–0 sigur af hólmi og hér sést Thomas Müller skora eitt marka Bayern.
Flest bendir til þess að liðið komist í úrslitaleikinn þar sem annað hvort
Borussia Dortmund eða Real Madrid bíður.
Ósvikin gleði Samkynhneigðir Frakkar höfðu tilefni til að gleðj-
ast á þriðjudag þegar franska þingið samþykkti lög þess efnis að samkyn-
hneigðum verði heimilt að giftast og ættleiða börn. Þessir elskhugar
smelltu kossi á hvor annan í tilefni dagsins. Þrátt fyrir gleði margra sáu
einnig fjölmargir ástæðu til að mótmæla lögunum, bæði um síðustu helgi
og í kjölfar þess að lögin voru samþykkt á þriðjudag. Mótmælin fóru þó að
mestu leyti vel fram.
Minn líkami, mínar reglur Aðgerðasinnar úr samtökunum
Femen létu til sín taka í háskólanum í Brussel á miðvikudag þegar erkibiskup
landsins, Andre Joseph Leonard, ætlaði að halda þar fyrirlestur. Konurnar skvettu
meðal annars vatni á biskupinn sem virtist ekki kippa sér mikið upp við að fá smá
vatnsgusu yfir sig. Fyrirlestur Leonards átti að fjalla um samkynhneigð en hann
hefur opinberlega lýst yfir andúð sinni á samkynhneigð. Sögðust konurnar meðal
annars vera að berjast gegn andúð á samkynhneigð og tilraunum kirkjunnar til að
hefta kvenfrelsi.