Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 40
Helgarblað 28.–31. mars 201432 Fólk Viðtal
É
g er ekki hættur í tónlist þótt
ég sé ekki mikið að koma
fram sem söngvarinn Snorri
Snorrason,“ segir tónlistar-
maðurinn Snorri Snorrason
sem sigraði í Idol-stjörnuleit árið
2006.
Þjáist af félagsfælni
Snorri var þriðji sigurvegari
keppninnar sem var geysivinsæl á
sínum tíma. Þrátt fyrir væntingar
um farsælan frama hefur hins
vegar farið lítið fyrir honum síð-
ustu árin. Hann rekur þó sitt eig-
ið fyrirtæki, Fjarupptokur.is, en
starfar samhliða því sem sölumað-
ur.
„Þetta gekk vel til að byrja með
og ég var bókaður úti um allt. En
svo fór að lægja. Vissulega hefði ég
getað teygt mig eftir því að halda
áfram en ég var þegar byrjaður í
stúdíóbransanum og fílaði mig
betur á hliðarlínunni.
Það er ekki fyrir alla að verða
svona almenningseign. Ég hef
þjáðst af félagsfælni síðan ég var
krakki og hef helst viljað læðast
meðfram veggjum. Það gat ég ekki
lengur. Athyglin var gríðarleg og
það átti illa við mig. Best fannst
mér þegar mesti æsingurinn var
liðinn og áhuginn orðinn eðlileg-
ur.
Ég upplifði að ég hefði misst alla
stjórn; að mér hefði verið hent út í
hringiðuna. Eftir sigurinn var rusl-
að í plötu og „gigg“, sem kannski
hentuðu mér ekki, plönuð. Allt átti
að gerast svo hratt,“ segir Snorri
sem segir teymið í kringum hann
hafa haft aðra framtíðarsýn en
hann. „Maður var ekki alveg þessi
barnastjörnutýpa.“
Missti föður sinn
Snorri ólst upp í Breiðholtinu en
segist ekki hafa verið einn af hin-
um svokölluðu Breiðholtsvilling-
um. „Ég hef alltaf verið rólegur.
Ég var mjög feiminn sem krakki
og lét lítið fyrir mér fara. Ég byrj-
aði snemma í tónlist og var til
að mynda í hljómsveitinni Mary
Poppins með Gunnari Bjarna en
sú sveit átti nokkur vinsæl lög,“
segir Snorri sem er langyngstur í
hópi þriggja systkina.
Foreldrar hans, Snorri Þorláks-
son og Fjóla Stefánsdóttir, skildu
þegar hann var átta ára en faðir
hans lést árið 2007 eftir stutta bar-
áttu við briskrabbamein. „Pabbi
greindist stuttu eftir Idolið og dó
nokkrum mánuðum síðar. Andlát
hans fékk mikið á mig. Hann var
minn helsti stuðningsmaður. Við
vorum góðir vinir, hann var mað-
urinn sem ég gat leitað til með allt.
Hann tók mikinn þátt í Idolinu og
var „all-in“ í því með mér.
Dauði hans breytti mér. Þegar
hann fór upplifði ég fyrsta stóra
áfallið í mínu lífi. Þetta var mjög
erfitt,“ segir Snorri og bætir við að
hann hafi þurft að halda andlitinu
fyrir synina. „Þeir voru að missa
afa sinn. Þeir voru mjög nánir.
Pabbi bjó hjá okkur undir það síð-
asta svo strákarnir voru mikið í
kringum hann.
Að missa foreldri er svo mikill
endir; þegar leiðir skilur svona.
Og ég held að það skipti engu
máli hvað maður er gamall þegar
það gerist; þetta er alltaf erfitt.
Þó vissulega sé það líklega enn
erfiðara fyrir barn.“
Tvítugur þriggja barna faðir
Snorri varð faðir ungur en hann og
fyrrverandi eiginkona hans, Inga
Þóra, fóru að vera saman árið 1993
þegar hann var aðeins 16 og hún
14. Þremur árum síðar höfðu þau
eignast son og svo komu tvíbura-
drengir í heiminn árið 1998. Snorri
var því orðinn þriggja barna faðir
um tvítugt.
„Tvíburarnir fæddust tveimur
og hálfum mánuði fyrir tímann og
voru ekki nema sex merkur. Þeir
voru lengi í öndunarvél og hita-
kassa og það var tvísýnt um ann-
an þeirra um stund. Þetta var
mjög erfitt en þetta blessaðist allt
saman. Þetta eru heilbrigðir strák-
ar í dag.“
Elsti sonurinn er jafn gamall og
Snorri þegar hann varð faðir, 18
ára. „Við vorum ung komin í pakk-
ann en við stóðum okkur vel. Við
áttum góða að og fengum þá hjálp
sem við þurftum. Mér fannst ég
voðalega fullorðinn en kannski
eru tímarnir breyttir því ef ég horfi
á krakka á þessum aldri í dag get
ég ekki ímyndað mér þá standa í
svona löguðu. En einhvern veginn
tæklaði maður þetta.“
Þunglyndi eftir skilnað
Hann og barnsmóðir hans skildu í
fyrra. „Við vorum bara börn þegar
við byrjuðum saman og höfðum
vaxið í sundur í langan tíma.
Við höfðum barist hlið við hlið í
þessum pakka, að ala upp börn-
in og koma okkur upp heimili en
gleymdum okkur sjálfum. Þetta
heitir að rækta ekki sambandið,“
segir hann og bætir við að ósk
hennar um skilnað hafi þó kom-
ið honum í opna skjöldu. „ Maður
átti svo sem að sjá þetta fyrir og
þegar ég horfi til baka sé ég að það
hlaut að koma að þessu. Einhver
varð að taka fyrsta skrefið. Við
vorum komin langt frá hvort öðru
fyrir mörgum árum,“ segir Snorri
sem átti um tíma erfitt með að
sætta sig við skilnaðinn. „Maður
hefur þurft að fara í gegnum alls
kyns tilfinningar og pælingar um
lífið, börnin og allt það sem maður
hefur byggt. Þetta hrundi allt. Þótt
strákarnir séu engin börn leng-
ur þá er að sjálfsögðu erfitt fyrir
þá að sjá heimilið tvístrast. Þetta
tók á alla og sjálfur sökk ég djúpt
í þunglyndi.“
Fann ástina í Heiðu
Snorri hefur barist við þunglyndi
en segist aldrei hafa verið jafn
þungur og eftir að þau skildu. „Ég
var bara ráfandi um í villu og rugli
og gat ekki mætt í vinnu fyrstu
dagana á eftir, lá bara undir sæng
og notaði áfengi til að deyfa mig.
Ég vildi helst vera út úr heiminum.
Þetta var helvíti súrt.
Á einhverjum tímapunkti verð-
ur maður svo að standa upp og eft-
ir tvo, þrjá mánuði gerði ég það.
Í dag líður mér miklu betur og er
„Ég sé ekki eftir neinu“
Tónlistarmaðurinn Snorri Snorrason var á
allra vörum eftir að hafa sigrað í Idol-stjörnuleit árið
2006. Lítið hefur hins vegar farið fyrir Snorra opin-
berlega en átökin hafa verið þeim meiri í einkalífi
hans. Snorri ræðir hér um þungbæran föðurmissi,
frægðina sem hann höndlaði ekki, erfiðan skilnað og
þunglyndið sem fylgdi í kjölfarið, félagsfælnina sem
hefur hrjáð hann frá unga aldri og ástina sem hann
hefur fundið að nýju.
Indíana Ása Hreinsdóttir
indiana@dv.is
„Það fór mér illa að
vera of þekktur og
á milli tannanna á fólki.
Sigurvegarar
Idol-stjörnuleit
2003–2004
Kalli Bjarni
2004–2005
Hildur Vala
Einarsdóttir
(Aðalheiður
Ólafsdóttir lendir
í öðru sæti)
2005–2006
Snorri Snorrason
2009
Hrafna Hanna
Elísa Herberts-
dóttir
„Ég vildi helst
vera út úr
heiminum