Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2013, Side 64
Betri
Píratar!
Lokuð inni í
Boston
n Gréta Mjöll Samúelsdóttir
knattspyrnukona var stödd í
Boston þegar sprengjuárásin
var gerð þar fyrr í mánuðinum.
Hún var þar ásamt foreldrum
sínum og kærasta en hún var að
ljúka mastersnámi í stafrænni
fjölmiðlum frá Northeastern-
háskólanum. Séð og heyrt fjallar
um þetta en þar lýsir Gréta
Mjöll ástandinu í borginni eftir
sprengjurnar. Hún segir
að borgin hafi verið
hálflömuð og þau hafi
verið lokuð inni í einn
og hálfan sólarhring
á meðan lögreglan
leitaði sprengju-
mannsins í
hverfinu. Gréta
Mjöll er dóttir
Samúels Arnar
Erlingsson-
ar, fyrrverandi
íþróttafrétta-
manns.
Í karlafansi
n Fagurkerinn og ritstjóri Home
Magazine, Þórunn Högnadóttir,
kann svo sannarlega að njóta
lífsins en hún skellti sér á grill-
námskeið fyrir helgi. Þórunn er
matgæðingur mikill og á nám-
skeiðinu lærði hún að fullkomna
nautasteikina á grillinu. Það var
ekki til baga að hún var um-
vafin körlum, eina konan í þrjá-
tíu manna hópi, en
þeirra á meðal
var eiginmaður
hennar, Beisi
Gunnarsson fast-
eignasali.
Sultuslakur og
spakur
n Gleðigjafinn Hemmi Gunn er
staddur erlendis og er að leggja
lokahönd á ævisögu sína sem
hann skrifar ásamt blaðamannin-
um Orra Páli Ormarssyni. „Er kom-
inn til Paradísareyjar í Suðaustur-
Asíu með léttri viðkomu í Dubai,“
segir Hemmi á Facebook-síðu
sinni og lætur vel af dvölinni. „Er
algjörlega sultuslakur og spakur
á þessum yndislega stað þar sem
brosið virðist ekki
geta farið af inn-
fæddum!“ segir
hann og spyr
hvort við getum
ekki gert þetta
líka því þá væri
heimurinn
betri stað-
ur.
P
íratar standa fyrir beint lýð-
ræði og vilja sjá það í öllum
formum sem bjóðast,“ segir Jón
Þór Ólafsson, nýr þingamaður
Pírata. Flokkurinn hefur ákveðið að
skuldbinda sig til að leggja fram hug-
myndir sem almenningur setur inn
á vefinn Betra Ísland, sem þingmál
á Alþingi. „Þannig gefst kjósendum
tækifæri til að koma að ákvörðunum
landsins yfir allt kjörtímabilið með
samráðslýðræði, í stað þess að taka
þátt aðeins á fjögurra ára fresti,“ segir í
fréttatilkynningu frá Pírötum.
Jón Þór bendir á að vefsvæðið Betri
Reykjavík hafi sannað sig hér á landi og
svipuð kerfi hafi gengið vel úti í heimi.
Til að mynda í Eistlandi þar sem slíkt
kerfi sé notað við gerð nýrrar stjórnar-
skrár. Vefurinn Betra Ísland var settur í
loftið í lok árs 2011 og er því ekki alveg
nýr. Píratar hafa hins vegar hug á því
að efla hann enn frekar og eru í sam-
starfi við hönnuði vefjarins.
„Þetta hefur gefist vel þegar fólk
sér að það verði eitthvað um þeirra
mál. Þegar fólk sér að sú vinna sem
það leggur í beina lýðræðið skili sér í
beinu lýðræði.“ Jón Þór vísar til ákvæð-
is í drögum að nýrri stjórnarskrá þar
sem segir að tvö prósent þjóðarinnar
geti lagt fram þingmál og er það mál
sem Píratar leggja mikla áherslu á. „Við
ákváðum bara að taka forskot á sæl-
una, þangað til það er komið í stjórn-
arskrá að gera þetta svona.“ Hann seg-
ir frábært ef hægt verður að ræða þau
mál á þingi sem rata á toppinn á vefn-
um hverju sinni og jafnvel ná um þau
þverpólitískri sátt. Ekki hefur ákveðið
hve margir þurfi að styðja hugmynd-
ir á Betra Ísland-síðunni til að Píratar
leggi þær fram sem mál á þingi. Sú
ákvörðun verði partur af stefnumót-
unarvinnu Pírata. solrun@dv.is
Píratar taka forskot á sæluna
n Þingmennirnir skuldbinda sig til að leggja fram þingmál af Betra Íslandi
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 3.–5. Maí 2013 49. tbl. 103. árg. leiðb. verð 659 kr.
Efla beint lýðræði Jón Þór vonast til að
hægt verði að ræða málin á þingi og ná um
þau þverpólitískri sátt.