Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 11
Fréttir 11Helgarblað 28.–31. mars 2014
Segir skýrslu sanna ofbeldið
Lögmaður Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur grét þegar hann las nýja sálfræðiskýrslu
L
ögmaður Hjördísar Svan
Aðalheiðardóttur segir að
lestur á nýrri sálfræðiskýr-
slu um upplifun dætra Hjör-
dísar af meintu ofbeldi föður
þeirra, Kims Grams Laursen, hafi
komið honum til að gráta. „Þetta er
óþægileg lesning; ég var með tárin
í augunum. Ritarinn minn hætti að
lesa hana af því hún gat það ekki,“
segir lögmaðurinn, Thomas Berg,
en að hans sögn er komist að því í
skýrsl unni að stúlkurnar hafi upp-
lifað meint líkamlegt, kynferðislegt
og andlegt ofbeldi. Að sögn Tómas-
ar er niðurstaða skýrslunnar skýr
að þessu leyti.
Höfundur sálfræðiskýrslunnar,
sem byggir á viðtölum við stúlkurn-
ar sem tekin voru á Íslandi á síð-
ustu mánuðum, er sálfræðingurinn
Jóhanna Kristín Jónsdóttir. Thom-
as segir að skýrslan verði notuð í
dómsmálum sem nú eru höfðuð
í forræðismálinu í Danmörku og
á Íslandi. Lögmaðurinn segir að
skýrslan hafi verið unnin út frá við-
talstækni Barnahúss.
Thomas Berg segist ekki geta
látið skýrsluna af hendir sökum
þess að hún verði notuð sem gagn
í dómsmálunum sem standa fyrir
dyrum.
Málflutningur í dag
Hjördís Svan dvelur nú í fangelsi í
Horsens á Jótlandi vegna gruns um
meint mannrán eftir að hún flutti
dætur sínar með ólöglegum hætti
frá Danmörku. Kim Gram Laur-
sen fer með forræði stúlknanna
en Hjördís Svan hafði umgengn-
isrétt þegar hún stakk af frá Dan-
mörku með stelpurnar. Thomas
Berg segir að nú styttist í að mál-
flutningur hefjist í málinu. Thomas
mun reyna að sýna fram á að Hjör-
dís hafi beitt neyðarrétti þegar hún
flutti stúlkurnar frá Danmörku þar
sem þeim hafi stafað hætta af föð-
ur sínum.
Kim Gram reynir nú að fá stúlk-
urnar aftur til sín til Danmerkur en
þær dvelja um þessar mundir hjá
móðurfjölskyldu sinni á Íslandi.
Stúlkurnar eru því hvorki hjá móð-
ur sinni né föður um þessar mund-
ir.
Í dag, föstudag, hefst málflutn-
ingur í dómsmálinu sem Kim Gram
þurfti að höfða til að fá stúlkurnar
sendar aftur til sín. Lögum sam-
kvæmt má Kim Gram ekki bara
koma hingað til lands og sækja
stúlkurnar. Thomas segir að Kim
Gram hafi gert þá kröfu að stúlkun-
um yrði komið fyrir hjá fósturfor-
eldrum þar til niðurstaða fæst í af-
hendingarmálinu.
Í báðum þessum málum verður
umrædd sálfræðiskýrsla notuð til
að færa sönnur á að Kim Gram sé
meintur ofbeldismaður að sögn
Thomasar.
Telur rannsókn hefjast
Thomas segir lesturinn á skýrslunni
vera átakanlegan og les hann upp
úr henni fyrir blaðamenn þar sem
stúlkurnar eru sagðar lýsa meint-
um samskiptum við föður sinn. Þar
er að finna lýsingar á meintu lík-
amlegu ofbeldi og kynferðisofbeldi,
meðal annars meintri snertingu á
kynfærum, að sögn Thomasar.
Thomas segir að hann telji,
raunar segist hann vera alveg viss
um, að lögreglan í Danmörku muni
hefja rannsókn á meintu ofbeldi
Kims Grams þegar upplýsingarn-
ar úr skýrsl unni munu liggja fyrir í
Danmörku. Hingað til hafa yfirvöld
á Íslandi og í Danmörku ekki séð
tilefni til að hefja sérstaka rannsókn
á meintu ofbeldi Kims Grams. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is „Ég var
með tárin
í augunum
28. mars til 6. apríl 2014
Leyndardómar
SuðurlandsF
ormleg
opnun við
Litlu
Kaffistofu
na
þann 28. m
ars
kl. 14:00
Ráðherrarnir Sigurður Ingi Jóhannsson
og Ragnheiður Elín Árnadóttir ásamt
Gunnari Þorgeirssyni, formanni SASS,
munu opna Leyndardóma Suðurlands.
Alla viðburði má finna inni á
www.sudurland.is
Frítt í Strætó á Suðurlandi
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga bjóða
frítt í Strætó alla leyndardómsdagana.
Sjá áætlunarferðir á www.straeto.is og
upplýsingar eru gefnar í þjónustuveri
Strætó í síma 540-2700 frá 06:00 til 22:00.
Telur skýrsluna sanna ofbeldi Lögmaður Hjördísar Svan Aðalheiðardóttur segir nýja sálfræðiskýrslu sanna meint ofbeldi föður dætra þeirra.