Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Síða 4
4 Fréttir Helgarblað 31. janúar 2014 TENNIS er skemmtileg hreyfing Nú er rétti tíminn til að panta fastan tíma í tennis. Eigum nokkra tíma lausa. Skemmtilegu byrjendanámskeiðin fyrir fullorðna eru að hefjast. Skráning og upplýsingar í síma 564 4030 eða á tennishollin.is Kemur Jónínu til varnar „Ég horfði á hana eftir þennan skelfilega dóm brotna niður af sorg. Hún bugaðist vegna rang­ lætisins og svo sagði þessi elska: „Það er alveg sama hvað ég legg hart að mér fyrir þetta land mitt, ég á ekki séns hér“,“ sagði Gunnar Þorsteinsson, sem kenndur er við Krossinn, um dóminn sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Jónínu Benediktsdóttur eigin­ konu hans á þriðjudag. Jónína var dæmd í þrjátíu daga fangelsi fyrir ölvunarakstur og svipt öku­ réttindum ævilangt. Atvikið átti sér stað 18. júní í fyrra og mæld­ ist vínandamagn í blóði Jón­ ínu 1,50‰. „Ég veit að ég er ekki einn sem finn fyrir árásum gegn henni, ekki einn sem veit um þau öfl sem hún hefur glímt við en þetta, að dæma farþega í bíl svona og ganga fram með þess­ um hætti er glæpur.“ Brynja komin í leitirnar Brynja Mist Snorradóttir er fund­ in eftir að lögreglan hafði leitað hennar síðan um miðjan janúar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgar­ svæðinu. Auglýst hafði verið nokkrum sinnum eftir Brynju Mist í fjölmiðlum en hún er fædd árið 1997. Brynja Mist strauk frá vistheimili að Hamarskoti í Flóa þann 15. janúar síðastliðinn ásamt vinkonu sinni sem einnig er komin í leitirnar. Lögregla þakkar veitta aðstoð. Tók sex vikur að svara saksóknara n Ólga í innanríkisráðuneytinu n Félagið sem skoðaði málið sér um símsvörun F yrirspurnin var send með bréfi dags. 10. desember 2013,“ segir í svari Sigríðar J. Friðjónsdóttur ríkissak­ sóknara við fyrirspurn DV varðandi skoðun embættisins á trúnaðarbresti innanríkisráðu­ neytisins gagnvart hælisleitand­ ann Evelyn Glory Joseph. Það tók innanríkisráðuneytið því sex vik­ ur að svara fyrirspurn ríkissak­ sóknara, en hún snéri að því hvaða upplýsingar og gögn lægju að baki þeirri könnun sem ráðuneytið segist hafa gert hjá sér. Ríkissak­ sóknari staðfestir að svar ráðu­ neytisins hafi borist á miðnætti þann 20. janúar, eða sex vikum síðar. Í tilkynningu ríkissaksóknara sem birt var á vefsíðu embættis­ ins þann 13. janúar kemur fram að embættið hafi óskað eftir upplýs­ ingum um það hvað lægi að baki þeirri könnun sem ráðuneytið sagðist, í tölvupósti til lögmanns, hafa gert hjá sér. „[H]vort ráðuneytið hafi, við sína könnun, ritað minnisblöð eða hvort önnur gögn eru fyrir­ liggjandi sem upplýst gætu um þá könnun. Ef slík gögn eru fyrirliggj­ andi var þess óskað að þau yrðu send ríkissaksóknara.“ Í tilkynningu innanríkisráðu­ neytisins þann 22. nóvember var því haldið fram að ekkert benti til þess „að slík gögn hefðu verið af­ hent frá embættismönnum innan­ ríkisráðuneytisins.“ Ekki var vísað í hvernig ráðuneytið hefði komist að þeirri niðurstöðu og beinist skoðun ríkissaksóknara að því hvað búi að baki fullyrðingunni. Í tilkynningu sem ráðuneytið sendi frá sér þann 12. janúar kom fram að „athugun ráðuneytisins og rekstrarfélags Stjórnarráðsins staðfesti að trúnaðargögn vegna umrædds máls hafa einungis far­ ið til þeirra aðila sem samkvæmt lögum eiga rétt á þeim.“ Ríkissak­ sóknari metur nú hvort efni séu til að vísa málinu til rannsóknar hjá lögreglu, en þar liggur þegar fyrir önnur kæra vegna málsins. Ólga hjá starfsmönnum Eins og DV hefur greint frá hafa allir starfsmenn ráðuneytis­ ins sem og ráðherra verið kærðir til lögreglu vegna þess. Líkar starfsmönnum illa að hafa mál­ ið hangandi yfir sér á meðan ekki hafa fengist fullnægjandi svör við því hvernig persónuupplýs­ ingar sem sagðar voru eiga upp­ runa sinn í innanríkisráðuneytinu komust í hendur fjölmiðla. Fjallað var um málið í Kastljósi á þriðjudaginn en Hanna Birna hætti við að koma í þáttinn með stuttum fyrirvara. Ragnheiður Rík­ harðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, kom ráðherra og ráðuneyti til varnar í þættin­ um og sagðist ekki geta ann­ að en tekið ráðuneytið trúanlegt. Þórey Vilhjálmsdóttir, aðstoðar­ kona Hönnu Birnu, er eiginkona Ríkharðs Daðasonar, sonar Ragn­ heiðar. Sem starfsmaður ráðu­ neytisins er Þórey á meðal þeirra sem kærðir hafa verið til lögreglu. Á mánudaginn var sérstök um­ ræða um málið á Alþingi. Hvöttu þingmenn Hönnu Birnu Kristjáns­ dóttur innanríkisráðherra til þess að láta gera óháða rannsókn á því sem gerst hefði. Ráðherra sagðist margoft hafa svarað spurningum í tengslum við málið. Hún svaraði hins vegar ekki fjölmörgum spurn­ ingum sem lagðar voru fram, þar á meðal hvers vegna rekstrarfé­ lag Stjórnarráðsins hefði verið látið athuga trúnaðarbrestinn, og hvernig sú athugun hafi farið fram. Þögult rekstrarfélag DV hefur síðan 22. janúar sent ítrekaðar fyrirspurnir á rekstrar­ félag Stjórnarráðsins varðandi þá athugun sem félagið á að hafa gert. Spurningar blaðsins snúast um það hvenær athugunin hafi verið gerð, hversu lengi hún hafi staðið yfir, í hverju hún hafi falist og hvort athugun rekstrarfélags­ ins hafi staðfest að trúnaðargögn vegna umrædds máls hafi ekki borist fjölmiðlum. Í svari sem Guðmundur H. Kjærnested, framkvæmdastjóri rekstrarfélagsins, sendi DV þann 24. janúar síðastliðinn staðfesti hann ekkert. „Með vísan til þess að ríkissaksóknari hefur málið til skoðunar og mun meta hvort að efni séu til að vísa málinu til rann­ sóknar hjá lögreglu telur rekstrar­ félagið sér ekki heimilt að veita upplýsingar um það.“ DV hefur ítrekað fyrirspurn sína þrisvar sinnum með vísan í upplýsingalög og beðið um rök­ stuðning fyrir því á grundvelli hvaða laga og/eða reglna rekstrar­ félagið neitar að svara spurningum um athugunina. Engin svör höfðu borist þegar blaðið fór í prentun á fimmtudagskvöld. Sér um póstþjónustu Rekstrarfélag Stjórnarráðsins heyrir undir fjármála­ og efna­ hagsráðuneytið. Það er ekki skráð í símaskrána en í fyrirtækjaskrá er það skráð í sama húsnæði og ráðuneytið. Rekstrarfélagið er ekki með neina heimasíðu og erfið­ lega reyndist að fá upplýsingar frá framkvæmdastjóra rekstrarfé­ lagsins um hvert hið skilgreinda hlutverk þess væri. Hjá fjármála­ ráðuneytinu fengust þau svör að rekstrarfélagið yrði sjálft að svara fyrir starfsemi sína. Upplýsinga­ fulltrúi fjármálaráðuneytisins sagði þó í samtali við blaðamann að DV gæti átt von á svörum frá rekstrarfélaginu fyrir helgi. Í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2013 má finna upplýsingar um rekstrarfélagið. Þar kemur fram að félagið sjái um ýmsa sameig­ inlega þjónustu fyrir ráðuneytin, svo sem símsvörun, póstþjónustu, tölvuþjónustu, öryggisþjónustu, viðhald og rekstur húsnæðis og mötuneytis og ýmiss konar síma­ þjónustu. Rekstrarfélagið hefur engu lögbundnu eftirlitshlutverki að gegna. n Jón Bjarki Magnússon jonbjarki@dv.is Ólga í ráðuneytinu Samkvæmt heimildum DV innan úr Stjórnarráðinu er mikil ólga á meðal starfs- manna innanríkisráðu- neytisins vegna málsins. Hanna Birna Kristjáns- dóttir innanríkisráðherra sat fyrir svörum á Alþingi í vikunni. Mynd Sigtryggur Ari tók sex vikur að svara Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari staðfestir við DV að hún hafi sent fyrirspurn sína á innanríkisráðuneytið þann 10. desember, eða sex vikum áður en svar barst frá ráðuneytinu. Mynd Sigtryggur Ari JÓhAnnSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.