Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 45
Menning 33Helgarblað 3.–5. maí 2013 „Óþreytandi og á nóg eftir“ Iron Man 3 Leikstjóri: Shane Black „Þessir þættir fylla mann þakklæti fyrir hversdagslífið“ Walking Dead Skjár einn „Þrjú ný leikskáld og eitt efnilegast“ Núna! Borgarleikhúsið Leitar sannleikans í umdeildu sakamáli sem margir koma að. Þess vegna eru Guðmundar- og Geirfinns- málin svona áhugaverð. Hug- myndin kviknar út frá vinnslu- aðferðinni, ferlinu. Sú sköpun að vinna upp úr öllum þessum málsskjölum og textum stendur svo enn yfir og mun gera þar til á frumsýningunni. Hver dagur er ný leit, ferðalag.“ n Lab Loki Leikverk eftir Rúnar Guðbrandsson og Sjón. Leikstjórn: Rúnar Guðbrandsson. Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger. Tónlist og hljóðhönnun: Guðni Franzson. Leikarar: Arnar Jónsson, Árni Pétur Guðjónsson, Birna Hafstein, Friðrik Friðriksson, Stefán Hallur Stefánsson, Magnús Jónsson, Hilmir Jensson, Svandís Dóra Einarsdóttir, Þorsteinn Bachmann og fleiri. Verkið er frumsýnt í Þjóðleikhúsinu, Kúlunni, þann 4. apríl. Leikstjórinn Rúnar Guðbrands- son, leikstjóri og höfundur verksins. „Markmiðið er ekki að leysa Guðmundar- og Geir- finnsmálin heldur bregða á þau birtu S cheisse, scheisse, scheisse,“ segir maðurinn við hlið mér. A Mighty Heart kemur seint í mark. Ég hafði veðjað á hann líka. Sigurvegarinn reynist vera Severin, sem er nefndur í höf- uðið á upphafsmanni masókismans í bókmenntum. Það hefði mátt segja sér að sá yrði harðast barinn áfram. Veðreiðar eru afar vinsælar í Þýskalandi þessa dagana, þó að tímabilið hafi byrjað seint í ár sökum erfiðs vetrar. Það er ekki lengur bara afdankaður aðall sem stundar veð- hlaupabrautina, heldur er hér að finna þverskurð samfélagins. Hér má sjá fjölskyldufólk sem kemur til að sýna börnunum hestana frekar en til að þátt í veðmálunum, og allt upp í langt leidda spilafíkla eins og þann sem stendur við hlið mér. Stjörnustríð stóðhestanna Lágmarksveðmálið er aðeins 50 sent fyrir að veðja á fyrsta sætið, en borgi maður helmingi meira er nóg að sá sem maður valdi lendi í ein- hverju af þremur efstu sætunum. Í næsta umgang ákveð ég að hafa vað- ið fyrir neðan mig og set tvær evrur á að Anakin Skywalker verði í fyrsta til þriðja sæti. Áður en að keppni hefst gefst tækifæri til að kanna hestana og sjá þá teymda af stað. Rétt eins og nafni hans í Stjörnustríðsmyndunum virð- ist Anakin eiga við reiðivandamál að stríða og lætur illa að stjórn. Ég vona að þetta skili sér í glæstum árangri á veðhlaupabrautinni. Dvergvaxinn Darth Maul gengur næstum á mig en reynist ekki vera knapi Anakin, heldur einungis lítill strákur málað- ur í framan að reyna að koma auga á fararskjótana. Litlir menn á stórum hestum Knaparnir stíga fram og koma sér fyr- ir. Þeir eru vissulega lágvaxnir eins og sögur herma, og mynda skemmtilega andstæðu við íslenska reiðmenn. Ís- lendingar virðast risavaxnir á kjána- lega litlum hestum sínum, en hér sýnast reiðmennirnir dvergar þegar þeir setjast á bak glæstum fákum. Til að auka við myndina eru ístöðin afar hátt uppi, og menn standa upp- réttir þegar keppni hefst. Hver knapi ber sinn eigin einkennisbúning til að aðskilja hann frá öðrum. Riddar- inn sem situr Anakin heitir Viktor Schulepov og er í bláu með hvítum stjörnum, örlítið Bandaríkjalegur að sjá. Hestunum er raðað í byrjunar- hliðið eins og byssukúlum í skamm- byssu. Hleypt er af, og allir þeysast af stað í einu. Úr fjarlægð líta þeir út eins og leikfangahestar á teinum þar sem hver fylgir öðrum, en þegar nær markinu dregur gefa allir í og keppn- in verður hnífjöfn. Mátturinn er ekki með Anakin þennan daginn, hann endar ekki meðal hinna þriggja efstu. Konudagur og kappreiðar Það eru enn fjörutíu mínútur í næsta leik, svo ég held af stað í bjórgarðinn sem minnir nánast á paródíu af Þýskalandi og hefur lítið breyst síð- an Hoppegarten þessi var opnaður af sjálfum Bismarck árið 1868. Feitir menn standa í röðum eftir bjór og pylsum á meðan lúðrasveit spilar af palli í miðjunni. Fáir gera sér ferð á kokkteilbarinn, en þar ku verða breyting á eftir tvær vikur þegar sér- stakur konudagur verður haldinn hér. Þar er ekki aðeins keppt í veð- reiðum, heldur verður einnig skraut- legasti hattur gesta valinn. Kven- kynsknapa má þó finna hér í dag. Ég og Daninn fáum okkur pylsu og bjór. „Þetta er lag úr Olsenbandet- myndunum,“ segir Daninn glaður þegar lúðrasveitin hefur leik að nýju. Við höldum aftur af stað að útsýnis- pöllunum og í þetta sinn veðja ég á I Do. Með hverri keppni er byrjunar- reiturinn færður aðeins nær mark- inu og kapphlaupinu er lokið á auga- bragði. Bónorðinu er svarað, í þetta sinn reynist sá sem ég veðjaði á með- al hinna þriggja efstu. Veðhlaup eru eins og ástin, allt er lagt undir og er alltof fljótt yfirstaðið, en stundum er maður heppinn. Ástin er örkumla Ölvaður af sigrinum veðja ég næst á L‘Amour. Fyrst bónorðið var svo vel heppnað hlýtur að vera hægt að treysta á ástina. Svo reynist ekki vera. L‘Amour er veikur og því dæmdur úr leik. Í staðinn veðja ég á Rule Britt- ania. Breska heimsveldið hefur átt betri daga og endar í síðasta sæti. Veðreiðum dagsins er lokið, og ég tek miðann og held af stað til að fá vinningsféð greitt út. Vinningurinn reynist vera þrjár evrur og tíu sent í smáu. Veðreiðar eru eins og ástin, mikil eftirvænting en síðan hálfgerð vonbrigði þegar uppi er staðið. n Eftir Val Gunnarsson Anakin „Rétt eins og nafni hans í Stjörnustríðsmyndunum virðist Anakin eiga við reiðivanda- mál að stríða og lætur illa að stjórn.“ Dagur á veðbrautinni n Veðreiðar vinsælar í Þýskalandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.