Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Síða 10
10 Fréttir Helgarblað 31. janúar 2014
Samfélagsmiðlar illa nýttir
n Fá ráðuneyti með Facebook-síðu n Ráðherrar mjög misjafnir í notkun á Facebook og Twitter
Þ
ingsályktunartillaga Bjartrar
framtíðar um aukinn
sýnileika Alþingis á samfé-
lagsmiðlum var lögð fyrir
Alþingi í haust og hlaut já-
kvæðar undirtektir. Stjórnskipun-
ar- og eftirlitsnefnd hefur nú mál-
ið á sinni könnu, en ekkert hefur
heyrst af málinu frá því í nóvember.
Einn tilgangur tillögunnar var sá að
efla ímynd Alþingis og voru þing-
menn í stjórnarflokkum ánægð-
ir með hana. Forseti Alþingis, Ein-
ar K. Guðfinnsson, steig í pontu og
sagðist ekki vera í vafa um nauðsyn
þess að auka aðgengi almennings
að upplýsingum um störf þingsins.
Þá hefði Alþingi jafnan haft forystu
í slíkum málum miðað við þjóð-
þing annarra landa, til dæmis þegar
ákveðið var að hljóðrita skyldi þing-
ræður. Möguleikar á opinberum
samræðum ráðherra og ráðuneyta
við almenning hafa sjaldan verið
fleiri en þó er það yfirleitt ekki vel
nýtt.
Leiðbeiningar gefnar út 2012
Aðeins þrjú ráðuneyti eru með
síðu á Facebook. Þau eru mennta-
og menningarmálaráðuneyti, um-
hverfis- og auðlindaráðuneyti og
utanríkisráðuneyti. Öll eru þau
nokkuð virk en deila fyrst og fremst
fréttum af heimasíðum sínum.
Utan ríkisráðuneytið stendur sig
best í því að setja inn stakar mynd-
ir og annað efni, sem einungis rat-
ar inn á samfélagsmiðilinn. Árið
2012 voru leiðbeiningar um notkun
ráðuneyta á Facebook gefnar út af
sérstökum vinnuhópi, en í honum
voru upplýsingafulltrúar allra ráðu-
neytanna.
Bönnuð orð í gagnagrunni
Þar er meðal annars til þess
mælst að enginn geti sett inn
athugasemdir á síður ráðuneyt-
anna nema við færslur þeirra.
Einnig að nýtt yrði sú þjónusta
Facebook að setja inn orð í gagna-
grunn sem væru bönnuð á síðum
ráðuneytanna, en þannig væri
sjálfvirkt eftirlit öflugra. Viðkom-
andi ráðuneyti beri þó ábyrgð á
meiðandi ummælum sem gætu
birst á síðu þess og mælt er með
því að vinnureglur séu settar um
daglega vöktun. Notendur geta
þó sett inn umsagnir í sérstökum
dálki um viðkomandi síðu, og þar
setja margir inn athugasemdir líkt
og þeir væru að skrifa beint inn á
síður viðkomandi ráðuneyta.
Af þessum þremur ráðuneyt-
um fær utanríkisráðuneytið hæstu
einkunn og þá fyrst og fremst fyrir
myndir. Greinilegt er að þeir sem
fara með umsýslu síðunnar taka
myndir á farsíma og setja jafnóð-
um inn. Slíkt er mjög í anda hinna
hröðu samskipta sem einkenna
miðla á borð við Facebook og til
fyrirmyndar.
Utanríkisráðherra duglegastur
Ráðherrar eru misduglegir við að
nýta sér kosti Facebook eða Twitt-
er. Utanríkisráðherra, Gunnar
Bragi Sveinsson, virðist vera sá
sem er hvað duglegastur að nota
báða miðlana. Hann setur ekki inn
sama efni á þær báðar og er dug-
legur að hlaða upp myndum sem
hann tekur við störf sín. Eins og
fleiri ráðherrar er hann með sér-
staka „aðdáenda“-síðu, þar sem
hægt er að smella á „Líkar við“
og þá birtast stöðuuppfærslur og
myndir í fréttayfirliti notandans.
Hafa ber í huga að aðstoðarmenn
ráðherra og upplýsingafulltrúar
gætu haft aðgang að slíkum síð-
um og sett inn efni tengt ráðherra.
Því þarf ekki endilega að vera svo
að ráðherra sjálfur skrifi, þó það sé
gert í hans nafni. n
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is
Sigurður Ingi:
Lítið virkur
Sigurður Ingi er ekki með opinbera síðu
en hefur persónulega síðu, þar sem hann
setur gjarnan inn efni sem
er opið öllum. Það er
þó yfirleitt ótengt
störfum hans sem
ráðherra, til að
mynda snúast flestar
færslur hans um
handboltalandsliðið og í
raun er fátt á síðu hans sem bendir til þess
að þar fari valdamikill maður. Sigurður Ingi
er ekki heldur á Twitter og af ráðherrum er
hann því sá sem hefur minnst samskipti í
gegnum samfélagsmiðla.
Ragnheiður:
Birtir margar
opnar færslur
Opinber síða Ragnheiðar er ekkert notuð
í dag, en var notuð í kosningaherferð
hennar enda heitir síðan
„Ragnheiður Elín í 1.
sæti.“ Hún notar sína
persónulegu síðu
mikið og þar birtast
margar opinberar
færslur. Við þær
færslur geta allir sett
athugasemdir en þar skapast sjaldan um-
ræður og þá tekur Ragnheiður ekki þátt í
þeim. Ráðherrann er ekki á Twitter.
Illugi:
Opinbera síð-
an lítið notuð
Illugi er mjög virkur á sinni persónu-
legu síðu og notar
opinberu síðuna
minna. Margar
færslur Illuga eru
opinberar og því
þarf ekki að vera
vinur hans á Face-
book til að sjá það sem
hann setur inn. Hver sem er getur sett
inn athugasemdir á opinberu síðuna,
en Illugi svarar þeim þó ekki. Ekki er
hægt að setja athugasemdir við opnu
færslur Illuga nema vera vinur hans.
Kristján Þór:
Myndir frá
ferðalögum
Kristján Þór setur reglulega inn efni
á opinbera Facebook-síðu sína,
og það er þá gjarnan
myndir frá ferðalög-
um sínum. Hver sem
er getur sett inn
athugasemdir á síðu
Kristjáns og þó hann
svari að jafnaði ekki
slíkum athugasemdum
ýtir hann stundum á „Líkar við.“
Hanna Birna:
Sama efni á
Twitter og
Facebook
Hanna Birna er eins og flestir ráðherrar
með sérstaka síðu á Facebook, þar
sem hægt að er að smella á „Líkar við.“
Hún virðist hins vegar ekki vera með
persónulega síðu, miðað við einfalda
leit á samfélagsmiðlinum. Efnið sem fer
inn á vefinn virðist oft koma beint frá
Hönnu Birnu sjálfri, þó auðvitað sé erfitt
að fullyrða um slíkt. Hún hefur sett inn
persónulegar myndir, meðal annars af
dætrum sínum um jólin og frá göngutúr
með eiginmanni sínum sem hún sagði
hluta af nýársheiti sínu. Hana er einnig
að finna á Twitter, en hún setur þó aldrei
inn sérstakar færslur þar heldur fara
allar færslur á Facebook einnig inn á
Twitter.
Bjarni:
Pólitík í bland
við annað
Bjarni er ekki á Twitter, en þar er þó
notandi með hans nafn og mynd
af fjármálaráðherra. Tístin eru þó
greinilega einhvers konar grín sem
kom upp í tengslum við síðustu kosn-
ingar. Bjarni er með síðu á Facebook
og einnig sína eigin persónulegu síðu.
Hann hefur þó ekki sett opið efni inn
á sína persónulegu síðu í langan tíma.
Opinbera síðan er mun líflegri og Bjarni
hefur af og til sett sjálfur inn myndir af
því sem hann gerir. Mest virðist hún þó
notuð til þess að koma á framfæri til-
kynningum vegna einhverra einstakra
mála sem upp koma, svo sem vegna
meints leka á Glitnisgögnum fyrir jól. Í
kosningabaráttu síðasta árs var Bjarni
duglegur að setja inn alls kyns efni
og myndir. Ekki er hægt að setja inn
athugasemdir beint á vegginn en hver
sem er getur sett athugasemdir við
stakar færslur.
Sigmundur Davíð:
Sæmilega
duglegur
Sigmundur Davíð er bæði með Facebook-
og Twitter-síðu. Sigmundur er sæmilega
duglegur að setja inn efni. Hann myndi
ekki standast kröfur sérfræðinga,
sem telja að halda þurfi slíkum síðum
lifandi með því að setja þar inn efni að
minnsta kosti daglega. Raunar eru fæstir
ráðherrar svo duglegir. Á síðunni getur
hver sem er sett inn athugasemdir á hinn
svokallaða vegg, en þeim er þó nánast
aldrei svarað. Sigmundur er mjög óvirkur
á Twitter og síðasta færsla hans er frá
því í desember. Fyrir hafði hann verið
óvirkur á Twitter í tæpt ár.
Samtal við almenning
Möguleikar á samræðum ráðherra og
ráðuneyta við almenning hafa sjaldan
verið fleiri með tilkomu samfélagsmiðla