Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Side 13
Helgarblað 24.–27. janúar 2014 Fréttir 13
norðurslóðir
n Stórveldin nýta sér vanþekkingu á umhverfismálum n Ísland aftarlega á merinni
M
álefni norðurslóða voru í
brennidepli í liðinni viku
og þá sérstaklega hvað
varðar leit, vinnslu og nýt-
ingu orkuauðlinda norð-
ursins. Efnt var til mótmæla í Þjóð-
menningarhúsinu. Tilefnið var stefna
stjórnvalda varðandi olíuleit og olíu-
vinnslu á Drekasvæðinu og undir-
skrift þriðja og síðasta sérleyfis sem
Orkustofnun gaf út vegna olíuleitar
þar. Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Guðni
A. Jóhannesson orkumálastjóri og
fulltrúar frá íslensku útibúi kínverska
orkufyrirtækisins CNOOC ásamt Ey-
kon Energy og Petoro Iceland skrif-
uðu undir leyfið.
Mótsagnakennd
stefna ríkisstjórnar
Umhverfissamtökin sem stóðu að
mótmælunum krefjast þess að ríkis-
stjórn Íslands og Alþingi hætti tafar-
laust við allar áætlanir um vinnslu
olíu og gass innan efnahagslögsögu
landsins með tilliti til þess að lofts-
lagsbreytingar séu stærsta vanda-
mál sem mannkyn stendur frammi
fyrir. Studdu samtökin sig við fimmtu
skýrslu Vísindanefndar Sameinuðu
þjóðanna sem sem kom út s.l. haust
og tók að þeirra mati allan vafa af
um að loftslagsbreytingar eru raun-
verulegar og að þær stafi ótvírætt af
mannavöldum.
Benda þau á að alvarlegustu
áhrifin fyrir afkomu Íslendinga sé
súrnun sjávar vegna síaukinnar los-
unar koltvísýrings út í andrúmsloft-
ið en sem mun hafa alvarleg áhrif á
fiskistofna við strendur landsins. Þá sé
óupptalið það tjón sem olíuslys inn-
an íslenskrar lögsögu myndi valda en
margfalt erfiðara er að eiga við þess
konar slys við kaldar og myrkar að-
stæður á norðurslóðum, m.a. vegna
efniseiginleika olíu.
„Ríkisstjórn Íslands hreykir sér af
umhverfisvænni orku; selur þá ímynd
út á við á sama tíma og hún hvetur
stórfyrirtæki til þess að leita að olíu til
vinnslu innan íslenskrar lögsögu. Við
mótmælum þessari mótsagnakenndu
stefnu.“
Rannsaka samfélög norðurslóða
Katla Kjartansdóttir og Kristinn
Schram hafa rannsakað samfélög
norðurslóða síðustu ár og þær mót-
sagnir sem ríkja um málefni norður-
slóða. Þau hafa rýnt í hugmynd-
ir og ímyndir sem liggja að baki nýja
norðrinu og ferðast um norðurslóð-
ir í því skyni að grennslast fyrir um
menningu samfélaga. Kristinn og
Katla segjast bæði telja mikilvægt að
styrkja innviði þeirra samfélaga þar
sem stórfyrirtæki seilast eftir ágóða.
Vanmáttur smáþjóða felst stundum
í skorti á menntun og þekkingu en
slíkan vanmátt getur verið auðvelt að
misnota.
Ímyndin er skökk
Katla segir brenna við að talað sé um
þá fjölbreyttu og fjölmörgu hópa á
norðurslóðum eins og þeir hafi eina
rödd.
„Það er margslungnara en svo.
Ímyndin sem lengi hefur verið af þess-
um þjóðum sem frumstæðum er að
sumu leyti skökk og veikir mótstöðu-
aflið hjá þeim þjóðum sem þarna eru.
Það er talað um að þær hafi ekki
afl til þess að taka ákvarðanirnar sem
að snúa að eigin hagsmunum. Það er
auðvitað ekki rétt en þó er nauðsyn-
legt að styrkja innviði þessara sam-
félaga. Þá er ég sérstaklega að hugsa
um Grænland. Samfélagsstrúktúr-
inn er mjög veiklaður eftir nýlendu-
sögu þeirra. Það skiptir máli. Það þarf
að fara í að byggja upp innviði sam-
félagsins. Áður en ráðist er í þá viða-
miklu auðlindavinnslu sem fyrir ligg-
ur. Við Íslendingar ættum að vera að
sinna því hlutverki enn frekar og að-
stoða þessi minni samfélög til þess að
öðlast vigt á meðal stærri þjóða.“
Efins um stóra drauma
Hún segir gróðahugmyndir að sumu
leyti einkenna þær væntingar sem
gerðar eru til þróunar samfélaga á
norðurslóðum og hún er efins um
þær. „Já, ég er efins. Þetta eru stór-
ir draumar og þessi gróðavon of ráð-
andi. Þess vegna finnst mér mikilvægt
að það sé stigið varlega til jarðar. Það
er mín skoðun að náttúran og um-
hverfið þurfi að vera í forgrunni áður
en farið er í miklar framkvæmdir. Við
þurfum að vinna forvinnu og rann-
sóknir vel áður. Því fylgir auðvitað
kostnaður.
Í tengslum við ákvarðanatökuna
þurfa sem flestar raddir að koma að
borðinu og ekki síst þeir íbúar sem á
svæðinu búa. Þeirra raddir eiga líka
að hafa meira vægi í ákvarðanatöku
en aðrar.“
„Frumbyggjar hafa oft lítinn
atbeina í stefnumótun, ekki síst utan
eigin samfélaga,“ segir Kristinn. „Það
er samt meira en oft er látið í veðri
vaka í vestrænum fjölmiðlum þótt það
sé langur vegur í að vera viðunandi.
Þar má nefna þátttöku þeirra í Norð-
urskautsráðinu og Samtök Inúíta á
svæðunum umhverfis norðurpólinn.
Þau samtök voru að nokkru leyti svar
við vaxandi leit að olíu og jarðgasi og
öfgafullum sveiflum í efnahagsþróun
þar að lútandi. Við Íslendingar höfum
að sjálfsögðu sömu hagsmuna að gæta.
Almennt hefur dregið saman með ríkj-
um á norðurslóðum í stefnumótun
til stöðugleika og sjálfbærni. Norður-
skautsráðið er meðal annars sá sam-
starfsvettvangur og margir vilja styrkja
stofnanir þess og gera þær áhrifaríkari.“
Holur hljómur í yfirlýsingum
Hvað varðar umhverfismálin telja þau
þversagnir í opinberum yfirlýsing-
um. „Oft er holur hljómur í yfirlýsing-
um um sjálfbærni á norðurslóðum en
sem betur fer býr stundum alvara að
baki,“ segir Kristinn.
„Það eru alltaf ákveðin átök á milli
efnahags- og atvinnuþróunar og um-
hverfisverndar enda hvoru tveggja
gert hátt undir höfði í norðurslóða-
stefnu Íslands.“
Yfirleitt halli þó á umhverfis-
verndina. „Ísland hagar sér oft eins
og dæmigert smáríki sem sækist eft-
ir ábyrgð á þessum mikilvægu mál-
efnum, eykur svo bara á vandann en
kennir öðrum um. Dæmi um þetta er
hlutfallslega hár kolefnisútblástur Ís-
lendinga vegna stóriðju sem núver-
andi ríkisstjórn vildi sjá meira af.“
Einsleit ímynd
og klisjur norðursins
En hvaða hugmyndir skyldu Ís-
lendingar hafa af íbúum norðurslóða?
Kristinn og Katla sammælast um að
sú ímynd sé sjálfsagt heldur einsleit
Katla nefnir ýmsar mýtur í því
samhengi: „Sterkustu klisjurnar eru
að á norðurslóðum búi frumstæðar
þjóðir sem séu í óvenju sterkum
tengslum við hrjóstruga og hrikalega
náttúru. Þessari klisju er víða haldið
á lofti enda kemur hún sér vel þegar
kemur að markaðssetningu og ferða-
mannaiðnaði. Íslensk fyrirtæki leika
sér oft með slíkar klisjur og stundum
blasa við okkur einhvers konar „villt
náttúrubörn“ á strætóskýlum borgar-
innar. Ég tel mikilvægt að við áttum
okkur á því að þjóðir á norðurslóð-
um eru mun nútímalegri og fjölþjóð-
legri en ímyndin gefur til kynna. Við
erum auðvitað langt frá því að vera
einsleitur hópur. Það kom okkur
Kristni til dæmis á óvart hve samfélag-
ið í Nuuk er að sumu leyti nútímalegt
og fjölmenningarlegt og hversu sam-
ofið það er okkar. Götulífið þar bar
til dæmis með sér mun meiri menn-
ingarlega fjölbreytni og tískumeðvit-
und en við bjuggumst við. Það kom
líka á óvart hversu efnishyggjan er þar
áberandi í efri lögum samfélagsins og
unga fólkið virðist vera upptekið af því
sama og víða annars staðar: merkja-
vöru og græjum. Þar eru þó líka áber-
andi sterkar andstæður á milli ólíkra
samfélagshópa og bilið milli þeirra
lægst settu og hinna sem betur hafa
það er sláandi.“
Auðvelt að nýta sér vanmátt
Mikilvægt er að styrkja innviðina, telja
bæði Kristinn og Katla.
„Ég myndi leggja áherslu á að
styrkja innviðina og efla menningar-
samstarf,“ segir Katla. „Ég held að
það sé algjört lykilatriði og þar er
menntun grundvallaratriði. Bæði
grunn-, framhalds- og ekki síst há-
skólamenntun. Fólk þarf líka að hafa
tækifæri til þess að eiga gott líf á
heimaslóðum eftir að það hefur lokið
menntun sinni. Þá skiptir umhverfis-
vitundin einnig verulega miklu máli,
hún á alltaf að vera í fyrsta sæti. Ef
það er menntunar skortur á þessum
svæðum varðandi afleiðingar meng-
unar og loftslagsbreytinga þá er auð-
velt fyrir stórfyrirtæki að nýta sér þann
vanmátt. Að byggja upp menntun og
menningarlegan styrk verður ekki gert
á einni nóttu en öll skref í þá átt eru já-
kvæð og mikilvæg. Þá hafa samfélög
á norðurslóðum oft mikla þekkingu
fram að færa – til dæmis hvernig að-
lagast megi breytingum á náttúrufari.“
Nýtt nám í
vestnorrænum fræðum
Kristinn er forstöðumaður Rann-
sóknaseturs um norðurslóðir.
Rannsóknasetrið tengir saman
þverfaglegar rannsóknir um mál-
efni norðurslóða. Það starfar innan
Alþjóðamálastofnunar Háskóla Ís-
lands og leggur áherslu á hlutverk
ríkja, stofnana og óopinberra aðila í
stjórnar háttum, menningu og sam-
félagi á norðurslóðum. Það hefur líka
það að markmiði að styrkja rann-
sóknasamstarf og umræðu um mál-
efni norðurslóða á Íslandi með opnum
fyrirlestrum, ráðstefnum, útgáfustarf-
semi og þverfaglegum námskeiðum,
og með því efla samstarf á þessu sviði
við innlend og alþjóðleg tengslanet.
„Við höfum ekki síður áhuga á
vestnorrænum málefnum. Við tökum
þátt í rannsóknum og uppbyggingu
sameiginlegs meistaranáms með há-
skólunum á Akureyri, Nuuk, Þórshöfn
og Nordland í Noregi. Meistaranemar
munu geta ferðast á milli þessara há-
skóla og náð sér í gráðu í vestnorræn-
um fræðum með áherslu á sjálfbærni
og stjórnun á norðurslóðum.“ n
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
„Maður spyr sig,
hver græðir á því
að byggja upp þessi sam-
félög og verja þau ágangi
stórfyrirtækja og stór-
velda?
Katla og Kristinn rannsaka norðurslóðir Katla Kjartansdóttir og Kristinn Schram hafa rannsakað samfélög norðurslóða síðustu ár
og þær mótsagnir sem ríkja um málefni norðurslóða.
Vanmáttugar
Risi í olíuleit
Þriðja stærsta fyrirtæki Kína
China National Offshore Oil Corporation
CNOOC, er þriðja stærsta ríkisolíufélagið
í Kína. Hjá því starfa nálægt 100 þúsund
manns. Það hefur sérhæft sig í að bora
eftir olíu og gasi á hafsbotni og er stærst
á því sviði í Kína.
Það er stærsti aðilinn í olíuleit á Dreka-
svæðinu hingað til.
Það skilar miklum hagnaði á ári hverju,
á síðasta ári nam jafnvirðið ríflega 670
milljörðum íslenskra króna.
CNOOC verður í samstarfi við Eykon
Energy sem er í eigu Íslendinga og
Petoro Iceland sem er norskt ríkisolíu-
fyrirtæki.
Eykon eignast 20% hlut í leitarverkefn-
inu á móti 80% hlut CNOOC.
Fari svo að olía finnist á svæðinu munu
fyrirtækin greiða helming af veltu og
hagnaði til íslenska ríkisins í skatt.
Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og eig-
andi Ursus, er einn af stærstu eigendum
Eykon og jafnframt stjórnarformaður
félagsins. Ásamt honum eiga þeir
Gunnlaugur Jónsson og Terje Hagevang
stærstan hlut í félaginu.