Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Page 17
Helgarblað 28.–31. mars 2014 Fréttir 17
uðu hérna upp og virðast hafa tek-
ið alls konar dót með sér líka,“ segir
nágranni. „Það voru mikil læti í
þeim, þau voru að koma hérna
bæði á daginn og kvöldin. Þetta
voru bara börn, alveg niður í 12 ára
gömul,“ segir nágranninn en tek-
ur fram að hún hafi ekki orðið vör
við börnin síðan að neglt var fyrir
glugga og dyr íbúðarinnar að innan.
Það sést þó greinilega fyrir utan að
börnin hafa komið en ekki haft ár-
angur sem erfiði við að komast inn.
Búið er að krota á plöturnar. „Þetta
voru bara alls konar krakkar þarna,
margir í stroki og vildu ekki láta
finna sig,“ segir stelpa sem kann-
ast við staðinn og fór þangað sjálf.
„Það voru alveg 12–13 ára krakkar
þarna líka, bara þessi hópur sem er
að dópa.“
Komu alltaf aftur
„Við notuðum sama inngang,“ segir
Kristjana Þorgeirsdóttir, rekstrar-
stjóri Baðhússins. Líkamsræktar-
stöðin var nýverið flutt um hús-
næði, frá Brautarholti, þar sem hún
hafði verið starfrækt frá upphafi. Nú
er Baðhúsið starfrækt í Kópavogi, en
Kristjana segir að það hafi vissulega
spilað inn í flutningana það ástand
sem skapast hafi á efri hæðum hús-
næðisins. Það er að segja umgang-
ur fíkniefnaneytenda og ungmenna
sem komið höfðu sér haganlega fyrir
á efri hæðum húsnæðisins. Baðhús-
ið leigði í Brautarholti af Dróma sem
á allt húsið að sögn Kristjönu.
„Þeir komu oft frá Dróma, lokuðu
öllum gluggum og inngöngum,“ segir
hún og bætir við: „en það dugði ekki.
Þau voru komin aftur jafnvel klukku-
tíma seinna. Það var bara búið að
brjóta þetta upp aftur.“ Hún segir að
ónæðið hafi ekki reynst Baðhúsinu
mikið, en að það hafi valdið þeim
áhyggjum að starfsfólk, sem mætti
snemma og lokaði húsinu seint, gæti
mætt fólki í annarlegu ástandi.
n 12 ára börn í dópgreni í Reykjavík n Úrræðaleysi og harður heimur n Eldri menn fela stelpurnar n Börn sem vilja ekki láta finna sig
„Þetta eru ekki skítugu
börnin hennar evu“
„Ég var búin að vera týnd í fjóra daga þegar
það var lýst eftir mér. Ég var bara á djamm-
inu. Ég var heima hjá félaga mínum. Það
var alls konar fólk að koma og fara í nokkra
daga,“ segir stelpa sem er 17 ára og hefur
einu sinni verið auglýst eftir í fjölmiðlum.
Um er að ræða eina skiptið sem auglýst
var eftir henni þó að hún hafi oft látið sig
hverfa í nokkra daga í senn. Þá hefur hún
verið í partíum víða um bæinn. „Þetta er
oft í heimahúsum eða hjá krökkum sem
eru ein heima,“ segir hún. Aðspurð á hvaða
aldri fólkið sem sæki þessi teiti séu segir
hún að það sé allur gangur á því. „Þetta
eru ákveðnir hópar sem eru að dópa og
það fylgir þeim fólk á öllum aldri. Það eru
alveg krakkar niður í 12–13 ára og svo miklu
eldra fólk.“ Hún segir ekki marga kippa sér
upp við það að svo ung börn séu að nota
eiturlyf. „Þau bara fylgja þessum hópum,
eru kannski ekki mikið farin að hanga með
eldra fólkinu fyrst en svo breytist það.“
Stelpan var í stroki í sex daga þangað til
hún fannst. „Ég var með kveikt á símanum
allan tímann en svaraði ekki. Ég vildi ekki
finnast. Ég strauk úr meðferð og ég var
ekki með neinn pening. Ég fékk fíkniefni
hjá eldri strákum. Síðan fór ég niður í bæ og
löggan fann mig strax.“
Hún segist hafa skammast sín fyrir þetta
eftir á. „Ég skammaðist mín eftir að það
var auglýst eftir mér og ég varð vör við það
að fólk leit niður á mig. Vinkonur mínar
voru reiðar út í mig. Það voru bara allir
vonsviknir út í mig og það var vont.“
Hún segist hafa reynt að halda sér frá
þessu „djammi“ eins og hún kallar það
en er þó
ekki alveg
reiðubúin til
þess að hætta.
Hún er í því sem
myndi flokkast undir dagneyslu þó hún
nái dögum inn á milli þar sem hún notar
ekki eiturlyf. „Mig langar að róa mig aðeins
niður, hætta að djamma svona mikið. Eftir
langt djamm líður manni ömurlega. Er
kannski þunglyndur í heila viku og vill ekki
tala við neinn.“
Eftir strokið fór hún í meðferð á Stuðla.
„Þar gekk mér alveg alveg vel, náði að
halda mér nokkuð edrú. Þar eru strangar
reglur sem ég fór eftir. Þegar ég kom út þá
tók við svo mikið frelsi og ég vissi ekki hvað
ég ætti að gera. Ég fór strax út í það sama,“
segir hún.
Ég var bara á djamminu
„Það voru bara allir
vonsviknir út í mig
og það var vont.
Þetta eru týndu börnin Lögregla og barnaverndarnefndir hafa margoft lýst eftir börnum og unglingum í fjölmiðlum á undanförn-
um mánuðum og árum. Vert er að taka fram að þau ungmenni sem DV ræddi við koma ekki fram undir nafni eða mynd, enda um að ræða
viðkvæmt málefni. Myndirnar hér að ofan eru af ungmennum sem lýst hefur verið eftir í fjölmiðlum, sumum jafnvel ítrekað.