Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Síða 41
Helgarblað 28.–31. mars 2014 Fólk Viðtal 33
„Ég sé ekki eftir neinu“
sáttur við skilnaðinn,“ segir Snorri
sem hefur fundið ástina að nýju í
söng- og leikkonunni Aðalheiði
Ólafsdóttur, betur þekktri sem
Heiðu Idol. „Heiða kom inn í líf
mitt á hárréttum tíma og reif mig
upp þar sem ég bókstaflega lá hálf
dauður haldandi að lífið væri búið.
Við kynntumst þegar hún söng lag
eftir mig á plötuna sína en fórum
svo að dúlla okkur saman núna
eftir áramótin. Ég gæti ekki verið
ánægðari með lífið eins og það er
í dag og er að springa úr hamingju.
Hlutirnir hafa gerst mjög hratt en
það er bara þannig þegar hlutirn-
ir eru réttir.
Heiða er svo hlý og góð mann-
eskja og það heillar mig.“
Frægð er ofmetin
Þegar Snorri er beðinn um ráð
handa framtíðarsigurvegurum
keppna í anda Idolsins nefnir
hann einlægni. „Það er bara þetta
týpíska; að halda áfram að vera þú
sjálfur og muna að setjast niður í
rólegheitum og pæla í hvað það er
sem þig langar virkilega að gera.
Það er um að gera að fara eftir eig-
in hjarta en ekki rasa áfram í pen-
ingatínslu.
Ég vildi ráða sem mestu sjálfur
en var stjórnað af útgáfufyrirtæk-
inu sem auðvitað hafði skoðanir á
því hvað færi út. Ég hefði viljað hafa
meiri tíma. En svo hafa þessi hlut-
ir eflaust breyst í dag. Ætli það séu
nokkuð plötusamningar í verðlaun,
núna er fólk meira á eigin vegum
plús að ég held að svona þættir
séu ekki lengur jafn vinsælir,“ segir
hann og bætir við að frægð sé of-
metin. „Ég gerði mér grein fyrir að
ég yrði frægur ef ég kæmist langt en
draumur minn var aldrei að verða
frægur. Ég vildi bara geta lifað á
tónlistinni.
Ég fór ekki í þessa keppni til að
öðlast frægð heldur vegna þess
að vinur minn, Alexander Aron,
dró mig með sér. Við fylgdumst að
þar til hann datt út. Þetta var samt
mjög skemmtilegt og ágætis til-
breyting fyrir mann sem vill helst
aldrei vekja á sér athygli. Ég hélt
aldrei að ég myndi sigra. Ég ætlaði
bara að hafa gaman af þessu.“
Hann viðurkennir að frægðin
hafi reynt á fjölskylduna. „Öll þessi
athygli sem flæddi yfir okkur tók á
okkur Ingu en strákarnir voru svo
litlir að þeir höfðu bara gaman af
þessu.“
Lifði ameríska drauminn
Þrátt fyrir skin og skúrir lítur Snorri
sáttur til baka. „Ég held að það
sé ekkert sem ég hefði viljað gera
öðruvísi. Kannski hefði maður átt
að hlúa betur að því sem maður
átti en það er engin eftirsjá í sjálfu
sér, það er enginn fullkominn. Ég
sé ekki eftir neinu. Ég á þrjá heil-
brigða stráka, átti raðhús og lifði
þennan ameríska draum,“ segir
hann brosandi og bætir við að
varðandi tónlistina hafi hann ein-
faldlega ekki fundið sig í skærasta
sviðsljósinu. „Ég fór viljandi á bak
við tjöldin. Það fór mér illa að vera
of þekktur og á milli tannanna á
fólki.
Þótt maður hafi dregið sig til
baka gleymist maður ekki svo auð-
veldlega. Að sigra í þessari keppni
hjálpaði mér mikið bæði með
stúdíóið og svo væri heldur enginn
að biðja mig að syngja í brúðkaup-
inu sínu ef ég hefði ekki sigrað í
þessu Idoli. Svo nei, ég sé ekki eft-
ir neinu.
Ég er búinn að gera yfir tíu
plötur í hljóðverinu mínu, þótt
þær séu fyrir aðra tónlistarmenn,
og svo hef ég spilað mikið með
Jet Black Joe og fleirum. Núna er
ég að vinna með hljómsveit sem
heitir Kvika og á lag í spilun á öll-
um útvarpsstöðvum. Ég syng lítið
og aðallega bara í jarðarförum og í
brúðkaupum. En ég hef bara gam-
an af því.“
Framtíðina segir hann óráðna.
„Ég sé framtíðina með Heiðu. Von-
andi verður þetta bjart og gott líf.
Það er aldrei að vita nema maður
byrji upp á nýtt og að í þetta skipti
komi þrjár stúlkur. Annað eins hef-
ur nú gerst.“ n
1977
Snorri
fæðist
2005
Skráir sig í Idol-
stjörnuleit
2010
Snorri gefur út
lagið Æskuást
1993
Byrjar með
æskuástinni
2006
Snorri sigrar í
Idol-stjörnuleit
2013
Skilur við
barnsmóður
sína
1996
Elsti sonurinn
fæðist
2006
Platan Allt sem
ég á kemur út
2014
Snorri finnur
ástina að nýju
1998
Tvíburarnir
fæðast
2007
Faðir hans deyr
eftir baráttu við
krabbamein
Tímalína
Félagsfælinn Snorri segist helst
alltaf hafa viljað læðast meðfram
veggjum en það hafi ekki verið hægt
eftir sigurinn. Mynd Sigtryggur Ari
rekur sitt eigið fyrirtæki Snorra líður
betur á hliðarlínunni en í eldlínunni, að eigin
sögn. Mynd Sigtryggur Ari
Feðgar Snorri var orðinn þriggja barna faðir tví
tugur að aldri. Mynd Úr einkASAFni Með pabba Faðir Snorra lést eftir stutta
baráttu við krabbamein. Mynd Úr einkASAFni