Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 43

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 43
 31Helgarblað 3.–5. maí 2013 manns létu lífið af völdum raðmorðingjans Eric Edgar Cooke en hann var síðasti glæpamaðurinn sem var hengdur í Ástralíu en það var árið 1964. Cooke var kallaður The Night Caller en hann olli miklum ótta í borginni Perth þar sem hann framdi 22 ofbeldisglæpi á borgurum.8 Þ ann 25. apríl, 1978, leit- uðu hjónin Bill og Valda Thomas sveppa í kjarrlendi við Swamp-veg skammt frá bænum Truro í Suður-Ástr- alíu. Við leitina hnutu þau um bein sem þau töldu vera úr kú, en tveim- ur dögum síðar fékk Valda hugboð og linnti ekki látunum fyrr en eiginmaður hennar féllst á að kíkja nánar á beinið. Valda hafði eitthvað til síns máls því þegar Bill tók beinið upp úr kjarr- inu kom í ljós skór. Skammt frá fannst fatnaður og fleiri bein. Síðar kom í ljós að um var að ræða líkamsleifar Veronicu Knight, 18 ára stúlku sem hafði horfið frá Adelaide um jólaleytið 1976. Adelaide er í um 70 kílómetra fjar- lægð frá Truro en engu að síður, og í ljósi skorts á vísbendingum um annað, var sú ályktun dregin að Veronica hefði villst og sennilega dáið úr þorsta. Réttu ári síðar, 15. apríl 1979, fann lögreglan líkamsleifar 16 ára stúlku, Sylvíu Pittman, í um eins kílómetra fjarlægð frá þeim stað sem líkamsleif- ar Veronicu höfðu fundist áður. Sylvía hafði horfið um svipað leyti og Veron- ica. Þessi tveir líkfundir vörðuðu upp- haf máls sem fékk nafngiftina Truro- morðin. Raðmorð nýtt fyrirbæri Á þessum tíma voru raðmorð nýlunda í Ástralíu og lögreglan stóð frammi fyrir miklu verkefni. Augljóst þótti að tenging væri á milli Veronicu og Sylvíu og fimm annarra ungra kvenna var saknað frá Adelaide á þessum tíma. Viðamikil leit var framkvæmd við Swamp-veg og eftir ellefu daga leit fundust beinagrindur tveggja stúlkna; Connie Iordanides og Vicki Howell, stúlkna sem hafði verið saknað. Talið er að tveir menn, Christoph- er Worrell, 23 ára, og James Miller, fer- tugur verkamaður, hafi staðið að baki morðunum. Christopher var lýst sem ungum, sjarmerandi en siðblindum manni, en James var sagður rótlaus hommi, og áttu þeir í kynlífssambandi. Þeir kynntust þegar þeir afplánuðu fangelsisdóma, James fyrir hin ýmsu innbrot og Christopher fyrir nauðgun og brot á skilorði sem hann var á vegna vopnaðs ráns. Þegar þeir losnuðu úr grjótinu bundust þeir böndum og bjuggu og unnu saman. James var hugfanginn af Christopher sem leyfði honum að njóta sín kynferðislega meðan hann sjálfur skoðaði klámefni, sem að stærstum hluta tengdist BDSM. En eftir því sem tíminn leið hneigð- ist hugur Christophers æ meira til kvenna og kynferðislegt samband hans og James lognaðist út af og við tók eins konar bræðrasamband. Þann 19. febrúar, 1977, lentu fé- lagarnir í bílslysi ásamt vinkonu Christophers. Christopher og vinkona hans létu bæði lífið en James slapp við illan leik – og þar með lauk morðskeiði þeirra. Vísbending frá James Í kjölfar dauða Christophers lagðist James í mikið þunglyndi og varð heim- ilislaus. Þegar þarna var komið sögu voru Truro-morðin ekki komin í um- ræðuna – og því ekki um neina rann- sókn að ræða af hálfu lögreglu. Engu að síður varð það hugarvíl sem James glímdi við sem kom lögreglu síðar á sporið. Við jarðarför Christoph- ers sagði fyrrverandi vinkona hans, Amelia, James frá því að Christopher hefði grunað að hann væri með æða- gúlp í heila. Þessar upplýsingar urðu til þess að James sagði henni frá þeirri ánægju sem Christopher fékk við að fremja morð og velti þeim möguleika upp hvort gúlpurinn kynni að hafa orsakað morðfýsn Christophers. Það varð þó ekki fyrr en í maí 1979 sem Amelia veitti viðtöku 30.000 Ástr- alíudala fyrir að hafa veitt lögreglu upplýsingar sem leiddu til handtöku James. Sagði Amelía að hún hefði dregið það á langinn því hún hefði í raun ekki haft neitt í höndunum sem renndi stoðum undir orð James. Því varð það ekki fyrr en fréttir af Truro-morðunum birtust í fjölmiðlum sem hún taldi sig hafa fengið einhverja staðfestingu. Stundum morð – stundum ekki James Miller var færður til yfirheyrslu og neitaði í fyrstu að vita nokkuð um morðin. En innan skamms gaf hann sig og við yfirheyrslurnar kom í ljós óhugnanleg saga. Félagarnir óku um Adelaide öll kvöld leit að stúlkum sem Christopher gæti gamnað sér með. Þegar fórnarlamb var fundið ók James á afvikinn stað þar sem Christopher lauk sér af en síðan var ekið aftur í bæ- inn og stúlkunni skilað. En brátt nægði þetta Christoph- er ekki og hann tók að nauðga þeim konum sem ekki vildu þýðast hann og síðan tóku morðin við. Að sögn James lá aldrei ljóst fyrir hvort félagi hans myndi myrða fyrr en af því varð og morð var ekki reglan. En Christopher varð sífellt ofbeld- isfyllri og að lokum var ekki laust við að James óttaðist hann. Fórnarlömbin sjö Veronica Knight, 18 ára, og vinir henn- ar urðu viðskila í verslunarleiðangri 23. desember 1976. Christopher og James buðu henni far og örlög henn- ar voru ráðin. Annan janúar 1977 þáði Tania Kenny, 15 ára, far með tvímenn- ingunum. Þau enduðu heima hjá systur James og hann sat úti í bíl en Christopher og Tania fóru inn. Þeir grófu Tanieu síðar sama kvöld. Hinn 21. janúar beið 16 ára stúlka, Juliet Mykyta, eftir strætó í Adelaide. Hún þáði far með Christoph- er og James. Að sögn James kyrkti Christopher Juliet. Líkamsleifar henn- ar fundust síðar við Truro. Örlög Sylvíu Pittman urðu þau sömu. Hún var myrt 6. febrúar, 1977, eftir að hún lenti í klóm tvímenning- anna þar sem hún beið eftir lest á lest- arstöð í Adelaide. Vicki Howell var 26 ára fráskilin kona. Hún var, að sögn James, alveg til í fara með þeim til Nuriootpa – smá ævintýri hélt hún. Hún var grafin við Truro. Connie Iordanides, 16 ára, var myrt 9. febrúar og grafin við Truro. Deborah Lamb, 20 ára, reyndi að húkka far 12. febrúar og hélt Deborah að lánið léki við hana þegar Christoph- er og James sáu aumur á henni. Leiðin lá á stað sem heitir Port Gawler og hún var grafin þar. Allar voru konurnar kyrktar en grunur leikur á að síðasta fórnarlamb- ið, Deborah Lamb, hafi verið kviksett. Dómur og dauði James Miller var síðar sakfelldur fyr- ir sex morð af sjö og fékk sex lífstíðar- dóma. Hann hefði átt möguleika á reynslulausn á næsta ári en á þann möguleika mun ekki reyna. James Miller fór yfir móðuna miklu þann 21. október, 2008, í kjölfar lifrarbilun- ar vegna lifrarbólgu C. Þegar þar var komið sögu hrjáði hann einnig blöðru- hálskrabbamein og lungna og því varla hægt að segja að hann hafi verið heil- brigt lík eftir að hann skildi við 68 ára að aldri. n n Samkynhneigður karlmaður og siðblindingi tóku höndum saman n Myrtu sjö ungar konur TRURO-MORÐIN Christopher Worrell Sjarmerandi og stórhættulegur siðblindingi. Hugfanginn af Christopher James Miller fékk sex lífstíðardóma. Kjarrlendið við Truro Fórnarlömb Christophers og James; Deborah, Julie, Veronica, Connie, Sylvia, Vicki og Tania. „ ... og hélt Deborah að lánið léki við hana þegar Christoph- er og James sáu aumur á henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.