Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Side 21
Helgarblað 28.–31. mars 2014 Fréttir 21
Réttur til afskipta
Aðgerðir Brésnevs eru í samræmi
við kenningu sem nefnd hefur verið
eftir honum: „Brésnev-kenningin.“
Hún gengur í sem stystu máli út á að
Sovét ríkin tóku sér þann rétt að skipta
sér af innanlandsmálum á áhrifa-
svæði sínu í Austur-Evrópu og Asíu.
Þau gerðu það líka án þess að hika.
Leoníd Brésnev var við völd í Sovét-
ríkjunum frá 1964 til 1982.
Í ljósi þess sem lýst hefur ver-
ið er því áhugavert að skoða hina
nýju kenningu Pútíns; „Pútín-kenn-
inguna.“ Segja má að hún gangi út á
svipaða hluti, en í henni sé þá meiri
áhersla á að vernda Rússa, rússneska
hagsmuni og stuðla að öryggi Rússa á
því sem kalla mætti „nær-svæðin“ við
Rússland (e. near-abroad).
Þessi svæði er að finna allt frá
Eystrasaltslöndunum til fyrrverandi
Asíulýðvelda gömlu Sovétríkjanna og
allt niður að landamærum Georgíu
og Tadsjikistan. Rússar eru dreifðir
um víðan völl og þar sem þeir eru líta
þeir alltaf á sig sem herraþjóðina og
skilgreina hagsmuni sína sterkt í sam-
skiptum við aðrar þjóðir og þjóðar-
brot.
En hvernig er líklegt að samskipti
Rússa við umheiminn þróist? Stóra
spurningin er sú hvort Pútín láti stað-
ar numið, eða hvort hann lætur til sín
taka á öðrum svæðum þar sem „rúss-
neskir hagsmunir“ eru á ferðinni?
Nærtækasta dæmið er hópur Rússa
sem býr í lýðveldinu Transnistríu í
Moldóvu, en þar kom til blóðugra
þjóðernisátaka árið 1992. Í ágætri
fréttaskýringu síðastliðinn þriðjudag
hér í DV er bent á að þar sé ástandið
mjög eldfimt og að aðgerðir öryggis-
lögreglunnar í lýðveldinu hafi verið
að aukast. Það er því spurningin hvort
það séu að fara í gang einhvers kon-
ar „dómínó-áhrif“ vegna Úkraínu og
að hópar Rússa á hinum og þessum
svæðum láti nú heyra enn frekar í sér.
Það verður að teljast líklegra en ekki.
Pútín mjög vinsæll
Aðgerðir Pútíns hafa aukið vinsældir
hans og því hlýtur það að vera
freisting fyrir hann að láta sig „fljóta“
á mikilli öldu vinsælda sem skap-
ast hefur í Rússlandi eftir innlim-
un Krímskaga. Með þessu þaggar
Pútín einnig niður í æstum þjóðern-
issinnum, sem líkar aðgerðir hans,
sem miða að því að sameina Rússa
í rússnesku ríki. Og Pútín lætur ekk-
ert stoppa sig, hann er „markmiðs-
drifinn“ stjórnmálamaður; hann
tekur ákvarðanir, hann hugsar „stra-
tegískt“ (enda júdókappi!) og í því
upplausnarástandi sem skapaðist í
Úkraínu með landflótta sitjandi for-
seta, Viktors Janúkóvits, sá hann sér
greinilega leik á borði. Og lék hann
til enda!
Umheimurinn horfir hins vegar á
þetta og getur lítið gert annað en að
lýsa yfir vanþóknun sinni og beita
efnahagsþvingunum. Sem hefur ver-
ið gert í formi ferðabanns á mikil-
væga aðila í Rússlandi, frystingu á
bankastarfsemi og öðru slíku. „Þetta
breytir engu fyrir okkur,“ var haft eftir
utanríkisráðherra Rússlands, Sergei
Lavrov, sem er einn lykilmaðurinn í
rússneskum stjórnmálum.
Þetta breytir því hins vegar ekki að
samskipti Rússa og umheimsins hafa
sjaldan eða aldrei verið kaldari en
einmitt nú og í grein á BBC er þegar
byrjað að tala um nýtt kalt stríð eða
„Kalda stríðið 2.“
Þó svo að rússneskir ráðamenn séu
brattir um þessar mundir og afskrifi
aðgerðir Vesturlands sem bitlausar,
þá er spurning hvort staðan verði slík
að eilífu. Líklega ekki. Viðskipti Rúss-
lands við Evrópu sérstaklega, sem og
Bandaríkin, skipta Rússa miklu máli.
Því er mikilvægt fyrir Rússa að hafa
þessa aðila góða. Rússar þurfa á vin-
veittum umheimi að halda, þó svo að
hið gagnstæða sé ráðandi núna og
verði líklega um sinn.
Einnig er líklegt að vinsældir
Pútíns haldist ekki í þeim hæðum
sem þær eru í að eilífu. Og hvað ger-
ir hann þá? Skipar hann hernum inn
á nýtt svæði að „verja rússneska hags-
muni“ ef svo ber undir?
Getur breytt Bandaríkjunum
í öskuhrúgu!
Í fréttaskýringu frá hugveitunni Strat-
for Global Intellingence kemur fram að
Rússar líti svo á að atburðirnir í Úkraínu
séu til komnir fyrir atbeina Bandaríkj-
anna og Rússar verði að verjast fram-
ferði Bandaríkjamanna. Þar er fullyrt að
löndin standi í raun andspænis hvort
öðru með álíka hætti og í kalda stríðinu.
Málfæri manna er einnig orðið mjög í
anda kalda stríðsins og til dæmis sagði
einn helsti fréttaþulur Rússlands nýlega
að Rússland „væri eina ríkið sem gæti
breytt Bandaríkjunum í öskuhrúgu,“
og vísaði þar til kjarnorkuvopnabúrs og
kjarnorkugetu Rússa. Þegar orðfærið
er komið á þetta stig er ljóst að harkan
í samskiptum Rússlands og Bandaríkj-
anna er orðin mikil. Þá þenjast taugarn-
ar og þegar út í það er komið getur í
raun margt gerst. n
Hér er réttlætingin
Aðgerðir í samræmi við öryggismálastefnu Rússlands
n Þegar um stórveldi á borð við Rússland er að ræða er nauðsynlegt að slíkt ríki hafi
þjóðaröryggistefnu. Í umfjöllun á heimasíðu sænsku utanríkismálastofnunarinnar
(Utrikespolitiska Institutet) skrifar blaðamaðurinn Per Jönsson grein um Rússland og
Úkraínu, en hann er einn fremsti blaðamaður Svíþjóðar. Í greininni segir hann að aðgerðir
Rússa séu í fullkomnu samræmi við öryggismálastefnu landsins sem var sett saman
árið 2009 og á að vera í gildi til 2020. Í henni eru ræddar þrjár forsendur sem geta leitt
til þess að Rússaland beiti hervaldi. Þessar forsendur eru: 1) Að vernda líf og hagsmuni
rússneskra þegna erlendis. 2) Að hindra að lönd sem áður tilheyrðu Sovétríkjunum og
eru á hinu svokallaða „nær-svæði“ komist undir stjórn fjandsamlegra, útlenskra afla og
3) Að koma í veg fyrir alla þá þróun sem getur teflt kjarnorkumætti Rússlands í hættu og
getu landsins til þess að svara fyrir sig með kjarnorkuvopnum. Það er því ljóst að inngrip
Rússa í Úkraínu er að minnsta kosti í samræmi við fyrsta skilyrðið.
Ekki í ástandi til að fljúga
Samband flugmanns Malaysia Airlines og eiginkonu hans var í uppnámi
É
g er enginn sérfræðingur, en
miðað við allt sem var í gangi var
hann ekki í neinu ástandi til að
fljúga,“ segir góður vinur Zaharie
Ahmad Shah, flugmanns vélar Ma-
laysia Airlines, MH370, sem saknað
hefur verið síðan 8. mars síðastliðinn.
Í viðtali við New Zealand Herald
segir vinur Shah, sem einnig er
flugmaður, að eiginkona Shah
hefði ákveðið að yfirgefa hann fyrir
skemmstu. Þeirri kenningu hef-
ur verið haldið á lofti að Shah hafi
framið sjálfsvíg og segist vinur hans
ekki útiloka þá kenningu. Hann hafi
virst fjarlægur í aðdraganda flugsins
þann 8. mars síðastliðinn og verið í
tilfinningalegu ójafnvægi.
Fyrir liggur að vélin flaug upp í
43 til 45 þúsunda feta hæð sem er
töluvert meiri hæð en ráðlagt er
fyrir vélar af sömu tegund, Boeing
777-200ER. Heimildarmaður Mail
Online segir að vélinni hafi verið
flogið í þessari hæð í 23 mínútur
áður en hún lækkaði aftur flugið.
Hafi þrýstingi verið létt handvirkt af
farþegarýminu þýðir það að súrefn-
isbirgðir vélarinnar hafa verið á þrot-
um eftir tólf mínútur. Líklega hafi
allir um borð fallið í yfirlið að þeim
tíma liðnum. Þetta hefði ekki nein
áhrif á vélina, hún hefði haldið áfram
að fljúga á sjálfstýringu áður en hún
varð eldsneytislaus.
Hvað nákvæmlega gerðist þó er
öllum hulin ráðgáta en þær ályktanir
hafa verið dregnar, miðað við stefnu
vélarinnar þegar síðast spurðist til
hennar, að hún hafi hrapað í Ind-
landshafi – um 2.500 kílómetra und-
an vesturströnd Ástralíu.
Leit að vélinni stendur yfir á Ind-
landshafi og beina leitarflokkar
sjónum sínum að þremur svæð-
um. Tony Abbott, forsætisráðherra
Ástralíu, hefur látið hafa eftir sér að
leit muni ekki halda áfram út í hið
óendanlega. n
einar@dv.is
Harmleikur Talið er næsta víst
að vélin hafi brotlent í Indlandshafi.
Vinur flugmannsins segir hann ekki
hafa verið í ástandi til að fljúga.
RússaR valta yfiR úkRaínumenn
n Yfirtaka Rússa á Krímskaga heldur áfram n Blása á refsiaðgerðir n Aðgerðir samkvæmt „Pútín-kenningunni“ n Nýnasistaleiðtogi fannst látinn
Nýnasistaleiðtogi myrtur
Var eftirlýstur af Rússum vegna stríðsglæpa
n Einn þekktasti nýnasista-
leiðtogi Úkraínu, Oleksandr
Muzychko, einnig þekktur
sem Sashko Billy, lést eftir
skotbardaga við lögreglu í
bænum Rivne, í vesturhluta
Úkraínu síðastliðinn þriðju-
dag. Tvennum sögum fer að
því hvernig dauða hans bar
að, og segja stuðningsmenn
hans að hann hafi verið
myrtur. Aðstoðarinnanríkis-
ráðherra Úkraínu, sagði í
samtali við BBC að Sashko
hefði skotið á lögregluna, hún hefði svarað í sömu mynt. Á fréttamyndum hefur mátt sjá
illa leikið lík Sashko liggja á víðavangi.
Hann var fæddur árið 1962 og var leiðtogi hóps sem kallar sig „Hægri armurinn“ ef þannig
má að orði komast. Rússar hafa löngum litið á hann sem glæpamann og hann hefur
komist í kast við lögin, var dæmdur í fangelsi árið 1999 fyrir fjárkúgunarstarfsemi og sat
inni í nokkur ár. Þá hafa Rússar einnig haft horn í síðu hans vegna ódæðisverka sem þeir
telja að hann hafi framið í stríðinu í Tsjetsjeníu á árunum í kringum 2000. Samkvæmt
frétt frá rússnesku fréttastofunni Rianovosti ásökuðu rússnesk yfirvöld hann um að
hafa staðið fyrir morðum á 20 hermönnum Rússa. Hér er því komin enn ein tengingin við
þau skuggalegu átök, þar sem ólýsanleg grimmdarverk og mannréttindabrot voru fram-
in af öllum aðilum. Árið 2007 lét hann til dæmis þau ummæli falla að hann „… myndi
berjast gegn gyðingum, Rússum og kommúnistum á meðan blóðið rynni í æðum hans.“
Sashko Billy var í raun stríðsnafn hans og tóku hann og hreyfing hans virkan þátt í mót-
mælunum á Maidan-torginu í Úkraínu, sem leiddu til landflótta Viktors Janúkóvits, for-
seta landsins fyrir skömmu. Í fréttum og myndskeiðum sem til eru af honum sést hann
víða heilsa með nasistakveðju, sem undirstrikar hugmyndafræðilega afstöðu hans.
Á meðfylgjandi mynd sést Oleksandr Muzychko (Sashko Billy) hella sér í reiðikasti yfir
ungan saksóknara í Úkraínu. Augnabliki síðar á myndbandinu hendir hann manninnum
frá sér. Á minni myndinni er Sashko í herklæðum á blaðamannafundi. Oleksandr fannst
látinn á víðavangi í vesturhluta Úkraínu síðastliðinn þriðjudag.
Bara áhorfandi!
Úkraínskur hermaður
fylgist niðurlútur með
útsendingu rússneska
sjónvarpsins, þar sem
Vladimír Pútín tilkynnir
innlimun Krímskaga í
Rússland. Mynd ReuteRs