Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Page 34
Helgarblað 31. janúar 201434 Fólk Viðtal OKKAR LOFORÐ: Lífrænt og náttúrulegt Engin óæskileg aukefni Persónuleg þjónusta Borgartún 1 Fákafen 1 Hæðasmári www.lifandimarkadur.is Allt vistvænt og lífrænt kjöt með 15% afslætti 31. janúar - 2. febrúar 15% afsláttur ! Bæði ferskt og frosið Lífrænnkjúklingur KJÖTDAGAR Í FÁKAFENI En þó alltaf með bjórinn með. Ég gafst upp á þessu árið 2008 en vinir mínir drifu mig aftur með sér árið 2011,“ segir Anna Margrét og seg- ir vini sína lítið kippa sér upp við það þannig séð að hún sé nú orðin kona. Anna K. mætti þó held- ur verra viðhorfi margra sinna gömlu vina þegar hún hóf sitt líf sem kona. „Það er fjöldi fólks sem ég þekkti í gamla daga sem hefur ekki talað við mig eftir að ég fór í aðgerðina,“ segir hún. Anna Margrét segist hafa skrif- að bréf sem hún sendi fólki ef það vildi vita meira. „Ég var búin að búa til bréf sem var klárt – við gerum það flest, skrifum bréf sem kemur ýmislegt fram í. Um leið og þetta fór af stað og fólk vildi vita meira þá bara sendi ég þeim þetta bréf.“ Allir eiga rétt á að vera þeir sjálfir Anna Margrét segist hafa upplifað visst frelsi þegar hún gat farið að lifa sem kona. Það hafi auðvitað verið erfitt fyrst, fólk hafi starað en þegar hún náði að komast á þann stað að vera sama hvað öðrum fyndist þá varð hún sátt. „Það var auðvitað áskorun að fara í fyrsta skipti í Kringluna í pilsi. Fólk horfði á mann. En svo fór ég að hugsa þannig að þetta fólk gengur fram- hjá þér og þú sérð það aldrei aftur þá fór mér bara að vera sama. Ég er bara svona og það skiptir mig ekki máli hvað öðrum finnst. Það eiga allir rétt á að vera eins og þeir eru.“ Þær eru sammála um að enn séu til staðar fordómar fyrir trans- fólki. Þær finna aðallega fyrir að það sé starað á þær en eru löngu hættar að spá í það. Þær segja for- dóma fólks þó vera smámál mið- að við eigin fordóma. „99 prósent- um fólks er alveg sama – það hefur bara nóg með sig og sína,“ segir Anna Margrét. „Það sem er verst eru manns eigin fordómar gagn- vart sjálfum sér.“ Stórt skref að fara í kvennaklefann Aðspurðar hvort þær lendi oft í vandræðalegum aðstæðum þar sem fólk viti ekki hvernig það eigi að ávarpa þær segjast þær það sjaldan gerast. Það hafi gerst hjá sýslumanni þegar Anna Margrét fór að ganga frá dánarbúi foreldra sinna að nafnabreyting hennar hafði ekki náð í gegn þar og því hét hún enn Ágúst samkvæmt þeirra bókum. Það sé vandræðalegt og pínlegt að lenda í slíkum aðstæð- um en sem betur fer gerist það sjaldan. „Það er helst að maður lendi í einhverju svona þegar mað- ur er að tala við fólk í síma. Röddin hjá transkonum breytist nefni- lega mjög lítið. Hún mýkist að- eins, en mjög lítið. Það er reyndar hægt að fara í raddþjálfun sem tek- ur mikinn tíma og hægt að þjálfa röddina.“ Þær segja báðar að lífið hafi breyst mikið eftir aðgerðina. Þær séu sáttari og glaðari. Anna Margrét hafði til dæmis alltaf haft gaman af því að fara í sund en hafði í nokkur ár fyrir aðgerðina ekki treyst sér. Nú er hún farin að synda á ný og mætir í réttan klefa. „Það var dálítið stórt skref að fara í kvennaklefann fyrst en svo bara ekkert mál og ég fer reglulega í sund.“ Enn langt í land Báðar eru þær öflugar í stjórn sam- takanna Trans-Ísland. „Það hefur mikill árangur náðst síðan við stofn- uðum félagið árið 2007,“ segir Anna K. „Við náðum þeim árangri að fá í gegn lög um réttindi transgender fólks árið 2012. Síðan höfum við gert fræðslu- efni og bæklinga,“ segir Anna Mar- grét. Þær segja margt hafa breyst með tilkomu laganna og eins hafi viðhorf heilbrigðis kerfisins tekið breytingum. „Nú er það þeirra sýn að fólki líði miklu betur eftir aðgerð. Það er orðið jákvætt. „Það er þó enn margt sem hef- ur ekki áunnist í baráttunni að þeirra mati. Til dæmis sé kynáttunarvandi enn skráður sem geðsjúkdómur. „Það er enn langt í land og margt sem þarf að berjast fyrir,“ segir Anna K.n „Ég gerði það ekki ófull – það get ég alveg sagt þér. Það var ekki gert edrú og búið að plana það lengi. Anna Margrét Betra líf Þær öðluðust nýtt líf eftir að hafa undirgengist kynleið- réttingarferli. Anna Margrét fór í sína aðgerð þegar hún var 60 ára en Anna K. fór í sína árið 1995. Mynd Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.