Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.2014, Síða 45
Helgarblað 24.–27. janúar 2014 Sport 37
N
afnið Jerome Champa-
gne hringir eflaust ekki
mörgum bjöllum hjá ís-
lenskum knattspyrnu-
unnendum. Nafn þessa
55 ára Frakka komst umræðuna
í vikunni þegar hann tilkynnti að
hann hygðist bjóða sig fram til
forseta Alþjóðaknattspyrnusam-
bandsins, FIFA, en kosningarnar
fara fram í Zurich í Sviss í júní á
næsta ári. Óvíst er hvort sitjandi
forseti sambandsins, Sepp Blatter,
bjóði sig fram að nýju en það þyk-
ir ekki ólíklegt.
Boðar breytingar
Það eru ekki síst frumlegar hug-
myndir Champagne sem vakið
hafa mikla athygli en hann boð-
ar róttækar breytingar á
þessari
vinsælustu
íþróttagrein
heims, ef
hann nær
kjöri.
Þannig
vill
hann
að
tekin verði upp appelsínugul
spjöld og að liðum verði refsað
fyrir að draga í efa heilindi dóm-
ara. Þá megi aðeins fyrirliði við-
komandi liðs eiga orð við dómara.
Áherslur hans eru betur tíundað-
ar hér á síðunni.
Vann náið með Blatter
Þó að Champagne hafi ekki
verið áberandi í umræðunni er
hann alls enginn nýgræðingur
þegar kemur að knattspyrnu. Á
fyrri hluta ævi sinnar starfaði
Champagne í frönsku utanríkis-
þjónustunni og starfaði í sendi-
ráðum Frakka í Bandaríkjunum,
Brasilíu og á Kúbu. Fyrsta alvöru
starf hans , ef svo má segja, í
heimi knattspyrnunnar fékk hann
þegar hann tók að sér ráðgjöf fyr-
ir Michel Platini, núverandi for-
seta Evrópska knattspyrnu-
sambandsins, sem fór fyrir
undirbúningsnefnd
vegna heimsmeist-
aramótsins í Frakk-
landi 1998. Eft-
ir það fékk hann
starf sem al-
þjóðlegur ráð-
gjafi í
höf-
uð-
stöðv-
um FIFA
og vann
sig upp
metorða-
stigann
hægt og bít-
andi. Undir
lok ferils síns þar
var hann orðinn að-
stoðarframkvæmdastjóri
og vann náið með sitjandi
forseta, Sepp Blatter.
Hann starfaði í ellefu
ár hjá FIFA en hætti árið
2010
vegna ósættis við Mohammed
Bin Hammam, fyrrverandi forsta
Asíska knattspyrnusambands-
ins, en á þeim tíma freistaði Bin
Hammam þess að ná kjöri í stól
forseta FIFA. Bin Hammam þessi
komst mikið í umræðuna ári síð-
ar þegar upp komst að hann hafði
boðið knattspyrnusamböndum
ríkja við Kyrrahaf gull og græna
skóga ef þau kysu hann í forseta-
kosningunum.
Hvað gerir Blatter?
Champagne tilkynnti framboð sitt
á blaðamannafundi í London í
vikunni. Þar tók við hann ýmsum
spurningum frá blaðamönnum
og þótti einlægur og hreinskilinn í
tilsvörum. Ef eitthvað er að marka
orð hans á fundinum virðist hann
sjálfur ekki hafa mikla trú á að ná
kjöri í stól forseta FIFA.
„Nei,“ svaraði
Champagne
þegar
hann var
spurður
hvort
hann
hefði
trú á
að ná
kjöri ef Sepp Blatter byði sig fram
gegn honum. Blatter, sem er 77
ára, hefur verið forseti FIFA frá
árinu 1998 en í kosningum sem
fram fóru árið 2011 gaf Blatter það
út að yfirstandandi kjörtímabil
yrði hans síðasta og hann myndi
því láta af embætti árið 2015. Enn
sem komið er hefur Blatter ekk-
ert gefið út um það hvort hann
haldi áfram, en flestir eiga von á
að hann bjóði sig fram að nýju.
Búist er við yfirlýsingu frá Blatt-
er í júní næstkomandi, áður en
heimsmeistaramótið í Brasilíu
hefst.
Stuðningur frá Pele
En af hverju vill Champagne verða
forseti. „Við þurfum breytingu. Við
þurfum lýðræðislegra og virðu-
legra knattspyrnusamband sem
gerir meira,“ sagði Champagne.
„Ég veit ekkert hvort Blatter bjóði
sig fram að nýju en að sjálfsögðu,
fyrir kurteisissakir, lét ég hann vita
af fyrirætlunum mínum. Sumir
segja að ég sé undir áhrifum frá
honum en svo er alls ekki,“ sagði
hann og vísaði í náið samstarf sitt
og Blatters á árum hans hjá FIFA.
Blatter hefur verið endurkjörinn
forseti í þrígang. Því má gera ráð
fyrir að erfitt verkefni bíði hans að
sannfæra aðildarsambönd FIFA
um ágæti sitt. Kosningabarátta
Champagne er rétt skriðin af stað
en meðal þeirra sem hafa lýst yfir
stuðningi við hann má nefna hinn
goðsagnakennda Pele. n
n Jerome Champagne vill róttækar breytingar í fótboltanum n Býður sig fram til forseta FIFA
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Appelsínugult spjald
Hugmyndir Champagne eru
frumlegar. Svona gæti þetta
litið út í alvörunni.
„Sumir
segja að ég
sé undir áhrifum
frá honum en svo
er alls ekki
Hugmyndir
Champagne
n Kvóti verður settur á fjölda erlendra
leikmanna í liðum. Þannig ættu upp-
aldir leikmenn betri möguleika á að ná
lengra.
n Appelsínugul spjöld verði tekin upp.
Leikmenn sem fái þannig spjöld séu
sendir út af vellinum í 2–3 mínútur.
Gulu spjöldin yrðu enn við lýði engu að
síður. Dæmi: Leikmaður fær gult spjald
fyrir brot. Nokkru síðar skorar hann og
klæðir sig úr treyjunni í fagnaðarlátum
eða brýtur aftur af sér. Refsingin yrði
appelsínugult spjald. Rautt spjald fengi
hann fyrir ítrekuð brot.
n Aðeins fyrirliði megi tala við dómara
þegar brot er dæmt. Brot á þessari reglu
myndi gera það að verkum að auka-
spyrnan yrði færð fram um 9 metra.
n Horfið verði frá svokallaðri þrefaldri
refsingu þegar leikmaður rænir sóknar-
mann upplögðu marktækifæri inni í
vítateig. Refsingin felur í sér að víta-
spyrna er dæmd, leikmaður fær rautt
spjald og leikbann. Nánari útfærsla
liggur ekki fyrir.
n Allir frambjóðendur til forseta FIFA
taki þátt í sjónvarpskappræðum.
n Laun forseta FIFA og annarra hátt
settra aðila sambandsins séu opinber.
Hvað segja
sérfræðingarnir?
BBC ræddi við fyrrverandi knattspyrnu-
dómara um hugmyndir Champagnes.
„Þetta er eitthvað sem þyrfti að útfæra
nákvæmlega. Ég held engu að síður að
það geti verið góð hugmynd að senda
leikmenn út af í stutta stund. Ég held að
Alþjóðaknattspyrnusambandið myndi
skoða þessa hugmynd af alvöru,“ segir
George Courtney, sem dæmdi meðal
annars á HM í Mexíkó og Ítalíu 1986 og
1990. Hann segir að brot sem réttlæta
rautt spjald ætti að refsa fyrir með
rauðu spjaldi en appelsínugulu spjöldin
geti verið nokkurs konar millivegur milli
gulra og rauðra spjalda. Roger Milford,
fyrrverandi dómari, sem meðal annars
dæmdi úrslitaleik FA Cup árið 1991, tekur
ekki jafn vel í hugmyndina og segir að
um of mikið inngrip sé að ræða.
Skorar
Blatter
á hólm
Býður sig fram
Kosið verður í embætti
forseta FIFA í júní á
næsta ári. Spurningin er
hvort Champagne verði
ágengt.