Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Side 68
68 Fólk 26.–28. apríl 2013 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
26.–28 apríl
Föstudagur26
fös
Laugardagur27
lau
Sunnudagur28
sun
Hryðjuverkasýning um
norrænu paradísina
Leikhópurinn PotatoPotato frá
Malmö rannsakar pólitískar aðgerðir
og aðgerðaleysi í evrópskum samtíma
með ögrandi sviðslist og skoðar nú
sérstaklega pólitíska þátttöku í norrænu
paradísinni. Leikritið byggir á skáld
sögunni Píslarvottum án hæfileika eftir
Kára Tulinius, sem kom út árið 2010 í
kjölfar íslensku fjármálakreppunnar.
Leikstjóri er Linda Forsell.
Tjarnarbíó 20.00
Hammondhátíð Djúpavogs
Hammondhátíð er fjögurra daga
tónlistar hátíð sem hefur það megin
hlutverk að heiðra og kynna Hammond
orgelið. Er það gert með því að fá
tónlistarmenn, allt frá heimamönnum
til landsþekktra, til að leika listir sínar og
er Hammond orgelið í forgrunni í gegnum
alla dagskrána. Föstudagskvöld eru það
FÍH bandið og Dúndurfréttir sem stíga
á svið.
Valdimar
Hljómsveitin Valdimar mun ásamt
Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanes
bæjar koma fram á tónleikum á Ásbrú.
Flutt verða lög af tveimur fyrstu plötum
hljómsveitarinnar í nýjum og stórglæsi
legum lúðrasveitarbúningi. Lúðrasveit
Tónlistarskólans er skipuð 40 afbragðs
nemendum og leikur undir styrkri stjórn
Karenar Sturlaugsson.
Andrews Theater 19.30
Nýjustu fréttir
– aukasýning
Nýjustu fréttir fjalla
um samband okkar
við fréttir á myndræn
an og gamansaman
hátt. Sýningin var unnin
í spunavinnu með öllum hópnum og þar
fléttast saman brúðuleikhús, myndbands
verk, dansleikhús og lifandi tónlistarflutn
ingur Sóleyjar Stefánsdóttur.
Norðurpóllinn 15.00
Barkokktónleikar
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
gengur til liðs við Kór Akureyrarkirkju,
Barokksmiðju Hólastiftis og einvalalið
einsöngvara undir stjórn Eyþórs Inga
Jónssonar. Hin sænska Lisa Rydberg
leiðir hljómsveitina en Lisa er sérhæfð
í barokkfiðluleik og þekkt fyrir mikla
útgeislun og hrífandi tónlistarflutning.
Hof Akureyri 16.00
Flóttinn aF Bylgjunni
Þ
að eru engin leiðindi
hérna. Við höfum ekkert
nema gott um þetta fólk að
segja. Það hefur allt staðið
sig eins og hetjur. Ég vona
að við fáum gott fólk í staðinn fyrir
þau sem eru að hætta, segir Ívar
Guðmundsson, dagskrárstjóri á
Bylgjunni.
Fjórir reyndir og vinsælir dag-
skrárgerðarmenn eru að kveðja
Bylgjuna eða eru hættir störfum.
Hermann Gunnarsson, Hemmi
Gunn, kvaddi á sunnudaginn með
þátt sinn: Og svaraðu nú. Loka-
þátturinn með Sigmari Vilhjálms-
syni og Jóhannesi Ásbjörnssyni,
Simma og Jóa, fer í loftið á
kosningadag. Annar morgun-
þáttastjórnandinn Kolbrún Björns-
dóttir, Kolla í Bítinu, sagði upp á
þriðjudag og hættir væntanlega í
júní.
Slæmur vinnutími
Kolla segir að vinnutíminn hafi
gert útslagið. „Ég er alltaf þreytt.
Morgnarnir taka sinn toll,“ segir
hún. Útvarpskonan fer á fætur fyrir
sex á morgnana og er mætt í út-
sendingu rétt fyrir sjö. Sjálf segist
hún ekki vita hvað hún taki sér fyr-
ir hendur þegar hún hættir á Bylgj-
unni en hún hefur staðið morgun-
vaktina þar ásamt Heimi Karlssyni
í rúm sex ár.
Að sögn Sigmars Vilhjálmssonar
eru miklar annir í kringum rekstur
Hamborgarafabrikkunnar og Stór-
veldisins ehf. helsta ástæða starfs-
loka sinna. „Við erum búnir að vera
með þáttinn í rúm fimm ár og höf-
um á þeim tíma báðir eignast börn
og stofnað fyrirtæki. Við viljum
fara að eiga aðeins meiri tíma fyrir
okkur sjálfa og fjölskyldurnar en
verið hefur,“ segir hann.
Sáttur við allt og alla
Hemmi Gunn segist kveðja Bylgj-
una sáttur við menn og málefni og
láta af störfum að eigin frumkvæði.
Hann hefur verið viðloðandi út-
varpsstöðina frá stofnun hennar
um miðjan níunda áratug síðustu
aldar. Hemmi var að hreinsa skrif-
borið sitt þegar DV náði tali af hon-
um. Hann segist ætla að ljúka við
ritun ævisögu sinnar í maí og júní
en segist vera með tilboð frá RÚV
um gerð bæði sjónvarps- og út-
varpsþátta. „Þetta er rétti tíminn til
að hætta, ég er búinn að vera sam-
fellt á Bylgjunni í á annan áratug.“
Eins og áður sagði er Hemmi bæði
með tilboð um að gera útvarps- og
sjónvarpsþætti á RÚV, en hvort lík-
ar honum betur að vinna í útvarpi
eða sjónvarpi. „Þetta er erfið spurn-
ing. Þegar ég var með þættina Á
tali með Hemma Gunn í sjónvarp-
inu þá var það ótrúlega skemmti-
legt. Það voru 30–40 manns sem
unnu að þáttunum og það voru all-
ir á tánum. Þetta var í beinni út-
sendingu og allt gat gerst. Þáttur-
inn var svo hálf drepinn þegar hann
var tekinn úr beinni útsendingu.
Þegar ég byrjaði með þættina á sín-
um tíma sögðu margir að ég væri
snarvitlaus að ætla að vera með
þættina í beinni. Svo var mér ráð-
lagt að vera með þættina á laugar-
dagskvöldum þá væri mest áhorfið
en ég vildi vera á miðvikudögum og
það var metáhorf á þættina.“
Útvarp skilvirkara en sjónvarp
„Ég hef alltaf þurft að gera hlutina
svolítið öðruvísi. En yfir heildina þá
held ég að útvarpið sé skilvirkara
en sjónvarp og auðveldara að ná
sambandi við fólk í gegnum það. Ég
þrífst á því að vera í sambandi við
fólk þótt ég þurfi líka á einveru að
halda,“ segir Hemmi.
Ívar Guðmundsson dagkrárstjóri
segir að það sé mikil eftirsjá í fjór-
menningunum. „Það er ekki búið
að ráða dagskrárgerðarmenn í stað
þeirra sem eru að hætta. Það verð-
ur ekki auðvelt að finna fólk í stað-
inn fyrir þau. Við notum kannski
tækifærið og gerum einhverjar
breytingar á dagskránni. Engar
slíkar ákvarðanir hafa þó verið
teknar.“ n
n Fjórir reyndir dagskrárgerðarmenn hættir eða að hætta n Kolla í Bítinu segir vinnutímann óhentugan n Erfitt að fylla í skörðin
Eyfirsk tískuhátíð
n „Þetta er svolítið eins og „Parísartískan“, bara norðar“
N
æstkomandi þriðjudags-
kvöld verður eyfirskri tísku
gerð skil á hátíðinni Tíska og
tónlist á Akureyri.
Hátíðin er haldin í Hlöðunni í
Litlagarði sem stendur rétt við flug-
völl Akureyrar. Þar verður haldin
tískusýning og í tilefni hátíðarinnar
verður gefið út tískublað. Einn að-
standenda, Helgi Þórsson í Krist-
nesi, segist hafa ákveðið að stela
hugtakinu „Eyfirska tískan“ og gera
að sínu. „Þetta er svolítið eins og
„Parísartískan“, bara norðar.“
Þetta er fjórða hefti tímarits-
ins Eyfirsk tíska og blaðið prýðir
ljósmyndir eftir Helga og Daníel
Darrason.
Á umræddri sýningu er teflt
saman fatnaði úr leðri annars vegar
og PVC hins vegar. „Eyfirska tískan
árið 2013 er tvískipt, annars vegar
villileðurkjólar og pils sem mynd-
aðir voru í Hagkaupum á Akur eyri
og hins vegar litríkur gerviheim-
ur, sem komið var fyrir í horninu
í sjónvarpsstofunni í Kristnesi.
Allt leðrið á þessum myndum er
heimasútað lambsleður. Við sút-
unina er trjábörkur aðalhráefnið
svo ekki þarf að óttast mengun frá
þeim heimilisiðnaði. Hins vegar
eru litríku PVC-dressin algjör-
lega ónáttúrleg eða eigum við að
segja yfirnáttúrleg hugmynd um
hömlulausa fegurð? Er eitthvað til
sem er of sætt? Það var kveikjan af
hinni seríunni. Hvar eru mörkin
með það hvenær andlit er málað
nóg? Hvaða litur er of áberandi? Er
nokkurn tíma nóg?
Líklega gildir það um tísku eins
og ljóð og jafnvel myndlist að
hún batnar ekki endilega í hlut-
falli við útskýringar, myndirnar
tala sínu máli.“ n
Jóhanna Margrét Einarsdóttir
blaðamaður skrifar johanna@dv.is
„Við viljum fara að
eiga aðeins meiri
tíma fyrir okkur sjálfa og
fjölskyldurnar en verið
hefur.
Leður Kjóll úr heimasútuðu lambsleðri.
Ónáttúruleg „Hinsvegar eru litríku PVC
dressin algjörlega ónáttúruleg eða eigum
við að segja yfirnáttúrleg hugmynd um
hömlulausa fegurð?“