Dagblaðið Vísir - DV - 31.01.2014, Blaðsíða 64
Helgarblað 31. janúar–3. febrúar 2014
9. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is
Auga fyrir auga,
tönn fyrir
framrúðu?
Hafa unnið sextíu og átta leiki í röð
n KR-ingar hafa unnið alla leiki frá tíu ára aldri n „Við erum klárlega ánægðir með þá“
L
eikmennirnir í tíunda flokki
drengja í körfuknattleiks-
deild KR unnu sinn 68. leik
nýlega. Sigurganga drengj-
anna, sem eru allir í tíunda
bekk grunnskóla, hefur varað frá
þeir voru ellefu ára gamlir. Flestir
hafa drengirnir spilað með liðinu
nær allan tímann. „Við erum klár-
lega ánægðir með þá. Þetta er
mjög öflugur hópur. Fullt af flott-
um og efnilegum strákum,“ segir
Finnur Stefánsson, yfirþjálfari
yngri flokka KR, í samtali við DV.
Hann segir ástæðuna fyrir
gríðarlega góðum árangri drengj-
anna vera blöndu af góðri þjálfun
og hæfni. „Það eru miklir hæfileika
íþróttamenn í þessum árgangi.
Arnar Hermannsson, bróðir hans
Martins Hermannssonar sem er
að gera vel í meistaraflokknum.
Svo eru strákar eins og Þórir Þor-
bjarnarson og Eyjólfur Halldórs-
son sem eru manna öflugastir
þarna,“ segir Finnur. Hann segir
þrjá til fimm drengjanna vera í
landsliðsúrtökum. „Þeir hafa verið
að spila upp fyrir sig,“ segir hann.
Þjálfari drengjanna, Bojan
Desnica, hefur þjálfað drengina
síðastliðin ár með nokkrum hlé-
um. „Þetta er nánast sami hópur.
Það eru samt alltaf einhverjir
strákar sem hætta eða bætast inn
í,“ svarar Finnur spurður um hvort
liðið hafi verið skipað sömu leik-
mönnum öll árin. Í grunninn er
um sömu leikmenn að ræða. Það
er merkilegt í ljósi þess að þeir
spiluðu sinn fyrsta leik tíu ára.
Liðsmenn 10. flokks KR hafa því
varla tapað leik frá því þeir byrj-
uðu að keppa. n
hjalmar@dv.is
Þvær fimm
sinnum á dag
n Barnalánið hefur heldur betur
leikið við fyrirsætuna Ósk Norð-
fjörð en hún á sex börn og á von
á því sjöunda. Ósk hefur nóg fyrir
stafni á heimilinu en hún segist í
samtali við Séð og heyrt sem kom
út á fimmtudag hafa lítinn tíma til
að vinna. „Það eina slæma við að
eiga svona mörg börn er þvottur-
inn, ég þvæ í kringum fimm
þvottavélar á dag,“ segir hún. „Við
þurfum að endurnýja þvottavél-
ina á tveggja ára fresti.“ Það er
hins vegar ekki stórt vandamál
og útilokar Ósk ekki frekari barn-
eignir í samtali við blaðið.
Reyndi að mölva
tennur Geirs
n Rithöfundurinn Hallgrímur
Helgason leiðrétti hvimleiðan
misskilning Hannesar Hólmsteins
Gissurarsonar á Facebook-síðu
sinni í vikunni. Hannes hafði skrif-
að í Morgunblaðið að Hallgrímur
hafi reynt að mölva framrúðu á bíl
Geirs Haarde þáverandi forsætis-
ráðherra í búsáhaldabyltingunni.
„Langar bara til að leiðrétta tækni-
lega villu: Það var ekki framrúðan
heldur framtennurnar sem ég
reyndi að mölva,“ skrifar Hallgrím-
ur. Í kjölfar þessa hófust umræður
um hvor væri meira skáld, Hannes
eða Hallgrímur. „Mér
finnst skemmtilegt
hvernig þessi at-
burður vex í hvert
skipti sem Hann-
es skrifar um
hann,“ skrifaði
Egill Helga-
son.
Freistingar
Jóhannesar
n Jóhannes Þór Skúlason, aðstoðar-
maður Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar forsætisráðherra, stendur
í ströngu við að binda enda á „ýmis
sjálfskaparvíti líkamlegs óheilbrigð-
is.“ Með það markmið að leiðarljósi
syndir hann fimm hundruð metra
þrisvar í viku og telur hann sig allan
jákvæðari fyrir vikið.
Að hans sögn hefur horft til bóta
hvað varðar mataræði fyrir utan „að
standast freistingar hins ógurlega
súkkulaði-Belse-
búbbs.“ Jóhann-
es segir djöful
þann skilja eftir
laumulegar
freistingar fyrir
sig á fundum
og mannamót-
um.
Rúm | Sængurver | Springdýnur | Púðar og rúmteppi | Kistur og náttborð
Gaflar | Heilsukoddar | Dýnuhlífar og lök | Fylgihlutir
Allt fyrir svefnherbergið
RB rúm | Dalshrauni 8 | Hafnarfirði | Sími: 555 0397
Opið alla virka daga frá kl. 09.00–18.00, laugardaga 10.00–14.00, sunnudaga lokað
www.rbrum.is | rum@rbrum.is | erum á
Íslensk
hönnun
RÚM
ára
1943-2013
Framúrskarandi
fyrirtæki 2012
Framúrskarandi
fyrirtæki 2011
Framúrskarandi
fyrirtæki 2010
Björt framtíð Hér má sjá liðið eftir enn einn
sigurleikinn. Bojan Desnica, þjálfari liðsins, er
lengst til vinstri.