Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Blaðsíða 21
Helgarblað 24.–27. janúar 2014 Fréttir Erlent 21 H æstiréttur Víetnams dæmdi á mánudaginn 30 manns, 21 karlmann og 9 konur, til dauða fyrir eitur­ lyfjasmygl. 59 til viðbótar fengu vægari dóma. Þrettán voru dæmdir í lífstíðarfangelsi og hinir 46 hlutu misþungar refsingar; allt frá skilorðsbundnum refsingum til 20 ára óskilorðsbundinna fangelsis­ dóma. Þar með er stærsta dómsmál í réttarsögu Víetnams til lykta leitt, en réttað var í 17 daga yfir sakborn­ ingunum 89. Dómfelldu, sem allir eru Víetnamar, tilheyra fjórum stór­ um eiturlyfja smyglhringjum og hin­ ar refsinæmu athafnir snerta inn­ flutning á heróíni og öðrum hörðum fíkniefnum á milli Laos, Kína og Ví­ etnams. Brotin voru framin á löngu tímabili, á milli áranna 2006 og 2012, en handtakan var framkvæmd í ágúst í fyrra. Alls lagði lögreglan hald á 12 tonn af heróíni, auk mikils magns annarra efna; tuttugu lúxus­ bifreiðar og fjöldann allan af vopn­ um. Höfuð paur eins af glæpahringj­ unum fjórum leikur enn lausum hala. Hans er nú leitað. Þungar refsingar Sökum fjölda sakborninga og alvar­ leika brotanna voru réttarhöldin haldin í utan dyra, í stórum garði víetnamsks fangelsis, þar sem flestir sakborninganna voru vistað­ ir. Mikill fjöldi her­ og lögreglu­ manna var viðstaddur réttarhöldin, til að tryggja að allt færi vel fram. Refsingar fyrir fíkniefnalagabrot eru óvíða þyngri en í Víetnam. Sem dæmi hafa dómarar heimild til að dæma hvern þann til dauða sem gripinn er með yfir 600 grömm af heróíni eða yfir 20 grömm af ópíum. Yfir 700 manns, þar á meðal nokkr­ ir útlendingar, bíða nú örlaga sinna á hinum svokölluðu „dauðagöng­ um“ fangelsa landsins – flestir fyrir fíkniefnalagabrot. Margfalt fleiri sitja inni fyrir vægari fíkniefnalaga­ brot. Samkvæmt opinberum tölum eru um 180.000 eiturlyfjaneytendur í landinu. Áhyggjufull mannréttindasamtök Þótt ríkið sjálft gefi ekki út tölfræði yfir fjölda dauðadóma á hverju ári, telja ýmis mannréttindasamtök, þar á meðal Amnesty International, að 86 dauðadómar hafi fallið árið 2012 og að 5 aftökur hafi verið fram­ kvæmdar sama ár. Amnesty hefur gefið út yfirlýsingu vegna dauðadó­ manna þrjátíu, þar sem samtökin lýsa vonbrigðum sínum. „Við erum á móti dauðarefsingum – alltaf og alls staðar,“ segir starfsmaður sam­ takanna, Rupert Abbott, í samtali við Bangkok Post og heldur áfram. „Í stað þess að halda áfram að fella dauðadóma á dauðadóma ofan, eiga víetnömsk stjórnvöld að sjálf­ sögðu að fella þessi hegningarlaga­ ákvæði úr gildi, eins gert hefur verið víðast hvar annars staðar í heimin­ um.“ Samkvæmt tölum frá Amnesty voru alls 1.722 manns dæmdir til dauða árið 2012 í 58 löndum. n Uggandi vegna dauðarefsinga n Þungar refsingar fyrir eiturlyfjasmygl í Víetnam Baldur Eiríksson baldure@dv.is Selur í skógi Óvenjuleg sjón blasti við Susönnu Jensen, 25 ára norskri konu, þegar hún var á gangi með hundinn sinn í skóglendi við strandbæinn Moss við suðausturströnd Noregs á dögunum. Þreytulegur selkópur mætti henni á göngunni og virtist sá hafa villst á leið sinni til sjávar. „Hann virtist vera ánægður að sjá mig,“ segir Jensen í samtali við norska fjölmiðla. Eftir að hafa eytt klukkustund í að reyna að ná selnum og beina honum í átt til sjávar gafst Jensen upp vegna þess að hundinum hennar var orðið nokkuð kalt. Faðir hennar fann kópinn skömmu síðar og bar hann til sjávar. Kópurinn stakk sér til stunds og lét sig hverfa. Fjórtán ár fyrir smygl Andrea Waldeck, 43 ára bresk kona, hefur verið dæmd í 14 ára fangelsi í Indónesíu fyrir að smygla 1,4 kílóum af metam­ fetamíni til landsins. Óhætt er að segja að Waldeck hafi slopp­ ið vel því hún átti dauðarefsingu yfir höfði sér. Hún var handtek­ in á hóteli í apríl 2013 og fund­ ust fíkniefnin falin í nærbuxum hennar. Hafði lögregla elt hana af flugvellinum og á hótelið. Fyrir dómi sagði hún að hún hefði ver­ ið beitt þrýstingi af glæpamönn­ um í Kína þaðan sem hún kom með efnin til Indónesíu. Ríki sem leyfa dauðarefsingar Afganistan, Alsír, Bandaríkin, Barein, Bangladess, Barbados, Botsvana, Tsjad, Kína, Austur-Kongó, Egyptaland, Miðbaugs-Gínea, Gambía, Gana, Gínea, Gvæjana, Indland, Indónesía, Íran, Írak, Japan, Jórdanía, Kenía, Kúveit, Laos, Líbanon, Líbería, Líbía, Maldíveyjar, Malasía, Malí, Máritanía, Mongólía, Marakkó, Búrma, Nígería, Norður-Kórea, Pakistan, heimastjórn Palestínu, Katar, Sádi-Arabía, Singapúr, Sómalía, Suður-Kórea, Suður-Súdan, Srí Lanka, Súdan, Svasíland, Taívan, Tansanía, Taíland, Trínidad og Tóba- gó, Túnis, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Víetnam, Jemen, Sambía, Simbabve. „Við erum á móti dauðarefsingum – alltaf og alls staðar Skaut særðan til bana Sænskur lögregluþjónn ákærður fyrir manndráp S ænskur lögregluþjónn sem skaut 24 ára karlmann til bana í fyrrasumar hefur verið ákærð­ ur fyrir manndráp. Atvikið átti sér stað í júlí en lögregla hafði feng­ ið tilkynningu um mann, vopnaðan hnífi, sem gerði sér að leik að ráðast á saklausa vegfarendur í bænum Var­ berg. Réðst hann meðal annars á tvo karla og eldri konu sem síðar lést af sárum sínum. Þegar lögregluþjónar komu á staðinn gekk árásarmaðurinn að þeim og hvatti þá til að skjóta sig. Svo fór að lögregluþjónn skaut tveim­ ur viðvörunarskotum upp í loftið og einu skoti sem missti marks í átt að öðrum fótlegg hans. Maðurinn lét sér ekki segjast og hélt áfram að nálgast lögregluþjónana. Lögregluþjónninn skaut þá fjórða skotinu sem endaði í fótlegg mannsins. Lögregluþjónninn skaut svo fimmta skotinu í kvið hans þegar hann gerði sig líklegan til að skríða í átt að lögreglu. Árásarmaður­ inn lést af sárum sínum á sjúkrahúsi síðar þennan sama dag. Ákæra var gefin út í málinu á mið­ vikudag fyrir manndráp og brot í op­ inberu starfi. Að sögn saksóknara sem fer með málið var ekki réttlætanlegt af lögregluþjóninum að skjóta mann­ inn í kviðinn þegar hann hafði þegar sært hann. Engin ógn hefði stafað af honum vegna skotsársins á fótleggn­ um. Að sögn sænskra fjölmiðla höfðu félagar mannsins tilkynnt ógnandi hegðun hans til lögreglu nokkrum dögum fyrir þennan örlagaríka dag í fyrrasumar. n einar@dv.is Sænska lögreglan Lögregluþjónninn sem um ræðir þurfti ekki að skjóta skotinu sem að lokum varð manninum að aldurtila. Myndin tengist efni fréttarinnar ekki beint. Virðing RéttlætiVR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Samkvæmt lögum VR gerir Uppstillinganefnd tillögu um skipan í trúnaðarráð félagsins. Áhugasamir geta geð kost á sér með því að senda erindi á netfangið uppstillinganefnd@vr.is fyrir kl. 12 á hádegi þann 31. janúar nk. Uppstillinganefnd stillir upp lista til trúnaðarráðs sem endurspeglar félagið eins og mögulegt er hvað varðar aldur, kyn og störf félagsmanna. Einnig verður litið til félagsaðildar og starfa fyrir félagið. Hlutverk trúnaðarráðs VR er að vera stjórn félagsins ráðgefandi varðandi ýmis stærri málefni sem upp koma í starfsemi félagsins svo sem við gerð kjarasamninga og stærri framkvæmda. Uppstillinganefnd VR Viltu leggja þitt af mörkum í starf i VR?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.