Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Side 16
Helgarblað 31. janúar 201416 Fréttir Banaslys í umferðinni á árunum 2004–2014 Samkvæmt Umferðarstofu sýnir þetta kort helstu staði þar sem dauðaslys hafa orðið á árunum 2004–2014. Samtals hafa slysin verið 147, þar með talið slysið í Norðurárdal. Alls hefur 161 látist í umferðinni á sama tímabili. til minningarathafna sem haldnar hafa verið í minningu þeirra. Eftir andlát Önnu Jónu var haldin athöfn fyrir hana en einnig minningarakstur- inn sem var afskaplega fjölmennur. Nemendur í fjölbrautaskólanum hafa að auki kveikt á kertum fyrir utan skólann sinn til minningar um sam- nemendur sína. Á miðvikudag hitt- ust svo vinir og fjölskylda Skarphéð- ins í Reykjavík og mættu tæplega tvö hundruð manns á athöfnina. Á Sauð- árkróki var einnig haldin athöfn þar sem yfir hundrað manns mættu. Vinir í sorg Félagar og vinir Skarphéðins og Önnu Jónu eiga erfitt og glíma við mikla sorg. Félagar Skarphéðins skrifuðu fallega til hans á Facebook- síðu hans og kvöddu mikinn vin og félaga og þökkuðu margir honum fyrir að styðja við bakið á sér. Útför hans fer fram 8. febrúar næstkom- andi. „Ef það kom nýr nemandi í bekkinn varst þú fyrst til að tala við hann og láta honum finnast hann velkominn, þú varst góð við alla. Þú varst algjör gleðigjafi og gerðir lífið mikið auðveldara fyrir marga. Þú varst aldrei hrædd við að vera þú sjálf, hvort sem það þýddi að þú lit- aðir hárið á þér fjólublátt, mættir í skærbleikum buxum í skólann eða bara hvað sem er, þér var alveg sama, þú varst bara þú,“ segja skóla- félagar úr Árskóla um Önnu Jónu í minningargrein í Morgunblaðinu en þar er talað sérstaklega um hversu vinmörg hún var og fljót að eignast nýja vini og taka fólk undir sinn verndarvæng. Þakklæti Foreldrar beggja segjast afar þakk- látir fyrir þann mikla stuðning sem þeim hefur verið sýndur. „Við vilj- um senda starfsfólki gjörgæslunn- ar í Fossvoginum sérstakar þakkir,“ segir Steinunn Rósa. „Okkur langar líka að þakka sérstaklega fyrir allan þann hlýhug sem við fáum að norðan,“ segir hún, „og hversu yndislegt fólkið þar hefur verið við Skarphéðinn okkar. Engin furða að hann var hamingjusamur þar og vildi hvergi annars staðar vera,“ segir Steinunn. „Samfélagið hér hefur staðið þétt við bakið á okkur. Þetta eru gríðar- lega erfið spor,“ segir Sigurbjörn. „Það var allt lamað hér svona fyrstu vikuna, meira og minna, eftir slys- ið. Samfélagið allt. Það var því aft- ur þungt högg þegar að við fengum fréttir af andláti Skarphéðins,“ segir hann. Vel er haldið utan um ung- mennin, sérstaklega skólafélaga þeirra tveggja, og hrósa bæði Sigur- björn og Steinunn umsjónarmanni heimavistar fjölbrautaskólans. „Við töluðum strax við skólastjórnendur um að það þyrfti að halda vel utan um krakkana almennt í skólanum og það hefur tekist vel,“ segir hann. „Þegar allt samfélagið þjappar sér svona saman ganga hlutirnir betur. Það er gott að vera í samfélagi sem lætur sér annt um náungann. Við höfum fundið gríðarlega vel fyrir því og fyrir þessum samhug. Það hefur gefið okkur mikið og haldið okkur gangandi,“ segir Sigurbjörn. n Fimm þúsund óhöpp árlega Mikill mannskaði í umferðarslysum 2013 13 létust í umferðarslysum 166 slösuðust alvarlega 943 slösuðust lítillega 4.528 óhöpp án meiðsla 2012 9 létust í umferðarslysum 136 slösuðust alvarlega 899 slösuðust lítillega 4.810 óhöpp án meiðsla „Það var allt lamað hér svona fyrstu vikuna

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.