Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Qupperneq 30
4 Pepsi-deildin 2013 3.–5. maí 2013 Helgarblað
Hörkuleikir í bikarnum
n KR-ingar oftast orðið bikarmeistarar n Úrslitaleikurinn verður 17. ágúst
Ö
nnur umferðin í Borgunar
bikarnum fer fram 13. og 14.
maí næstkomandi. KRingar
eru ríkjandi bikarmeistarar eins
og flestum ætti að vera kunnugt en
liðið lagði Stjörnumenn að velli í úr
slitaleiknum í fyrra, 2–1. Í annarri um
ferðinni koma inn lið sem leika í fyrstu
deildinni og má búast við nokkrum
hörkuleikjum. Þannig tekur Víkingur
R. á móti Haukum en báðum liðum
er spáð ágætu gengi í fyrstu deildinni
í sumar. Þá tekur ungt lið ÍRinga, sem
féll úr fyrstu deildinni í fyrra, á móti
liði Selfoss sem féll einmitt úr Pepsi
deildinni í fyrrasumar.
Úrvalsdeildarfélögin koma svo inn
í mótið í þriðju umferðinni, 32liða úr
slitunum, og fara þeir leikir fram mið
vikudaginn 29. maí og fimmtudaginn
30. maí. Gert er ráð fyrir því að úr
slitaleikurinn fari fram laugardaginn
17. ágúst. KRingar hafa oftast orðið
bikarmeistarar, eða 13 sinnum. Val
ur og ÍA eru næstsigur sælustu félögin
með níu sigra hvort lið. n
M
unurinn nú og yfirleitt
áður er sá að nú hefur
okkur gefist tækifæri til
að byggja ofan á góðan
grunn og erum aldrei
þessu vant ekki að missa neinn
lykil mann milli leiktíða og það
hjálpar gríðarlega vona ég,“ segir
Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiða
bliks, sem tekur á móti nýliðum Þórs
á sunnudaginn kemur í fyrsta leik
Pepsideildarinnar þessa leiktíðina.
Þjálfarinn telur eðlilegt að setja
markið hátt og enda meðal þriggja
efstu í lok leiktíðarinnar. Það mun
ganga eftir ef spá DV rætist en þar er
Blikum spáð 3. sætinu.
Byggt á góðum grunni
Lið Breiðabliks náði fínum árangri
á síðustu leiktíð og endaði í öðru
sætinu á eftir Íslandsmeisturun
um úr FH. Liðið hefur yfir að ráða
að mestu sama hópi nú í grunninn
og það er í raun lúxus sem Ólafur
þjálfari hefur í raun ekki notið síð
ustu árin enda liðið misst frá sér lyk
ilmenn nánast árlega og því þurft að
byggja upp eftir hendingu. „Það er
ekki raunin nú, aldrei þessu vant. Við
höfum haldið kjarnanum og bætt
lítið við sem er jákvæð breyting frá
því sem verið hefur. Fyrir vikið er liðið
betur stemmt og klárara í slaginn nú
en fyrri ár og ég vona sannarlega að
það komi til með að hafa áhrif. Í öllu
falli hef ég ekki lengur þá afsökun að
hafa misst sterka leikmenn.“
Mótið jafnara nú en áður
Ólafur telur að deildin verði harðari
nú en undanfarin ár og byggir það á
því sem hann hefur séð til annarra
félagsliða í vor. „Það er mín tilfinn
ing að liðin almennt séu jafnari nú
en verið hefur og fyrir vikið verði
deildin harðari og jafnari og það
yrði frábært ef það gengi eftir. Ég sé
ekki fyrir mér að eitt lið stingi af nú
eins og í fyrra og vona að það verði
raunin.“ Hvað ný lið deildarinnar
varðar segir Ólafur ljóst að lífið verði
þeim erfitt eins og öllum nýliðum
en dettur ekki í hug annað en bæði
Þór og Víkingur Ólafsvík eigi erindi
í deildina.
Fyrsti leikur heima gegn Þór
Nýju liðin tvö í deildinni eru að
eins óþekktari stærðir en þessi
hefðbundnu og sem fyrr eru lík
urnar takmarkaðar á að nýliðarnir
geri öðrum félögum mikla skrá
veifu á fyrsta tímabili sínu í efstu
deild. Ólafur fellur þó ekki í þá
gryfju að vanmeta Þórsara sem
mæta á Kópavogsvöllinn á sunnu
dag. „Þórsarar eru nýliðar, vissu
lega, en lið af því tagi sem gefur
sig allt í leikinn og spilar af ástríðu
og gegn slíkum andstæðingum er
ekkert gefið. En auðvitað er krafa
um sigur í fyrsta leik og sérstaklega
á heimavelli. Það er tilhlökkun í
mér og liðinu og við teljum okkur
klára til að takast á við öll önnur lið
og halda haus.“ n
Blikar stefna
á Evrópusæti
n Undirbúningurinn óvenju góður n Leika fyrst gegn nýliðum Þórs
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Lykilmaður
Gunnleifur Gunnleifsson
Markvörður Breiða
bliks er af mörgum
talinn besti mark
vörður landsins
en til eru þeir sem
töldu hann hafa dal
að á síðustu leiktíð þegar hann
lék með Íslandsmeisturum FH.
Hann er vissulega orðinn 38 ára
sem þarf þó ekki að vera hár ald
ur hjá markaverði. Hann þarf að
sýna sitt besta form á ný eigi Blik
ar að eiga möguleika á að enda
meðal efstu liða.
Fylgstu með
Nichlas Rohde Daninn
ungi var Blikum
mikill styrkur á síð
ustu leiktíð þó ekki
léki hann nema
tíu leiki í deildinni.
Þeir leikir dugðu þó til
að hann skoraði ein sex mörk og
mætir hann nú til leiks þroskaðri
og mun meðvitaðri um liðs félaga
sína.
Jafnari deild þetta
árið Þjálfari Blika
segir lið sitt óvenju klárt í
slaginn í Pepsi-deildinni.
Markakóngar
síðustu ára
Ár Markakóngur Félag Mörk
2012 Atli Guðnason FH 12
2011 Garðar Jóhannsson Stjarnan 15
2010 Gilles Mbang Ondo Grindavík 14
2009 Björgólfur Takefusa KR 16
2008 Guðmundur Steinars. Keflavík 16
200 Jónas Grani Garðars. Fram 13
2006 Marel Baldvinsson Breiðablik 11
2005 Tryggvi Guðmunds. FH 16
Íslands-
meistarar
Ár Félag
2012 FH
2011 KR
2010 Breiðablik
2009 FH
2008 FH
2007 Valur
2006 FH
2005 FH
3. sæti
Bikarmeistarar
síðustu ára
Ár Félag
2012 KR
2011 KR
2010 FH
2009 Breiðablik
2008 KR
2007 FH
2006 Keflavík
2005 Valur
2004 Keflavík
2003 ÍA
Oftast meistarar KR-ingar hafa orðið bikarmeistarar þrettán sinnum. Þeir hafa unnið
undanfarin tvö ár og eru kandídatar í ár líka.
Heiðar heim
Einn öflugasti sóknarmaður lands
ins, Heiðar sonur Helgu, segir
punktinn kominn á atvinnu
mannaferli sínum erlendis og
mun halda heim á leið innan tíðar.
Forráðamenn Þróttar hafa gengið
á Heiðar með það í huga að fá
þennan leikreynda leikmann til að
sprikla í búningi Þróttara í sumar.
Heiðar hefur ekki gefið svar enn
sem komið er. Það yrði Þrótturum
og reyndar öllum íslenskum félags
liðum mikill fengur að Heiðari sem
er kappsamur með afbrigðum.
Ekki gleyma
stúlkunum
Það er ekki aðeins Pepsideild
karla sem er að hefast þetta árið
heldur taka stelpurnar líka fram
skóna á næstu dögum. Pepsideild
kvenna hefst formlega tveimur
dögum á eftir körlunum á þriðju
daginn kemur þegar einir fimm
leikir fara fram. Fáum dylst að
kvennaboltinn á Íslandi batnar
með hverju árinu og að sama
skapi eykst jafnræði með liðunum.
Er áberandi minna um leiki sem
enda með miklum markamun ár
eftir ár og er von til að sú þróun
haldi áfram. Kvennadeildin á eftir
að verða spennandi ekki síður en
hjá strákunum.
Spár fjarri lagi
Það er árlegur viðburður fyrir Ís
landsmótið í knattspyrnu síðustu
árin að dregnir eru fram hinir
ýmsu spekingar sem spá fyrir um
sumarið. Svo er líka nú og víst er um
ágæta lesningu að ræða fyrir marga.
Þeir sömu ættu þó að taka öllum
spádómum með miklum fyrirvara
enda sérfræðingarnir svokölluðu
oftar en ekki haft kolrangt fyrir sér.
Nægir að nefna að það var KR sem
átti að sigra Pepsideildina í fyrra
samkvæmt þjálfurum sjálfum og
Fram talið öruggt með þriðja sætið.