Dagblaðið Vísir - DV - 28.02.2014, Blaðsíða 6
6 Fréttir Helgarblað 28. febrúar 2014
Gæluverkefni
forsætisráðherra
n Forsætisráðuneytið valdi þá sem fá styrki n Einkaaðili í Árborg styrktur
T
íu milljónum króna verður
varið í verkefni á Ísafirði,
sem forsætisráðherra átti
sjálfur hugmynd að fyrir
nokkrum árum. Útbúa á
sérstakt þrívíddarlíkan af bæjar-
kjörnunum fimm sem tilheyra Ísa-
fjarðarbæ, en Sigmundur vann
verkefnið þegar hann var í námi er-
lendis. Það verður nú að veruleika,
vegna styrks sem forsætisráðu-
neytið útdeilir og ekki þurfti að
sækja sérstaklega um. Styrkurinn
kemur úr sjóði atvinnuskapandi
verk efna, en ríkisstjórnin tilkynnti
nýlega hvaða verkefni það væru
sem hlytu styrki.
Sigmundur hringdi í bæjarstjórann
Minjastofnun Íslands sér um út-
hlutunina og eftirfylgni fyrir hönd for-
sætisráðuneytisins, en listi yfir verk-
efnin og upphæðir sem þau hljóta var
birtur í byrjun mánaðar. Sigmund-
ur skrifar undir bréfin til styrkþega,
en í þessu tilfelli fær Ísafjarðarbær
fjármunina sem eru eyrnamerkt-
ir verkefninu. Yfirvöld sóttu hins
vegar aldrei um styrkveitinguna, ekki
frekar en aðrir styrkþegar. Samkvæmt
heimildum DV hringdi Sigmundur
í Daníel Jakobsson, bæjarstjórann á
Ísafirði, þegar verið var að undirbúa
úthlutun styrkjanna og tilkynnti hon-
um að milljónum yrði varið í þetta
ákveðna verkefni.
Fulltrúar í bæjarstjórn fengu hins
vegar engar formlegar tilkynningar
um slíkt. Arna Lára Jónsdóttir, bæjar-
fulltrúi Í-lista sagði í samtali við Vísi
í janúar, að þetta væri sérkennileg
stjórnsýsla. „Við erum þakklát og
þetta eru góð verkefni. Hins vegar
er búið að skera niður fjárveitingu
til annarra verkefna hér á Vestfjörð-
um sem sammælst hefur verið um
að séu afar mikilvæg og gæluverkefni
ráðherra eru fjármögnuð í staðinn,“
sagði Arna við Vísi. Athygli vekur að
verkefnið er merkt sem atvinnuskap-
andi, en erfitt er að sjá að meira en
eitt eða tvö störf verði til vegna þess.
Þá er ekki víst hvort hægt sé að fá að-
ila á Vestfjörðum til að vinna verk-
efnið og líklegt er að leitað verði til
verkfræðistofu, arkitekts eða annars á
höfuðborgarsvæðinu sem getur tekið
verkefnið að sér.
„Fullkomlega eðlilegt“
Þá hafa bókanir fulltrúa í minni-
hluta sveitarstjórnar Árborgar vakið
athygli, þar sem þeir hafa lýst undrun
á því hvernig staðið er að styrkveiting-
um. Sveitarfélagið fékk sent bréf þar
sem greint er frá því að það muni fá
styrk úr ríkissjóði vegna verkefna
sem eru á listanum, en sem fyrr seg-
ir sótti það ekki sérstaklega um hann.
Sveitarfélagið Árborg fær þannig
fimm milljónir króna í styrk vegna
byggingar sökkuls og endurbóta á
húsinu Ingólfi, sem er sögufrægt hús.
Það er þó í einkaeigu, en til stendur
að flytja húsið á lóð á Selfossi sem er
í eigu Árborgar.
Í bókun fulltrúa Samfylkingar seg-
ir að það hljóti að vera afar sérstakt að
sveitarfélag fái úthlutað óumbeðn-
um styrk upp á fimm milljónir króna
til uppbyggingar á húsi í eigu einka-
aðila. Eyþór Arnalds, formaður bæj-
arráðs, segir ekkert óeðlilegt við þetta.
„Með þessu móti höfum við umsjón
með peningunum og getum séð til
þess að þeir fari í rétt viðhald hússins.
Við eigum lóðina, og ef að sá aðili sem
á húsið fengi styrkinn gæti hann end-
að í öðru sveitarfélagi. Nú getum við
tryggt að húsið fari á réttan stað. Þetta
er fullkomlega eðlilegt,“ segir Eyþór. n
Gæluverkefni Sigmundar
Tíu milljónum króna verður
varið í gerð þrívíddarlíkans af
bæjarkjörnunum fimm sem til-
heyra Ísafjarðarbæ. Hugmyndin
að verkefninu er komin frá
forsætisráðherra.
Rögnvaldur Már Helgason
rognvaldur@dv.is „Gæluverkefni
ráðherra eru
fjármögnuð í staðinn.
Nýtt hótel
á Siglufirði
Ekkert lát er á byggingu nýrra
hótela en á Siglufirði hafa
verktakar byrjað að reisa Hót-
el Sunnu. Þetta kemur fram á
vef blaðsins Akureyri Viku-
blað. Það er fyrirtækið Rauðka
ehf. sem á hótelið, en fyrirtæk-
ið rekur kaffihús og veitinga-
stað í bænum. Alls verða 64
herbergi í hótelinu, sem rís
sunnan megin við miðbæ
Siglufjarðar, við sjávarmálið.
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað á Siglufirði á síðustu árum,
en gistinóttum á Norðurlandi
hefur fjölgað síðustu ár, líkt og
annars staðar.
Einar fær ekki bætur
Máli Einars „Boom“ vísað frá og óvíst um áfrýjun
M
áli Einars Inga Marteins-
sonar, „Boom“, fyrrverandi
formanns Hells Angels á Ís-
landi, var á fimmtudags-
morgun vísað frá dómi.
Einar Ingi krafðist þess að fá 75
milljónir í miska- og skaðabætur
frá ríkinu fyrir gæsluvarðhald sem
hann sætti í fimm mánuði á árun-
um 2011–2012 grunaður um að hafa
skipulagt stórfellda líkamsárás í des-
ember 2011. Einar var sýknaður
bæði í héraðsdómi og fyrir Hæsta-
rétti og krafðist skaðabóta eftir það
sem hann kallaði ómannúðlega vist
í Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg og vegna áfallastreituröskunar.
Einar og heimilislæknir hans telja
að hann þjáist af áfallastreiturösk-
un og þunglyndi eftir gæsluvarð-
haldið. Þá hafa börn Einars og eigin-
kona einnig höfðað mál gegn ríkinu
vegna varðhaldsvistar Einars. Þau
krefjast einnig skaðabóta vegna
varðhaldsins og segjast hafa upplif-
að mikla vanlíðan og óöryggi á með-
an að faðir þeirra og eiginmaður var
í varðhaldi. Ekki liggur fyrir hvort ís-
lenska ríkið krefst þess að málun-
um þremur verði einnig vísað frá.
„Hann var verulega reiður á þessum
tíma, taldi að hann væri hnepptur í
gæsluvarðhald án nokkurra raun-
verulegra sönnunargagna og hann
sæti þar vegna orðspors síns en ekki
raunverulegra gjörða,“ sagði í stefnu
Einars en lögmaður íslenska ríkis-
ins sagði hana vanreifaða fyrir dómi
í síðustu viku og sagði mál Einars
skorta sannanir.
Málinu var vísað frá á fimmtudag,
en áður hefur komið fram að íslenska
ríkið hélt því fram að málið væri van-
reifað. Lögmaður Einars sagði ekki á
hreinu hvort málinu yrði áfrýjað, eða
hvort Einar myndi stefna aftur. Hann
kvaðst ætla að skoða úrskurð dómar-
ans og ræða við umbjóðanda sinn.
Allur málskostnaður fellur á íslenska
ríkið. n astasigrun@dv.is
Engar bætur Óvíst er hvort Einar áfrýjar
dómnum til Hæstaréttar. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Helmingur til
kjördæmis for-
sætisráðherra
Tæplega helmingur alls fjár
sem deilt hefur verið út í sér-
stök atvinnuskapandi verk-
efni forsætisráðuneytisins, sem
fjallað er um hér á síðunni, fór
í Norðausturkjördæmi. Það er
kjördæmi Sigmundar Davíðs
forsætisráðherra en alls fengu
verkefni í kjördæminu styrk
upp á 97 milljónir króna. Í heild
verða 202 milljónir settar í verk-
efnin, sem tengjast minjavernd.
Ekki var sérstaklega hægt að
sækja um styrkina, heldur sér
forsætisráðuneyti um að deila
þeim út í verkefni sem talin eru
atvinnuskapandi.