Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 32
4 Heimili og hönnun Helgarblað 28.–31. mars 2014
Undurfalleg heimili
um víða veröld
n Sundlaug, svartir veggir og arabískar nætur
H
vað er líkt með Marokkó,
Íslandi og Danmörku?
Þegar kemur að innan-
hússhönnun er það bara
nokkuð mikið.
Dökkir veggir og framandi hús-
gögn sem virðast hafa gengið í arf
á milli kynslóða svo öldum skiptir,
eru vinsæl hér á landi sem og víða
í heiminum.
Þórunn Högnadóttir, ritstýra
Home Magazine, á ekki erfitt með
að næla sér í innlit um allan heim.
Þórunn hefur starfað lengi sem
stílisti og á síðustu árum hefur hún
verið iðin við að kenna landsmönn-
um að betrumbæta híbýli sín. Þessa
dagana er hún að leiðbeina við-
skiptavinum Húsasmiðjunnar um
litaval ásamt því að ritstýra Home
Magazine og stjórna nýjum sjón-
varpsþætti fyrir nýju sjónvarpsstöð-
ina, Miklagarð. Blaðamaður hitti
Þórunni á dögunum og spurði hana
út í nýjustu tískustrauma í innan-
hússhönnun.
Dökkt skal það vera
„Nýjustu straumar eru klárlega
dökkir litir, svart grátt og brúnir tón-
ar, tekkið, hnotan og svört eik er
mjög vinsælt í húsgögnum. Svo er
auðvitað alltaf fallegt að hafa hvíta
litinn með. Klassísk hönnun er að
sjálfsögðu alltaf vinsæl og verður
áfram, og myndi ég segja að það
væri en meiri vakning þar og fólk
vil hafa fallega hluti í kringum sig.
Sama má segja með liti í málningu,
náttúrulegir tónar eru mjög vinsæl-
ir núna, gráir, ljósbrúnir og jafnvel
svartur, sem er pínu frekur en samt
töff,“ segir Þórunn þegar hún er
spurð út í nýjustu strauma í innan-
hússhönnun.
En hver skyldi uppáhalds-
hönnuður í húsgagnahönnun og
munum vera og af hverju?
„Ég get ekki gert upp á milli þeirra
Arne Jacobsen og Eames-hjónanna,
ég er svo heppin að eiga húsgögn
eftir þessa stórkostlegu hönnuði.
Mér finnst hönnun þeirra beggja
vera klassísk og þægileg. Drauma-
stólarnir mínir eru hægindastóllinn
frá Eames og koníaksbrúnn svanur
eftir Arne Jacobsen.“
Hvernig myndir þú lýsa stíl þín-
um?
„Hann er pínu hrár en samt hlý-
legur.“
Draumahúsið þitt er?
„Væri alveg til í að eiga hús við
sjávarlóð, með risagluggum og út-
sýni yfir hafið.“
Viltu segja mér frá Marrakesh-
innlitinu?
„Maryam Mountugue býr
Marrak esh ásamt fjölskyldu sinni,
þau búa í yndislegu húsi sem hún
kallar ólífulund. Þar tekur hún
líka á móti fólki í gistingu, bara
spennandi. Mæli með að kíkja inn
á síðuna hennar Peacock Pavilions.“
Nú eru dökkir litir ráðandi, en er
bannað að mála lítil rými dökk að
þínu mati?
„Bara alls ekki, mér finnst lítil
rými sem eru með dökka liti verða
meira kósí en þau sem eru ljós.“
Hvenær er tími fyrir útihúsgögn-
in?
„Sá tími fer að koma, ég myndi
segja eftir miðjan apríl væri flott að
setja húsgögnin út.“
Er komin 2007-stemming aftur í
landann eða er fólk enn þá duglegt
að endurvinna gömul húsgögn og
nýta gamla muni?
„Myndi kannski ekki segja að
2007 væri komið aftur, en fólk er
klárlega byrjað aftur að spá í hvernig
er heima hjá því. Og já, fólk er mjög
mikið að gera upp gömul húsgögn
og hluti og nýta það sem til er heima
við.“ n
Slökun Hér væri ekki amalegt að láta líða
úr sér eftir annasaman dag.
Betina og Simon Þau eru
eigendur Bloomingville, og búa í
fallegu húsi í Herning í Danmörku.
MynD BlooMingville.coM
Þúsund og ein nótt Dökkt og rómantískt
svefnherbergi hjá Maryam.
MynD MaryaM Montague
Fallegt Eldhúsið hennar Birgittu er smart
og vel skipulagt.
Íris Björk Jónsdóttir
iris@dv.is
Þórunn Högnadóttir
Henni er margt til lista lagt
og nýjasta verkefni hennar er
sjónvarpsþáttur á sjónvarps-
stöðinni Miklagarði.
tímalaus hönnun
Stofan er glæsileg í alla staði og hefur
verið nostrað við hvert smáatriði
MynD © FotograF cHriStian B / 2014
undurfallegt
Allir munir passa afar vel
saman í þessu glæilega rými.
MynD © FotograF cHriStian B / 2014
Stílhreint og smart Þetta
er svefnherbergi Birgittu Svein-
björnsdóttur, sem er dansari og
stílisti hjá NTC. Hún býr i fallegu
húsi í Brekkugerði.