Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Blaðsíða 30
Helgarblað 24.–27. janúar 201430 Karlmenn
J
akob Jakobsson og Guðmund
ur Guðjónsson hafa verið
saman í rúm 30 ár og hafa árum
saman haft það fyrir sið að
verja bóndadeginum í sumar
bústað sínum og borða heimatilbú
inn þorramat.
Árið var 1984. Síldarvertíð. Jakob
Jakobsson vann þá sem kokkur í
mötuneyti á Djúpavogi en hann
varð árið 1994 fyrsti karlmaðurinn til
að útskrifast sem „smørrebrødsjom
fru“ frá hinu heimsfræga veitinga
húsi Idu Davidsen. Það var líf og
fjör á síldarplaninu á Djúpavogi.
Strákarnir og mennirnir sem tóku
tunnurnar, sem voru fullar af síld,
settu merki í stígvél kvennanna til að
telja tunnurnar. Guðmundur Guð
jónsson var einn af þeim. „Hann var
sá alsælasti,“ segir Jakob.
Þarna hittust þeir, Amor þvældist
á milli þeirra og það var einfaldlega
ekki aftur snúið því Amor hitti í mark.
„Við erum líklega með síðustu
pörum sem hafa kynnst á síldar
plani,“ segir Jakob. Þeir Guðmundur
opnuðu síðan Jómfrúna í Lækjargötu
árið 1996 þar sem fæst ekta danskt
„smørrebrød“.
Á þjóðlegu nótunum
Jakob segir að þeir hafi fljótlega far
ið að gera eitthvað sérstakt á bónda
daginn en þó ekki fyrstu árin.
„Við ólumst báðir upp við íslenska
matarhefð og finnst gaman að borða
þorramat sem við útbúum á haustin
með mæðrum okkar. Við leggjum
jafnvel í súr og reykjum eigið hangi
kjöt. Við gerum gjarnan rúllupylsur
úr lambaslögum og kryddum vel og
einnig lundabagga sem við setjum í
súr. Við höfum í mörg ár reykt okkar
eigið hangikjöt í nóvember – venju
lega um 25 hangilæri „ og gefið fjöl
skyldu og vinum. Það er mikilvægt
að halda í gamla og þjóðlega siði.
Svo getum við verið eins nútímaleg
og nýjungagjörn þar að auki eins og
okkur sýnist.“
Þorramatinn fara þeir svo með
á bóndadaginn í sumarbústaðinn
sem þeir eiga austur í sveit og halda
tveggja manna þorrablót.
„Við reynum að hafa svolítið þjóð
legt í bústaðnum. Við setjum dúka af
eldri gerðinni á borð, klæðum okkur
ekki alveg í nýjasta móð heldur svo
lítið þjóðlega og það er ekkert verra
að spila íslensk lög svo sem eftir
Sigvalda Kaldalóns og Inga T. Þetta er
á þjóðlegu nótunum enda algjörlega
þjóðlegur siður og óþarfi að módern
isera hann of um.“
Þeir kveikja á kertum og njóta
svo heimatilbúna þorramatarins og
drekka bjór eða snafs.
Vináttan mikilvæg
Jakob segir að sér finnist að pör eigi
að taka bóndadaginn pínulítið hátíð
legan. „Mér finnst að það eigi að taka
hann frá fyrir, rifja upp gamla tíma og
eiga góða stund saman. Mér finnst
það vera mikilvægt því fólk er oft svo
upptekið.“
Rúmlega 30 ár … hvað finnst Jak
obi skipta máli til að halda góðu sam
bandi gangandi?
„Vinátta er forsenda langs sam
bands. Við erum sannarlega góðir
vinir; vissulega giftir en vináttan er
giftingunni sterkari. Henni má auð
veldlega slíta en ekki ævarandi vin
áttu. Nú eigum við litla afastelpu sem
heitir Mia og allt bendir til að hún eigi
eftir að deila með okkur bóndadegi
og þorramat enda kröftug stelpa.
Við Guðmundur höfum starf
að saman og því verið saman allan
sólar hringinn í um 30 ár og við ætl
um að halda því áfram og hlökkum til
að eldast saman.“ n
Útbúa þorramatinn
með mæðrum sínum
Jakob og Guðmundur halda bóndadaginn heilagan í sumarbústaðnum„Við erum líklega
með síðustu
pörum sem hafa
kynnst á síldarplani.
Þjóðlegir
Jakob Jakobsson
og Guðmundur
Guðjónsson.
Mynd SiGtryGGur Ari
„Við reynum
að hafa
svolítið þjóðlegt
í bústaðnum
Bjórbumban er mýta
Ekkert sem lætur kaloríur í bjór setjast framan á fólk
S
amkvæmt tékkneskri
rannsókn frá 2003 eru
engin tengsl á milli þess
hversu mikið magn af
bjór manneskja drekkur og
hversu mikið magamál henn
ar er. Kaloríumagn áfeng
is er helst að finna í alkóhóli
drykkjarins. Það eru ekki fleiri
kaloríur í bjór en rauðvíni
til að mynda en sökum þess
að gjarnan er drukkið meira
magn af bjór en víni verður
kaloríuinntakan umfangs
meiri þegar bjór er drukk
inn. Þetta kemur fram á vefmiðlinum
Popular Science.
Hvers kyns lífsstíll getur leitt til þess
að manneskja bætir á sig fitu og fer
það til að mynda eftir erfðum hvar á
líkamanum fitan sest. Það er ekki svo
að drekki einhver bjór í óhófi verði
það óumflýjanlega til þess að viðkom
andi fái svokallaða bjórbumbu. Það er
ekkert sérstakt við kaloríur í bjór sem
lætur þær setjast beint framan á þann
sem drekkur hann. Mýtan um bjór
bumbuna lifir þrátt fyrir þessar stað
reyndir ennþá góðu lífi. n erlak@dv.is
Sniðug smáforrit
Lærðu að hnýta bindishnút
How to tie a tie
Smáforrit eftir Damir Nigomedyanov
Verst geymda leyndar
mál karlmanna er
vankunnátta þeirra til að hnýta
bindishnút. Það er að minnsta
kosti ekki af tilviljun einni saman
að tíu milljónir manna hafa náð
í smáforritið How to Tie a Tie
og nota eiginleika þess óspart.
Forritið er einfalt í notkun og er
karlmaðurinn leiddur í gegnum
myndrænt ferli, skref fyrir skref,
og fyrr en varir hefur myndarleg
ur bindishnútur litið dagsins ljós.
Þeim sem ná ekki tökum á þeim
leiðbeiningum gefst kostur á að
horfa á stutt kennslumyndbönd.
Sláðu í gegn í eldhúsinu
How to Cook Everything
Smáforrit eftir Culinate, Inc.
Margir karlmenn fá
kvíðahnút í magann þegar kemur
að því að framreiða dýrindis rétt
í eldhúsinu. Smáforritið er byggt
á samnefndri metsölubók eftir
blaðamanninn Mark Bittman,
sem skrifar fyrir New York Times.
Forritið inniheldur yfir tvö þús
und uppskriftir sem eiga það sam
eiginlegt að vera einfaldar og eru
því tilvaldar fyrir karlmenn sem
kunna því illa að verja tíma í eld
húsinu. Hver veit nema áhugi og
metnaður kvikni í kjölfarið og fyrr
en varir verði til nýr sælkeri.
Hugsaðu um peninginn
Meniga
Smáforrit eftir Meniga ehf.
Íslenska
hugbúnaðarfyrir tækið
tryggir notanda fullkomna sýn yfir
fjármálin. Það hefur loðað við unga
karlmenn að eyða um efni fram
þegar skynsamlegra er að leggja
fé til hliðar með framtíðaráform í
huga. Fyrirtækið leggur upp úr því
að sparnaður þurfi ekki að vera
sársaukafullur og í forritinu má
finna sparnaðarráð sem eru sniðin
að neyslumynstri hvers og eins.
Frítt
Frítt
4.99 dollarar