Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 2
Helgarblað 31. janúar 20142 Fréttir Dalvegi 24 - 554 4884 - www.iess.is Úrelt stýrikerfi í hraðbönkum n Flestir hraðbankar nota Windows XP n Hætta stuðningi í apríl Þ ann 18. apríl hættir Mircrosoft að styðja Windows XP-stýrikerfið. Það getur haft áhrif á 95 prósent allra hraðbanka í heiminum, að því er fram kemur meðal annars á vefmiðlinum The Verge. Íslenskir bankar sem DV hefur haft samband við vegna málsins eru meðvitaðir um breytingarnar og eru farnir að huga að ráðstöfunum til að bregðast við þessu. Microsoft á Íslandi hvetur not- endur XP til að skipta um stýrikerfi. Útsettari fyrir bilunum Stýrikerfið XP er orðið tólf ára gamalt og nýrri stýrikerfi á vegum Microsoft hafa fyrir löngu tekið yfir. Það kemur kannski einhverjum á óvart en lang- flestir hraðbankar í heiminum nota XP til að keyra forritin sem hraðbank- arnir nota. Þegar stuðningi Microsoft við XP lýkur geta hraðbankar, sem ekki hafa verið uppfærðir, verið út- settari fyrir villum, bilunum og árás- um tölvuþrjóta. Microsoft tilkynnti þó á þriðjudag að þrátt fyrir ákveðið hefði verið að hætta stuðningi við stýrikerfið verði áfram gerðar ör- yggisuppfærslur, eða til 14. júlí 2015. Fram kemur í frétt ATM Market- place að aðeins um 15 prósent þeirra sem reka hraðbanka á heimsvísu hafi gert ráð fyrir að vera búnir að uppfæra stýrikerfin þegar stuðn- ingnum lyki. Munu gera ráðstafanir Haraldur Guðni Eiðsson er upplýs- ingafulltrúi Arion banka. Hann seg- ir að hraðbankar á vegum bankans keyri vel flestir á Windows XP-stýri- kerfi. „Við sem og þjónustuaðilar okk- ar erum vel meðvituð um fyrirætlan- ir Microsoft hvað varðar þjónustu við XP-stýrikerfið og verða því viðeigandi ráðstafanir gerðar í tíma,“ segir hann í svari við fyrirspurn DV um málið. Kristján Kristjánsson hjá Lands- bankanum segir að þar á bæ hafi menn ekki teljandi áhyggjur af stöðu mála. XP-kerfið hafi keyrt lengi og muni einfaldlega gera það áfram, hvað svo sem Microsoft ákveði að gera. „Við erum hins vegar, eins og fleiri, að vinna að yfirfærslu í nýtt kerfi sem stendur en það er ekki meiriháttar aðgerð,“ segir hann og bætir við að viðskiptavinir verði aldrei varir við hana. Hann bendir á að bankinn hafi á nokkrum stöðum tekið í notkun nýja kynslóð af hrað- bönkum, banka sem hægt sé að nota til mun fleiri verka en áður. Þeim muni halda áfram að fjölga. Eiga að virka áfram Helga Dögg Björgvinsdóttir, markaðs stjóri Microsoft á Íslandi, segir að þar á bæ hafi verið unnið að því undanfarið að upplýsa við- skiptavini um þessar breytingar hjá Microsoft. „Ég get ekki sagt hver staðan er en bankarnir eiga að vita af þessu.“ Hún bendir á að hraðbank- arnir eigi að virka áfram þó stuðningi verði hætt í apríl. Hún hvetur aftur á móti almenning til að gera ráðstaf- anir og uppfæra stýrikerfin sín. „Það er mikil vægt að huga að þessu til að öryggi gagnanna sé í lagi. Við ráð- leggjum öllum að skipta um stýri- kerfi fyrir 18. apríl.“ Við þetta má bæta að í apríl hættir Microsoft einnig að styðja Office 2003. n „Ég get ekki sagt hver staðan er en bankarnir eiga að vita af þessu Baldur Guðmundsson baldur@dv.is Hefur áhrif um allan heim Fáir þjónustuaðilar hraðbanka á heims- vísu hafa gripið til ráðstafana. Vinna í málinu Landsbankinn vinnur að því að taka í notkun nýja kynslóð hraðbanka. Aðeins 128 lóðir Í umfjöllun DV um lóðasölu Hafnarfjarðabæjar í Skarðshlíð kom fram að aðeins ein lóð af 286 hefði selst. Þar voru taldar íbúðahúsalóðir, atvinnulóðir og hesthúsalóðir sem kynntar eru til sölu á vefsíðu bæjarins undir Skarðshlíð. Upplýsingarn- ar reyndust ekki réttar en engar atvinnu- eða hesthúsalóðir eru til sölu í Skarðshlíð heldur í öðrum hverfum bæjarins. Það var því að- eins ein lóð af 128 sem seldist eft- ir fimm milljóna markaðsherferð bæjarins vegna lóðasölunnar. Fjölskylduhjálp uppfærir heimasíðu Heimasíða Fjölskylduhjálpar Ís- lands hefur nú verið uppfærð og upplýsingar um samtökin eru því nú réttar. DV hafði áður fjallað um að samkvæmt heimasíðu væru allir starfsmenn samtakanna í sjálfboðaliðastarfi en í raun er Ás- gerður Jóna Flosadóttir formaður með hálfa milljón króna í mánað- arlaun. Í kjölfar umfjöllunarinnar hefur þessu nú verið breytt og mun ítarlegri upplýsingar er að finna um samtökin. Þar koma nú fram upplýsingar um kaup sam- takanna á ýmiss konar þjónustu og greint frá því að stjórnin hafi tekið þá ákvörðun að rjúfa tengsl stjórnar við bókhald, fjármál og greiðslu reikninga. Lömuðu aðhald verkalýðs Þjóðarsáttin hafði miklar afleiðingar S amfléttun hagsmuna verka- lýðs og atvinnurekenda í sameiginlegu fjármálakerfi sem kom til með þjóðar- sáttinni árið 1990 varð til þess að draga úr aðhaldi við fjármálavæð- inguna sem varð í kjölfarið. Verka- lýðssamtök urðu að stuðnings- aðilum fjármálakerfisins frekar en andstæðingum. Þessu held- ur Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði við Háskólann á Bifröst, fram í nýrri bók sinni um efnahagshrunið. Í bókinni, sem heitir Iceland and the international financial crisis: Boom, Bust and Recovery, rekur hann hvernig Ísland reis í al- þjóðlegum viðskiptaheimi, hrunið sjálft og viðbrögðin við því. Meðal annars fer hann yfir hvernig bólu- einkenni hafi verið í íslensku efna- hagslífi um áratugaskeið. Nefnir hann meðal annars þegar flæði er- lends fjármagns í kjölfar stofnunar Íslandsbanka hafi leitt til uppgangs í útgerð en að langvarandi kreppa hafi tekið við þegar bankinn, sem var í erlendri eigu, var keyrður í þrot í lok þriðja áratugarins. Varðandi aðdraganda hruns- ins nefnir Eiríkur auk þjóðarsátt- arinnar inngöngu á innri mark- að Evrópusambandsins árið 1995, einkavæðingu ríkisbanka um alda- mótin þar sem ungir og óreyndir kaupsýslumenn tóku við af varkár- um embættismönnum, ofsafengna útrás þar sem ógagnsæjar og sam- fléttaðar viðskiptablokkir földu áhættu sem leyndist í íslenska fjármálakerfinu í heild og virkan stuðning stjórnvalda við útrásina í viðleitni til að hraða nútímavæð- ingu íslensks efnahagslífs. n adalsteinn@dv.is Ný bók Eiríkur fjallar um aðdraganda hruns- ins, hrunið sjálft og afleiðingar þess í nýrri bók.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.