Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 46
46 Viðtal 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
„Hafa af mér
lífshlaup mitt“
A
ðalbjörn Jóakimsson út-
gerðarmaður býr í húsi
við Laugarásveg sem
hann veit ekki hversu
lengi hann mun halda.
Landsbankinn á veð í húsinu
vegna afleiðuviðskipta við Lands-
banka Íslands sem Aðalbjörn
stundaði, og tapaði á, fyrir hrunið
2008. Í mars árið 2012 tapaði
Aðalbjörn máli gegn Landsbank-
anum fyrir Hæstarétti Íslands og
var gert að greiða bankanum nærri
hálfan milljarð króna sem hann á
ekki til. „Ég veit ekkert hvort þeir
taka nokkuð húsið af mér en þeir
eiga veð í því. Það fer eftir því hvað
sýslumaðurinn segir við því.“ Fé-
lagið sem var skráð fyrir viðskipt-
um Aðalbjarnar heitir Dynjandi
ehf. og hefur það verið tekið til
gjaldþrotaskipta.
Aðalbjörn segir að Landsbanki
Íslands hafi farið langt út fyrir þá
heimild sem bankinn hafði til fjár-
festinga fyrir hans hönd og fyrir
vikið sættir hann sig ekki við lykt-
ir málsins. Hann telur þvert á móti
að bankinn eigi að vera skaðabóta-
skyldur gagnvart honum. Hann er
reiður vegna fjárfestingarráðgjaf-
ar Landsbankans í afleiðuviðskipt-
unum og ætlar að fara eins langt
með mál sitt og hann getur. „Þeir
fóru langt út fyrir heimildir sínar.
Bankinn er að hafa af mér aleigu
mína; þeir eru að hafa af mér lífs-
hlaup mitt,“ segir Aðalbjörn. Hann
segist hafa tapað um hálfum millj-
arði króna á viðskiptum sínum við
Landsbankann auk þeirra fjár-
muna sem Hæstiréttur hefur gert
honum að greiða til baka. Saman-
lagt er því um að ræða um milljarð
króna.
Reyndi að stefna þremur
Aðalbjörn reyndi í fyrra að stefna
þremur fyrrverandi starfsmönnum
Landsbankans vegna þeirrar fjár-
festingarráðgjafar sem hann fékk
hjá bankanum.
Starfsmennirnir sem um ræð-
ir voru Yngvi Örn Kristinsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Verðbréfasviðs bankans, Arn-
ar Jónsson, forstöðumaður gjald-
eyrismiðlunar Landsbankans, og
Sigurður M. Sólonsson, ráðgjafi í
gjaldeyrismiðlun Landsbanka Ís-
lands. Kröfur Aðalbjarnar í málinu
voru að starfsmennirnir þrír yrðu
dæmdir til að greiða Dynjanda
ehf. rúmlega 350 milljónir króna
í skaðabætur. Í stefnunni í mál-
inu var rakið hvernig stjórnenda-
tryggingar Landsbankans geti bætt
Aðalbirni það tjón sem hann varð
fyrir vegna ráðgjafar bankans.
Tveir af starfsmönnunum
fóru hins vegar fram á að Aðal-
björn legði fram málskostnað-
artryggingu í málinu. Þetta gat
Aðalbjörn ekki gert og því var
skaðabótamálið ekki höfðað.
Hóf viðskipti eftir kvótasölu
Aðalbjörn hóf viðskipti við Lands-
banka Íslands eftir að hafa auðg-
ast á sölu aflaheimilda í lok síð-
ustu aldar og á fyrri hluta síðasta
áratugar. Árið 2001 sagði með-
al annars í Fréttablaðinu að
Aðalbjörn hefði grætt 500 millj-
ónir króna árið 1997 þegar hann
seldi hlut sinn í bolvíska útgerðar-
félaginu Ósvör til grindvíska út-
gerðarfélagsins Þorbjarnar. Kvót-
inn hvarf úr bænum eftir söluna til
Þorbjarnar.
Tveimur árum áður hafði Bol-
ungarvíkurbær selt Aðalbirni
kvótann. Kristinn Gunnarsson,
þáverandi þingmaður Fram-
sóknarflokksins í Norðvesturkjör-
dæmi, gagnrýndi viðskipti Bol-
ungarvíkurbæjar með kvótann
í Fréttablaðinu í árslok 2001 og
sagði að sala bæjarins á útgerðinni
hefði fært kaupendunum, Aðal-
birni og Þorbirni hf., um 1.500
milljónir króna í hagnað. Kristinn
hafði áður verið stjórnarformaður
útgerðarinnar þegar hún var í eigu
bæjarins.
Viðskiptin með Ósvör vöktu
því nokkra athygli á sínum tíma
og þóttu nokkuð umdeild þar sem
kvótinn var fluttur frá Bolungarvík
vegna þessa. Aðalbjörn segir hins
vegar að þessi staðreynd sé ekki
hans vandamál þar sem hann
hafi ekki flutt kvótann. „Það gerð-
ist síðar,“ segir hann. Hann seldi
hlut sinn í útgerðinni til Þorbjarn-
ar í skiptum fyrir hlut í hinu sam-
einaða félagi. Svo seldi Aðalbjörn
hlut sinn í Þorbirni og Þorbjörn fór
með kvótann í burtu.
Þekkti lítt til afleiðuviðskipta
Aðalbjörn hélt áfram útgerð og
viðskiptum með kvóta á árunum
þar á eftir og var kominn í veru-
legar álnir árið 2004. „Þeir sóttust
eftir viðskiptum við mig. Það voru
einhverjir starfsmenn Landsbank-
ans sem sáu að ég ætti þarna pen-
inga á bók. Félagið var líka í fast-
eignaviðskiptum en ég treysti á
bankann í þessum bréfaviðskipt-
um. Ég var ekkert inni í þessu,“ seg-
ir Aðal björn um upphaf viðskipta-
samband síns við Landsbankann.
Í áðurnefndri stefnu Aðalbjarn-
ar gegn Landsbankanum seg-
ir að árið 2004 hafi hann selt skip
og kvóta og að bankinn hafi haft
samband við hann og boðið hon-
um viðskipti. Í ársreikningi Dynj-
anda kemur fram að árið 2004 hafi
Dynjandi selt kvóta fyrir 585 millj-
ónir króna það ár. „Eftir þá ráðstöf-
un átti félagið allmikið eigið fé og
breyttist starfsemi þess í kjölfarið í
ýmiss konar fjárfestingarstarfsemi.
[…] Landsbankinn bauð Aðalbirni
á sérstakan kynningarfund í byrj-
un nóvember 2004, þar sem kynnt
voru viðskipti með afleiður og sú
þjónusta, sem fólst í áhættu- og
skuldastýringu. Á fundinum kom
meðal annars fram að bankinn
gæti boðið upp á áhættulítil hluta-
bréfa- og gjaldeyrisviðskipti, þar
sem starfsfólk bankans hefði mikla
sérþekkingu á slíkum viðskiptum,“
segir í stefnunni.
Aðalbjörn segir að þrátt fyr-
ir þessa sterku fjárhagsstöðu hans
hafi hann ekki litið á sig sem auð-
ugan mann. Hann man ekki hvað
hann byrjaði með, fjögur hundruð
milljónir eða fimm hundruð millj-
ónir króna. „Ég var aldrei svo rík-
ur maður. Þessir peningar sem ég
var með voru peningar félagsins
og mínir eigin.“
Segir bankann hafa farið út
fyrir heimildir
Aðalbjörn gerði einnig gjaldmiðla-
skiptasamninga við bankann í
japönskum jenum sem gengu út
á að hann keypti jen á tilteknum
tíma og seldi bankanum svo jenin
aftur á tilteknum degi fyrir krónur.
Hagnaður eða tap af viðskiptunum
réðst þá af stöðu jensins gagnvart
íslensku krónunni á hverjum tíma.
Slík viðskipti eru mjög áhættusöm
og var Aðalbjörn því að taka mikla
fjárhagslega áhættu þegar hann
gerði samninginn við bankann.
„Þessi viðskipti voru flóknari þá en
þau eru núna. Það er orðin miklu
meiri vitneskja í samfélaginu um
þessar afleiður en var þá. Maður
pældi ekkert í þessu þá; vissi varla
að þetta væri til. […]
Ég gerði fjárfestingarsamning
við Landsbankann þar sem með-
al annars kom fram hversu mikla
áhættu mætti taka fyrir mína hönd.
Þeir höfðu heimild til að taka
áhættu upp á 100 milljónir króna.
Svo fara þeir út fyrir þær heimildir;
þeir fara langt út fyrir þær heimild-
ir,“ segir Aðalbjörn. „Ég hef aldrei
kunnað á þetta sjálfur. Ég er bara
fæddur inn í þannig samfélag, þar
sem menn gátu treyst bönkum og
bankastarfsmönnum.“
Krónan hrundi
Í stefnunni gegn Landsbanka-
mönnunum segir hvernig Aðal-
björn vildi ekki ekki taka meira
en 100 milljóna króna áhættu í af-
leiðuviðskiptunum og var kveðið á
um slíkt í samningi hans við bank-
ann. Þetta var þó gert á fyrri hluta
árs 2006. „Þegar þeir gerðu þenn-
an afleiðusamning fyrir Dynjanda
var ég staddur í Asíu. Þeir höfðu
ekki samband. Það var upphafið að
gjaldeyrissamningnum sem félag-
ið er dæmt til að greiða.“ Aðalbjörn
skrifaði því ekki upp á þau viðskipti
sem ollu því að félag hans fór í þrot.
Í lok árs 2005, þegar gengi krón-
unnar var mjög sterkt, var ríflega
40 milljóna króna hagnaður af af-
leiðusamningi Dynjanda við bank-
ann. Gengi krónunnar fell á fyrstu
mánuðum ársins 2006 eftir að hafa
náð sögulegu hámarki árið 2005.
Erlendir vogunarsjóðir gerðu árás
á krónuna í febrúar 2006 sem átti
þátt í að leiða til leiðréttingar á
gengi hennar.
Framlengt án heimildar
Í stefnunni er rakið hvernig gjald-
miðlaskiptasamningur Aðalbjarn-
ar var samt sem áður endurnýj-
aður án hans samþykkis þann 24.
mars 2006 þrátt fyrir þessa stöðu
íslensku krónunnar og þrátt fyrir
að tap hans af samningnum næmi
þá ríflega 30 milljónum króna.
Viðskiptasamband Aðalbjarnar og
bankans byggði hins vegar á því
að hann samþykkti „skriflega“ þau
viðskipti sem bankinn stundaði
fyrir hans hönd, samkvæmt því.
Um þetta segir í stefnunni í
skaðabótamáli Aðalbjarnar gegn
Landsbankanum: „Þrátt fyrir tapið
Aðalbjörn Jóakimsson útgerðarmaður seldi
kvóta í kringum síðustu aldamót og hóf áhættu
fjárfestingar. Á nokkrum árum hefur hann farið frá
allsnægtum til algjörs eignamissis. Hann kennir
Landsbankanum um ófarir sínar og hyggst sækja
rétt sinn meðan hann dregur lífsandann. „Það snýst um
lífshlaupið mitt,
æruna og aleiguna.
Tapaði miklu á afleiðuvið-
skiptum Aðalbjörn Jóakimsson
tapaði miklum peningum á
afleiðuviðskiptum á árunum fyrir
hrunið 2008. Eignarhaldsfélag
hans hefur nú verið sett í þrot.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Viðtal