Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Page 2

Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Page 2
Helgarblað 28.–31. mars 20142 Fréttir Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni og Celsus, Ægisíðu 121 Algjört orku- og næringarskot „ Með því að taka Lifestream Spirulina og AstaZan eykst krafturinn yr daginn í vinnunni og ængar seinni part dags eru ekkert mál. Vöðvarnir eru jótari að ná sér eftir ængar. Það að taka auka Spirulina sem er lífrænt ölvítamín, fyrir leik er algjört orku- og næringarskot. Spirulina er líka frábær vörn gegn kve og ensum.“ Steinunn Erla Sigurgeirsdóttir leikskólakennari og landsliðskona í íshokkí. lífræn bætiefni fyrir alla - heilsa til framtíðar TREYSTI Á LIFESTREAM BÆTIEFNIN! Apótek, heilsubúðir, Krónan, Hagkaup, Viðir og Fríhöfnin. E inar Örn Ólafsson, forstjóri Skeljungs, mun hætta hjá olíufélaginu í kjölfar kaupa íslenskra lífeyrissjóða, og annarra aðila, á félaginu í gegnum sjóðsstýringarfyrirtækið Stefni. Ein­ ar Örn hefur stýrt olíufélaginu í fimm ár. Sjóður á vegum Stefnis keypti Skeljung í desember í fyrra á um 10 milljarða króna og áttu hjónin Guð­ mundur Þórðarson og Svanhild­ ur Nanna Vigfúsdóttir 92 prósenta hlut í félaginu. Einar Örn átti svo 3,5 prósenta hlut í félaginu sem hann greiddi um 25 milljónir króna fyrir á sínum tíma. Forstjórinn innleysti því um 300 milljóna króna hagnað í viðskiptunum. Svanhildur Nanna og Guðmundur högnuðust hins vegar um milljarða króna á sölunni sem valin voru viðskipti ársins í Mark­ aði Fréttablaðsins í fyrra. Kaupverð félagsins á sínum tíma nam um 2,5 milljörðum króna. Þegar salan var kynnt í desember var greint frá því að Einar Örn myndi halda áfram að stýra félaginu en af því verður ekki. Ekki liggur fyrir af hverju ákveðið var að hann muni ekki leiða Skeljung áfram eftir eigendaskiptin. Greint var frá starfslokum hans í til­ kynningu á miðvikudaginn þar sem fram kom að Einar Örn hafi hætt sjálfur: „Ég tel þetta vera heppilegan tímapunkt til að standa upp úr for­ stjórastól Skeljungs. Mitt verkefni var að treysta stoðir félagsins til langs tíma og leiða stefnumótunarvinnu þess. Staða fyrirtækisins er sterk og stefnumótunarvinna á lokametrum.“ Hugsanlegt er hins vegar að aðrar ástæður liggi á bak við starfslok hans. n ingi@dv.is Hættir með 300 milljóna söluhagnað Verðmæti Skeljungs fjórfaldaðist í forstjóratíð Einars Arnar n Þjóðleikhúsið lagði upp í kostnað n Hætt við dýra sýningu Þ jóðleikhúsið hefur hætt við að setja upp leikritið Óperu­ drauginn næsta haust, líkt og til stóð. Leikhúsið var búið að leggja út kostnað upp á um eina milljón króna vegna uppsetningarinnar, að sögn Ara Matthíassonar, framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins. Ari segir að það sé „mjög óvenjulegt“ að leikhúsið hætti við að setja upp sýningar sem byrjað er að vinna, líkt og í þessu tilfelli. Vinnan við uppsetninguna var þó ekki vel á veg komin að sögn Ara og því var kostnaðurinn ekki orðinn mikill. Ari segir að til að mynda hafi ekki verið búið að ráða leikmynda­ hönnuð og ekki var búið að skrifa undir samning við leikstjóra. „Það er einhver kostnaður sem fylgir því að hætta við þetta en hann er ekki veru­ legur. Þetta var komið af stað en ekki af fullum þunga.“ Ari segir aðspurður að banda­ rískur dansari og danshöfundur, Sonia Tayeh, hafi átt að koma hing­ að til lands til að taka þátt í uppsetn­ ingunni. Framkvæmdastjórinn segir að Tayeh muni eftir sem áður koma til landsins og vinna með Þjóðleik­ húsinu að öðrum verkefnum. Vinsælasta sýning aldarinnar Óperudraugurinn (e. Phantom of the Opera) er upphaflega skáldsaga eftir franska rithöfundinn Gaston Leroux sem kom út í byrjun 20. aldar. Sagan hefur verið kvikmynduð nokkrum sinnum, síðast fyrir um tíu árum, og hefur sömuleiðis verið sett á fjalir leikhúsa víða um heim. Til að mynda hefur söngleikur eftir Andrew Lloyd Webber, byggður á verki Leroux, verið sýndur í London samfleytt í tæp 30 ár. Óperudraugurinn var vinsælasta leikverk síðustu aldar í heiminum, samkvæmt fréttum sem sagðar voru í fjölmiðlum um síðustu aldamót, en ekkert annað verk halaði inn eins mikið í gegnum miðasölu. Óperudraugurinn hefur einnig verið sýndur hér á landi í nokkur skipti en nokkuð er liðið síðan það var gert síðast. Ari segir að stærsti hluti kostnaðarins við ætlaða upp­ setningu verksins sé kaup á réttinum við að setja leikritið upp. Dýr uppsetning Ari segir að ýmsar ástæður séu fyrir því að hætt hafi verið við að setja leikverkið upp. Sú fyrsta sem hann nefnir er að upphaflega hafi verið talið að fleiri fastráðnir starfsmenn Þjóðleikhússins hefðu getað tekið þátt í uppsetningunni. „Þegar til átti að taka voru þeir ekki jafnmargir og við héldum. Þar af leiðandi hefðum við þurft að ráða fleiri verkefnaráðna að þessu verkefni en það hefði skap­ að viðbótarkostnað.“ Önnur ástæða er sú að 18 tónlistar­ menn hefði þurft til að spila tónlistina í verkinu en upphaflega hafði verið gert ráð fyrir fjórtán, að sögn Ara. Þetta hefði því falið í sér aukinn kostnað. Þá segir Ari að tækjabúnaður Þjóðleikhússins sé ekki mjög góð­ ur og að þar inn í spili niðurskurður til stofnunarinnar á liðnum árum. Hann segir að Þjóðleikhúsið fái engar fjárveitingar til tækjakaupa á þessu ári. „Staða tæknimála í Þjóð­ leikhúsinu er mjög bágborin. Tækni­ lega hefðum við því átt mjög erfitt með að gera þetta […] Ef þú sérð ekki fram á að geta sett slíkt verk upp al­ mennilega og innan fjárhagsramma þá ber þér lagaleg og siðferðileg skylda til að hætta við.“ Orð Ara má því skilja sem svo að betra sé að hætta við slíkar uppsetn­ ingar fyrr en seinna, sjái leikhúsið ekki fram á að geta unnið verkin með þeim hætti sem stjórnendur þess vilja. n Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Ef þú sérð ekki fram á að geta sett slíkt verk upp al- mennilega og innan fjár- hagsramma þá ber þér lagaleg og siðferðileg skylda til að hætta við. „Mjög óvenjulegt Hætt við söngleikinn Ari Matthíasson segir að kostnaðurinn við Óperu- drauginn hafi verið kominn upp í um milljón þegar ákveðið var að hætta við uppsetninguna. Arðbær ár Einar Örn átti 3,5 prósenta hlut í Skeljungi sem hann seldi fyrir meira en 300 milljónir króna. Hann hættir nú hjá olíufélaginu. Ryð með baunum Dósir með bökuðum baunum sem voru til sölu versluninni Iceland hafa verið innkallaðar af Heilbrigðiseftirliti Reykjavík­ ur. Ástæðan ku vera að galli var í húðun á innra byrði umbúð­ anna og afleiðingarnar voru að ryð fór að gæta innan dósanna. Baunirnar eru merktar Crosse & Blackwell og voru framleiddar í Bretlandi. Dósirnar voru ekki teknar úr hillum hjá Iceland fyrr en 25. mars síðastliðinn. Heil­ brigðiseftirlit Reykjavíkur bendir þeim sem keypt hafa vöruna á að skila henni í verslunina þar sem hún var keypt. Árituðu bolta fyrir veikt barn Á herrakvöldi Knattspyrnudeild­ ar Keflavíkur, sem haldið var á dögunum, var boðinn upp bolti sem allir leikmenn meistaraflokks karla höfðu áritað. Andvirði hans rann til Hjartar Fjeldsted, fyrrver­ andi félaga þeirra úr Keflavík, og fjölskyldu hans. Á vefsíðu Knattspyrnudeild­ ar Keflavíkur er greint frá því að Stefán Sölvi, sonur Hjartar og Huldu Óskar Jónsdóttur, eigin­ konu Hjartar, hefur glímt við erfið veikindi en erfitt hefur reynst að greina ástæður þeirra. „Með þessu framlagi vildu Knattspyrnudeild og leikmenn meistaraflokks styrkja þau hjón á erfiðum tímum og sýna þeim um leið samhug.“ Á herrakvöldinu var einnig boðinn upp bolti sem Íslands­ meistarar Keflavíkur árituðu árið 1964 en þeir fjölmenntu á herra­ kvöldið. Á þessu ári eru einmitt 50 ár frá þessum fyrsta Íslandsmeist­ aratitli Keflavíkur. Enginn Óperudraugur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.