Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Qupperneq 4
Salan á Skeljungi
á lokametrunum
4 Fréttir 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Eyddu 400 milljónum
n Útlendingar helmingur hátíðargesta
A
lls sóttu um 4.000 manns
árlega hátíð EVE Online,
sem haldin var í Hörpu
um síðustu helgi. Þar af
voru erlendir gestir tæpur helm-
ingur og ætla má að þeir hafi eytt
um 400 milljónum króna samtals.
Gert er ráð fyrir því að útgjöldin á
sólarhring hafi verið um 24 þús-
und krónur, sem er sú fjárhæð
sem hver erlendur gestur eyddi á
Iceland Airwaves 2011.
Ef flugfargjöld eru frádregin
má ætla að gestir hafi eytt um 264
milljónum króna innan borgar-
markanna.
Tíu ára afmæli EVE-heimsins
var fagnað nú í ár en rúmlega hálf
milljón manna spilar tölvuleikinn
EVE Online um allan heim. Það
er tölvuleikjaframleiðandinn CCP
sem stendur fyrir hátíðinni og í
fréttatilkynningu frá honum er
tekið fram að mikil ánægja ríki
með hátíðina um helgina, sem er
sú stærsta til þessa.
Sérstakt útsendingarstúdíó,
EVE TV, var sett upp í Hörpu þar
sem beinar útsendingar og við-
töl fóru fram alla helgina. Loka-
hnykkur hátíðarinnar – Party at the
Top of the World-tónleikarnir með
Skálmöld, Retro Stefson, Z-Trip
og fleirum – voru jafnframt sendir
beint út gegnum EVE TV.
Um 1.800 manns sóttu
fyrir lestur Hilmars Veigars
Péturssonar, framkvæmdastjóra
CCP, laugardaginn 27. apríl, þar
sem ýmis framtíðaráform fyrirtæk-
isins voru kynnt undir heitinu CCP
Presents! Rúmlega fjörutíu þúsund
manns fylgdust með fyrirlestrin-
um gegnum netið, EVE TV og vef-
síðuna Twitchtv.com. Alls fylgdust
281.240 manns með útsendingum
frá hátíðinni. n
Eyddu miklu EVE-heimurinn fagnaði tíu
ára afmæli um helgina.
Karlmaður hefur í Hæstarétti verið
dæmdur í 12 mánaða fangelsi fyrir
að ráðast á lögreglumenn. Árásin
átti sér stað í fangaklefa, eftir að
maðurinn hafði verið handtekinn,
þann 2. júlí 2011. Hann réðst á tvo
lögregluþjóna; kýldi annan þeirra
ítrekað í höfuð og andlit með þeim
afleiðingum að maðurinn nef-
brotnaði og hlaut aðra áverka.
Maðurinn var líka sakfelldur
fyrir að ráðast á annan lögreglu-
mann við skyldustörf, með því
að þrífa í hálsmál hans, þrengja
að hálsinum og slá hann hnefa-
höggi í andlit. Degi áður hafði of-
beldismaðurinn verið handtekinn
fyrir að ráðast á mann og sparka
í liggjandi mann á veitingahúsi.
Hæstiréttur komst að þeirri niður-
stöðu að árásin á annan lögreglu-
manninn í klefanum hafi verið
afar fólskuleg og hættuleg. Árásin
á hinn hafi verið gróf og árásin á
þann þriðja algjörlega tilefnislaus.
Ofbeldismaður
fer í fangelsi
H
jónin Svanhildur Nanna
Vigfúsdóttir og Guðmundur
Örn Þórðarson, meirihluta-
eigendur olíufélagsins Skelj-
ungs, eiga í viðræðum við
framtakssjóðinn SÍA II, sem rekinn
er af Stefni, sjóðsstýringarfyrirtæki
Arion banka um sölu á 92 prósenta
hlut hjónanna í Skeljungi. Morgun-
blaðið greindi frá því í síðustu viku
að viðræðurnar væru langt komn-
ar og búið væri að semja um helstu
samningsatriði.
Þau keyptu 51 prósents hlut í
Skeljungi í ágúst árið 2008 í gegn-
um félagið BG Partners en með-
eigandi þeirra þá var Birgir Bielt-
vedt, núverandi eigandi Domino‘s
Pizza. Kaupverðið var einn og hálf-
ur milljarður króna og var hluti
kaupverðsins greiddur með verð-
litlum fasteignum í Danmörku sem
nokkuð ljóst þótti að hefðu hrunið
í verði á þessum tíma. Skeljung-
ur hafði verið í eigu Glitnis frá árs-
lokum 2007 eftir að bankinn sölu-
tryggði allt hlutafé í því fyrir Pálma
Haraldsson í Fons fyrir um 8,7
milljarða króna. Bankinn tapaði
því miklu á viðskiptunum, líklega
rúmum sex milljörðum króna hið
minnsta.
Löng leit
Árið 2010 keyptu þau Guðmundur
Örn, Svanhildur og Birgir síðan 49
prósent af hlutafé Skeljungs af Ís-
landsbanka sem boðin voru í opnu
söluferli. Birgir seldi hins vegar
sinn hlut árið 2011 og eftir það réðu
hjónin yfir 92 prósenta hlut í olíufé-
laginu sem þau eru nú á lokametrun-
um með að selja.
Samkvæmt heimildum DV hafa
hjónin leitað kaupanda á 92 pró-
senta hlut þeirra í Skeljungi í rúmt ár.
Þau eiga þrjú eignarhaldsfélög sem
halda utan um þennan hlut. Skel In-
vestments ehf. sem fer með 51 pró-
sents hlut í Skeljungi, SNV Holding
ehf. sem fer með 29,5 prósenta hlut
og BBL-II ehf. sem fer með 11,6 pró-
senta hlut. Þess skal getið að Skel In-
vestments, stærsti hluthafinn, tapaði
rúmum 400 milljónum króna árið
2010 og 320 milljónum króna árið
2011.
Störfuðu saman hjá Straumi
Svanhildur Nanna og Guðmundur
Örn störfuðu bæði hjá Straumi-
Burðarási en hættu störfum
þar árið 2007. Hún var fram-
kvæmdastjóri fjárstýringar bank-
ans og hann framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs. DV greindi síðan
frá því í árslok 2011 að Straumur-
Burðarás, fyrrverandi vinnuveit-
andi þeirra hjóna, hefði þurft að
afskrifa rúman 1,1 milljarð króna
af skuldum eignarhaldsfélagsins
GOGS ehf. sem var í eigu þeirra.
Straumur var eini kröfuhafi félags-
ins og fundust engar eignir í búinu
samkvæmt tilkynningu sem birt
var í Lögbirtingablaðinu. Samtals
námu kröfurnar 1.130 milljónum
króna.
GOGS var stofnað árið 2007 átti
það 50 prósenta hlut í eignarhalds-
félaginu BG Partners, á móti
eignarhaldsfélagi sem var í eigu
Birgis Bieltvedt. Á árinu 2008 var
meðal annars greint frá því að BG
Partners hefði fjárfest í danska
hönnunar fyrirtækinu Metropol.
Þá fjárfestu Guðmundur og Birgir
einnig í danska fasteignafélaginu
Property Group með fjármögnun
frá Straumi.
Hundraða milljóna hagnaður
Samkvæmt ársreikningi Skeljungs
hagnaðist olíufélagið um 630 milljón-
ir króna árið 2011 og um 820 milljón-
ir króna árið 2010. Velta félagsins nam
um 30 milljörðum króna árið 2011.
Eignir félagsins nema um 12 millj-
örðum króna, skuldir 8,4 milljörðum
króna en eigið fé nemur um 3,7 millj-
örðum króna. Fram kemur í ársreikn-
ingnum fyrir 2011 að þá hafi Skeljung-
ur verið með um fimm milljarða
króna skuldir við Íslandsbanka.
„Til tryggingar greiðslu skulda fé-
lagsins hefur Skeljungur veitt
bankanum allsherjarveð í skamm-
tímakröfum og vörubirgðum fé-
lagsins að fjárhæð 8,3 milljörðum
króna og í varanlegum rekstrar-
fjármunum að fjárhæð 2,7 millj-
örðum króna,“ segir í ársreikningn-
um. n
Hjón Svan-
hildur Nanna
og Guðmundur
Örn hafa leitað
að kaupendum í
nokkurn tíma.
n Hjónin Guðmundur Örn og Svanhildur að selja 92 prósenta hlut sinn
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Drjúgur hagnaður Félagið skilaði 630 milljóna króna hagnaði 2011.
Þingvallanefnd og Landsbankinn
undirrituðu á dögunum kaup-
samning vegna þriggja sumarhúsa
í landi þjóðgarðsins. Kaupverðið
var 34,5 milljónir króna en sum-
arhúsin Gjábakkland 1, 3 og 5 eru
þau einu sem standa neðan vegar
í landi jarðarinnar Gjábakka á
austurbarmi sigdældarinnar við
Hrafnagjá.
Húsin voru byggð 1967 og 1968 og
hafa staðið ónotuð. Fyrirhugað er
að í Gjábakkalandi verði upphaf
gönguleiða og miðstöð annarrar
útivistar í austanverðum þjóð-
garðinum, að því er segir í tilkynn-
ingu frá Þingvallanefnd. Álfheiður
Ingadóttir, formaður nefndarinnar,
segir um mikilvægan áfanga í upp-
byggingu þjóðgarðsins á Þingvöll-
um sé að ræða.
Sumarhús
keypt af
Landsbanka