Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.2013, Síða 69
Fólk 69Helgarblað 26.–28. apríl 2013
Flóttinn aF Bylgjunni
n Fjórir reyndir dagskrárgerðarmenn hættir eða að hætta n Kolla í Bítinu segir vinnutímann óhentugan n Erfitt að fylla í skörðin
Eru að kveðja „Við viljum
fara að eiga aðeins meiri
tíma fyrir okkur sjálfa og
fjölskyldurnar,“ segir Simmi.
Grafskriftir Ómars Ragnarssonar
n Ómar frumsýndi myndina In memoriam? í Bíó Paradís í vikunni
É
g er að halda upp á margfalt
tíu ára afmæli. Það eru tíu ár
frá því ég frumsýndi myndina,
Á meðan land byggist, en hún
fjallaði um Kárahnjúka, Vatnajökul
og svæðið norðan hans. Ég er að
minnast þess að það eru tíu ár síð-
an Alþingi og borgarstjórn Reykja-
víkur samþykktu Kárahnjúkavirkj-
un, segir náttúruverndarsinninn og
fjölmiðlamaðurinn Ómar Ragnars-
son en mynd hans „In memoriam?“
var sýnd í fyrsta sinn á Íslandi í
Bíó Paradís á fimmudagskvöld en
myndin verður sýnd í bíóinu í viku.
„Ég er að minnast þess að það
eru tíu ár frá því að lokið var samn-
ingum um Kárahnjúkavirkjun og
um álverið í Reyðarfirði og menn
fóru að sprengja. Loks er ég að
minnast þess að síðar sama ár
gerði ég betri mynd en þá íslensku
fyrir erlendan markað hún fékk
heitið „In memoriam?“ sem er oft
tengt grafskrift á legsteinum, nú
tíu árum síðar þarf ekki að lengur
spurningarmerki um afdrif helstu
náttúru gersema áhrifasvæðis virkj-
unarinnar. Spurningarmerkið var
sett vegna þess að menn vissu ekki
þegar ég gerði myndina hvaða áhrif
Kárahnjúkavirkjun myndi hafa á
umhverfið. Nú áratug síðar er vitað
hvað gerðist og því má fjarlægja
spurningamerkið. Við horfum á
grafskriftir á öllu svæðinu. Fossarn-
ir farnir, dalurinn farinn og Lagar-
fljót lífvana og það mætti nefna
fleiri náttúruspjöll. Þetta er betri
mynd en sú fyrri því í henni er að
finna ýmsar nýjar upplýsingar en
haustið 2003 fór ég margar ferðir
austur á land, tvær ferðir til Noregs
og til Bandaríkjanna til að afla mér
efnis í myndina.“ Ómar segist með-
al annarra ræða við Norðmanninn
Erik Solheim í myndinni en hann
kynnti sér Kárahnjúkavirkjun og
gat því gert samanburð á henni
og hinni illræmdu Altavirkjun í
Norður- Noregi þá er í myndinni
rætt við Gro Harlem Brundtland
sem taldi það mestu mistökin á
stjórnmálaferli sínum að hafa sam-
þykkt byggingu hennar. n
Er orðin þreytt
„Morgnarnir taka sinn
toll,“ segir Kolla.
Hemmi Gunn á
leiðinni á RÚV „Ég
þrífst á því að vera í sam-
bandi við fólk þótt ég þurfi
líka á einveru að halda,“
segir Hemmi Gunn.
„In memoriam?“ „Menn vita
nú hvaða áhrif Kárahnjúkavirkjun
hafði á umhverfið. Fossarnir eru
farnir, dalurinn farinn og Lagarfljót
lífvana,“ segir Ómar Ragnarsson.