Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Síða 52
Helgarblað 31. janúar 201452 Menning
Dýrasta sund-
ferð allra tíma
n Ferðast á slóðir upprunalands Íslendinga í Norður-Noregi
H
vað er opið lengi í verslunar-
miðstöðinni?“
„Tja, ætli það sé ekki til
sex,“ segir afgreiðslumaður-
inn. „Hvað heldur þú, Stig?“
spyr hann kollega sinn. „Ég reikna
með að það sé ekki nema til fjögur,“
segir hinn. „Það hlýtur þá allavegana
að vera opið til fimm,“ segir sá fyrsti.
Ég er staddur í Harstad í Norður-
Noregi, 20.000 manna bæjarfélagi
á eyjunni Hinnöya. Það er miður
janúar norðan við pólbaug, það sem
heimamenn kalla „mörketida“ þegar
sólin rís aldrei yfir sjóndeildarhring.
„Er þetta stærsta eyja Noregs?“ spyr
ég strætóbílstjórann.
„Má vera. Hvað segir þú, Trond?“
spyr hann einn farþega.“ „Senja er
ansi löng,“ segir hinn. „Langöya líka,“
segir bílstjórinn. Opnunartímar búða
og stærðir eyja verða hvort tveggja
heimspekilegar spurningar þegar svo
norðarlega er komið. Allir hafa sína
skoðun og allar skoðanir eru jafn rétt-
háar. Staðreyndir, hins vegar, eru hér
ekki til.
Dýrasta sundferð allra tíma
Þegar ég kem aftur á kollegíið gúgla
ég þetta. Jú, Hinöya er vissulega
stærsta eyjan við meginland Noregs.
Þær eru stærri á Svalbarða, en rétt
eins og Texasbúar telja Alaska ekki
með þegar þeir tala um stærðir, þá
kjósa menn hér frekar að miða við
meginlandið.
Það er fljótgert að skoða bæinn.
Grottebadet er sundlaug sem hefur
verið sprengd inn í fjall og þykir nokk-
uð fín. Ég hef ekki sundskýlu með-
ferðis og kemst að því að þeir leigja
ekki sundskýlur, heldur selja þær á
350 krónur norskar. Ásamt aðgöngu-
miða kostar sundferðin því 10.000
krónur íslenskar. Ég segi eitthvað um
gengismun áður en ég geng inn.
Auk sundlaugarinnar eru helstu
kennileiti hér að finna á tanganum
Trondsnes. Hér er stærsta steinkirkja
norðan Þrándheims og hefur verið
síðan á miðöldum. Hér voru einnig
fangabúðir rússneskra stríðsfanga í
stríðinu og reistu eftirlifendur minn-
isvarða um leið og þeir sluppu út.
Rétt fyrir ofan er síðan stolt bæjarbúa,
„Adolf kanonen,“ ein fjögurra risa-
vaxinna fallbyssa sem Adolf nokkur
lét koma hér fyrir í áðurnefndu stríði.
Hún er staðsett inni á norskri herstöð,
og ekki hægt að skoða hana nema í
fylgd leiðsögumanns sem kostar álíka
mikið og sundferð.
Útlagar, illmenni og Íslendingar
Á sögusafninu má sjá að hér bjó
Þórólfur Kveldúlfsson, bróðir
Skallagríms, áður en hann komst upp
á kant við Harald hárfagra og var veg-
inn. Tore Hund kom líka héðan, en
hann drap Ólaf helga konung, sem
síðar varð verndardýrlingur Noregs.
Margir héðan fluttu til Íslands, enda
þekktir fyrir að vera með eindæm-
um óstýrilátir og börðust hatramm-
lega gegn ásælni konunga sunnan frá.
Í seinni tíð hafa þó margir Íslendingar
flutt aftur heim til Harstad til að starfa
sem sjúkraliðar, enda er einn helsti
háskóli Noregs hér þegar kemur að
heilbrigðisfögum.
Það eru fleiri frægir Norðmenn
sem komu héðan. Hans Edge kristn-
aði Grænland á 18. öld og var fyrstur
til að skrásetja tungumál inúíta.
Þekktasti Harstad-búinn í dag mun
þó vera Sophie Elise Isachsen, sem
heldur úti vinsælasta bloggi Noregs
með 25.000 smelli á dag. Sophie Elise
vakti fyrst þjóðarathygli þegar hún fór
í miklar lýtaaðgerðir fyrir tveim árum,
svo sem brjóstastækkun og varafyll-
ingu, þá 18 ára gömul.
Annar norðlendingur sem vakið
hefur athygli er Arne Pedersen, 90
ára, en hann neitaði að nota björg-
unarvesti á bát sínum. Þegar hann
var handtekinn af landhelgisgæslu
neitaði hann svo að borga sektina
og verður brátt dreginn fyrir dóm.
Þetta hefur verið upphaf mikilla
skrifa, leiðari Harstad Tidende segir
að sömu lög verði að ganga yfir alla
á meðan samkeppnisaðilinn Nord-
lys hefur útnefnt hann norðlending
ársins.
Ást við fyrstu sýn
Sumir hafa jafnvel viljað breyta
stjórnarskránni og gefa þeim sem eru
komnir á tíræðisaldur leyfi til að haga
sér eins og þeir vilja, en Arne tilheyr-
ir hverfandi kynslóð stríðshetja sem
börðust í andspyrnuhreyfingunni.
Reyndar er verið að taka stjórnar-
skrána til gagngerrar endurskoðun-
ar í tilefni 200 ára afmælis hennar í
ár. Verður málfarið gert nútímalegra,
að sjálfsögðu bæði á bókmáli og
nýnorsku, en sumum finnst sem
einnig þurfi að breyta innihaldinu.
Um helmingur ákvæðanna fjallar um
vald hins valdlausa konungs og er í
flestum tilfellum átt við þingið, eða
svo telja menn.
Í öðrum fréttum er sagt að hinn
ástkæri bæjarbetlari Tromsö, Ionan
Banec sé látinn. Ionan var ættaður
frá Rúmeníu en hefur undanfarin ár
sett svip sinn á bæjarlífið þar. Bæjar-
búar söfnuðu rúmri milljón íslenskra
króna til að senda lík hans heim, sem
hann hafði óskað eftir. Ástkonan Hel-
ena mun fylgja honum á leiðarenda,
en þau kynntust fyrir þrem árum.
„Hann kom hlaupandi á eftir mér og
sagðist hafa elt mig í gegnum allan
bæinn, svo ég tók hann með heim,“
segir Helena. „Það má segja að þetta
hafi verið ást við fyrstu sýn.“
Í Harstad er stíft fundað um fram-
tíð pósthúsdólgs nokkurs, sem hefur
daglega í hótunum við starfsfólk póst-
hússins og lögregla hefur oft keyrt
heim sökum ölvunar. „Við ætlum að
reyna að koma honum í meðferð,“
segir Geir Pedersen lögreglustjóri
(allir hér í bæ virðast heita Pedersen).
Brjálað fólk í borgum
„Það hlýtur að vera erfitt að búa
í borg þar sem enginn þekkir
neinn,“ segir kona á fimmtugsaldri í
félagsþjónustu námi. „Í bæjum hafa
allir fjölskyldurnar í kringum sig.“
„Það eru ekki allir sem vilja vera
það sem þeir eru fæddir,“ segi ég.
„Allt brjálaða fólkið flytur í borg-
irnar,“ svarar hún.
Að lokum heimsæki ég bæjarblað-
ið Harstad Tidende.
„Hver er stærsta fréttin sem þið
hafið flutt?“ spyr ég blaðamann.
„Ætli það sé ekki um þennan sem
datt niður dauður á fótboltaæfingu.
Hvað ætli hann hafi verið gamall? 19?“
„20,“ segir kollegi hans.
„Hann var 16 ára,“ segi ég. „Ég las
það í blaðinu. n
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
„ Í Harstad er
stíft fundað um
framtíð pósthúsdólgs
nokkurs, sem hefur
daglega í hótunum við
starfsfólk pósthússins.
Egde Brúða af Hans Edge sem kristnaði
Grænland á 18. öld og var fyrstur til að skrá-
setja tungumál inúíta.
„Ásamt
aðgöngu-
miða kostar
sundferðin því
10.000 krónur
íslenskar
M
y
n
D
S
h
u
t
tE
r
S
to
ck
Skáldskapur
brýst inn í
veruleika Sindra
Fékk tölvupóst frá Fjólu
Sindra Freyssyni brá í brún á
dögunum þegar hann fékk tölvu-
póst frá Fjólu nokkurri. Þótti hon-
um sem skáldskapurinn væri við
að brjótast inn í veruleikann. En
kvenpersóna nýjustu skáldsögu
hans Blindhríð, Viola Fillmora,
Fjóla, hrellir aðalsöguhetju bók-
arinnar með því að senda honum
tölvupóst í gríð og erg.
„Í fyrstu er netfangið violaf @
hotmail.com en síðan þegar
hann blokkerar hana skiptir
hún um netföng, notar t.d.
violafillm@hotmail. o.s.frv. Í dag
fékk ég síðan tölvupóst utan úr
heimi frá netfanginu violafillm@
arcor.de, sem hefur þýskan upp-
runa. Mér brá nokkuð í brún,
verð að viðurkenna það. Í póst-
inum var síðan bréf – hvers
innihald ég vil ekki segja frá á
þessari stundu – undirritað af
Fjólu. Skáldskapurinn brýst inn
í veruleikann!“ sagði Sindri frá á
Facebook-síðu sinni.
Sótsvört helgi
Sjón, Hugleikur og Sigurjón
heiðra De Palma
Bíóhelgin verður tileinkuð
meistaranum Brian De Palma í
Bíó Paradís.
Í boði verða þrjár úrvals-
myndir í leikstjórn Brian De
Palma. Veislan byrjar á föstu-
daginn kl. 20.00 með sálfræði-
tryllinum Dressed to Kill frá
1980 þar sem fleygar setningar
á borð við „It was then, when I
realised I had to kill that wom-
an“ hljóma auk þess sem besta
morðsena Brian De Palma, að
eigin sögn, er í þeirri mynd,
en hann hefur leikstýrt þeim
nokkrum. Laugardaginn 1.
febrúar kl. 20.00 verður Scarface
(1983) sýnd þar sem Al Pacino
skartar sínu fegursta með hríð-
skotabyssuna á lofti. Helginni
lýkur svo á Svörtum Sunnudegi
líkt og lög gera ráð fyrir með
Blow Out frá 1981 en Brian De
Palma sagði að hugmyndin að
þeirri mynd hefði kviknað þegar
hann var að hljóðsetja Dressed
to Kill.
Dagskráin er partur af Cult
klassík dagskrá Svartra sunnu-
daga en að þeim standa þeir
Sigurjón Kjartansson, Hugleikur
Dagsson og Sjón. Markmið
hópsins er að auðga bíómenn-
ingu borgarinnar. Þetta verð-
ur helgi blóðs og perversjóna
líkt og Sjón kemst að orði á
Facebook-síðu hópsins Svartir
Sunnudagar.