Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 18
18 Erlent 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Fréttaljósmyndarar
Reuters eru á fleygiferð
allan sólarhringinn og
festa á filmu það helsta
sem gerist á byggðu bóli.
Á meðfylgjandi myndum
má sjá þverskurð af því
sem gerðist í vikunni sem
senn er á enda.
Nýtt andlit Carmen Blandin Tar-
leton gekkst undir andlitságræðslu á Brig-
ham and Women‘s-sjúkrahúsinu í Boston í
febrúar. Afrakstur aðgerðarinnar var sýndur
á blaðamannafundi á miðvikudag. Tarleton
varð fyrir fólskulegri árás eiginmanns síns
árið 2007 og fékk hún meðal annars yfir sig
sýru sem afmyndaði andlit hennar. Vinstra
megin á myndinni má sjá Marindu Righter
smella kossi á kinn Tarleton. Righer er dóttir
Cheryl Denelli-Righter sem lést fyrr á árinu
en andlit hennar var notað til að endur-
byggja andlit Tarleton.
Harmleikur Aðstandendur komu saman á fimmtudag við rústir átta hæða byggingar sem hrundi til grunna í bænum Savar í
Bangladess í síðustu viku. Yfir 400 manns létust og er fjölmargra enn saknað. Bæjarstjóra Savar var vikið úr embætti á mánudag meðan á
rannsókn málsins stendur. Í húsinu var meðal annars að finna fataverksmiðju og verslanamiðstöð en flestir þeirra sem létust voru við vinnu
þegar það hrundi.
Mótmælt á baráttudegi Fjöldi fólks þusti út á götur Santiago, höfuðborgar Chile, þann 1. maí. 1. maí er baráttudagur
verkalýðs og launafólks um allan heim og létu íbúar Chile ekki sitt eftir liggja á miðvikudag. Sumir þóttu þó ganga of langt í baráttu sinni
eins og þessi unga kona sem var tekin höndum af lögreglumönnum. Rúmlega hundruð manns voru handtekin af lögreglu og slösuðust
fjölmargir, þar á meðal átta lögregluþjónar.
Halló, Bjössi Þessi ísbjörn hefur vakið mikla lukku í heimskautadýragarðinum
í borginni Wuhan í Kína. Þar eru til sýnis dýr af öllum stærðum og gerðum þó, eins og nafnið
gefur til kynna, séu þar að mestu skepnur sem eiga heimkynni á heimskautasvæðunum. Hér
sést ung stúlka snerta glerið á búri sem skilur björninn og áhorfendur að.
Einn kaldan, takk Það er ekki bara á Íslandi sem sumarið lætur bíða eftir
sér. Í bænum Golden í Colorado í Bandaríkjunum snjóaði hressilega á dögunum eftir ágætis
veðurblíðu seinni hluta aprílmánaðar. Á þessari útikrá í bænum verður ölið varla teygað
meðan snjór og kuldi ræður ríkjum.