Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Blaðsíða 47
framlengdi stefndi Sigurður þann
24. mars 2006 gjaldmiðlaskipta-
samningnum við stefnanda, sbr.
dskj. nr. 10, upp á eigin spýtur, og
án skriflegs samþykkis stefnanda
fyrir þeirri framlengingu. Sam-
kvæmt þessum gjaldmiðlaskipta-
samningi var stefnandi skuld-
bundinn til að skipta á JPY og að fá
íslenskar krónur á gjalddaga samn-
ingsins þann 11. apríl 2006.“
Inntakið í málflutningi Dynj-
anda, og sú forsenda sem málið
byggir hvað helst á, er að Aðalbjörn
hafi ekki endurnýjað viðskipta-
samninginn þann 24. mars og því
hefði tapið átt að vera miklu minna
af viðskiptunum en raunin varð.
„Þarna var starfsfólk að vinna sem
fór langt út fyrir þær heimildir sem
það hafði, hvort svo sem það var
með fyrirskipun forsvarsmanna
sinna eða ekki. Ég var óheppinn
líkt og margir í þessu samfélagi.
Fyrir mér er það óhugsandi að eftir
að ég var búinn að gera skriflegan
samning við bankann að þeir færu
ofan í vasann minn og stælu af mér
þessum eigum mínum,“ segir Aðal-
björn.
300 milljóna tap
Samningur Aðalbjarnar féll á
gjalddaga þann 11. apríl 2006 og
var hans af tap af viðskiptunum
við bankann þá nærri 300 millj-
ónir króna. Þá óskaði bankinn
eftir auknum tryggingum vegna
viðskipta Aðalbjarnar en bank-
inn hafði þá þegar tekið veð í
bankareikningi með 125 milljóna
króna innistæðu, húsi Aðalbjarn-
ar á Laugarásvegi og annarri fast-
eign í Kringlunni til tryggingar á
greiðslu vegna viðskiptanna. Í lok
apríl 2006 var viðskiptasamningi
Dynjanda við Landsbanka Íslands
lokað og var félagið þá í mínus upp
á rúmlega 290 milljónir króna.
Hvorki gekk né rak í viðræðum
Dynjanda og Landsbanka Íslands
um uppgjör á skuldinni næstu tvö
árin. Landsbanki Íslands ætlaði svo
að höfða fimm dómsmál gegn Dynj-
anda um vorið 2008. Bankinn ákvað
hins vegar að fella niður þau dóms-
mál degi áður en stefnur í málinu
voru þingfestar. Greiddi bankinn
einnig málskostnað fyrir Dynjanda,
samkvæmt stefnunni. Þessi niður-
staða bendir til að Landsbanki Ís-
lands hafi, af einhverjum ástæðum,
ekki viljað halda málinu til streitu
á þessum tíma. Hugsanlegt er að
umtal um málið hefði getað skað-
að hagsmuni bankans. Þessi staða
breyttist hins vegar þegar Lands-
banki Íslands hrundi í október 2008
og skilanefnd og slitastjórn tóku bú
hans yfir og vinna nú að uppgjöri
þess.
Tjón vegna vanrækslu
Aðalkrafa Aðalbjarnar í málinu
gegn starfsmönnum Landsbank-
ans byggði á því að hann hefði
orðið fyrir tjóni vegna þess að þeir
þrír starfsmenn Landsbankans sem
hann stefndi hafi „virt að vettugi
skyldur sínar“ gagnvart honum sem
fram komu í samningi bankans um
skulda- og áhættustýringu og að
þeir ættu því að bera bótaábyrgð í
málinu.
Þá taldi Aðalbjörn að þremenn-
ingarnir hefðu vanrækt upplýsinga-
og ráðgjafarskyldur sínar þegar
gerður var gjaldmiðlaskiptasamn-
ingur fyrir hann í japönskum jen-
um og hann framlengdur án sam-
þykkis. Einnig var byggt á því að
farið hefði verið út fyrir þann fjár-
festingarramma sem markaður var
í samningnum við Aðalbjörn þegar
tekin var áhætta fyrir meira en 100
milljónir króna auk þess sem slíkur
samningur í erlendri mynt hafi ver-
ið „í hróplegu ósamræmi við spár“
greiningardeildar bankans, eins og
segir í stefnu Aðalbjarnar, sem taldi
lækkun á gengi krónunnar afar lík-
lega.
„Meðan ég dreg lífsandann“
Aðalbjörn ætlar að halda áfram
að leita réttar síns í málinu eins
lengi og hann getur. „Ég vil halda
áfram í þessu máli á meðan ég
dreg lífsandann. Þetta mál er mér
mjög erfitt. Það snýst um lífshlaup-
ið mitt, æruna og aleiguna. Málið
er mér miklu erfiðara en slitastjórn
Landsbankans.“ Hann ætlar að
kæra starfsmennina þrjá úr Lands-
bankanum, sem hann reyndi að
höfða skaðabótamál gegn, til Fjár-
málaeftirlitsins og jafnframt til lög-
reglunnar ef svo ber undir.
„Ég ætla að skrifa FME og
vekja athygli þeirra á stöðunni.
Skilanefndir bankanna heyra und-
ir FME. Ég ætla að sjá hvað þeir
vilja gera í stöðunni. Þeir kærðu
þessa yfirmenn Landsbankans til
sérstaks saksóknara þannig að ég
ég geri ráð fyrir að þeir grúfi sig
vel yfir málið og kanni hvort þetta
sé eitthvað hliðsætt því sem stofn-
unin kærði þá fyrir. Ef starfsmenn
Landsbankans verða dæmdir fyr-
ir það sem þeir eru sakaðir um þá
liggur fyrir að það þarf að taka mitt
mál upp. Þeir hafa þá brotið af sér
og þá liggur fyrir að það þarf að
bæta mér upp tap mitt. Þannig að
ég verð bara að bíða.“ n
Viðtal 47Helgarblað 26.–28. apríl 2013
„Hafa af mér
lífshlaup mitt“
Bíður niðurstöðu
Aðalbjörn segist bíða
niðurstöðu úr markaðs-
misnotkunarmáli Lands-
bankans. Hann telur
niðurstöðu málsins geta
haft áhrif á dómsmál
bankans gegn sér. „Þeir fóru langt út fyrir
heimildir sínar