Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 42
34 Skrýtið Helgarblað 28.–31. mars 2014
n Suður-Kóreumenn drekka mest af sterku áfengi n Hollendingar þamba kaffi
H
ollendingar drekka miklu
meira kaffi en nokkur önn-
ur þjóð í heiminum. Engir
slá Suður-Kóreumönnum
við þegar kemur að neyslu
sterks áfengis og Tyrkir bera höfuð
og herðar yfir aðra þjóðir þegar
kemur að neyslu tes. Vefsvæðið
Quartz, eða qz.com, heldur utan um
skemmtilega tölfræði um allt á milli
himins og jarðar. Forvitnilegt er að
skoða hverjir það eru sem drekka
mest, og rýna í ástæðurnar sem
liggja að baki.
Drekka Soju
Þegar kemur að sterku áfengi eru
Suður-Kóreumenn í sérflokki. Þeir
dreka tæplega 14 skot á viku, eða tvö
á meðaltali að dag. Tölurnar byggja
á gögnum frá Euromonitor, gagna-
grunni sem býr yfir gríðarmiklum
upplýsingum um neyslu og mark-
aði. Rússar eru sú þjóð sem inn-
byrðir næst mest af áfengum sterk-
um drykkjum – af þeim 44 löndum
sem til skoðunar eru. Rússar drekka
6,3 skot að meðaltali á viku – enda
frægir fyrir neyslu sína á vodka.
Fillipseyingar eru í þriðja sæti og
Taílendingar í því fjórða.
Mikilli neyslu áfengis fylgja alla
jafna nokkur vandræði. Suður-
kóresk stjórnvöld fóru árið 2011 í
herferð gegn neyslunni. „Vanda-
málið við drykkjuna er að Suður-
Kóreumenn verða fullir of hratt,“
hafði New York Times eftir yfir-
manni suðurkóreskrar rannsóknar-
stofnunar um áfengisneyslu árið
2012. Vandamálið er Íslendingum
kannski ekki alveg framandi, þótt
þeir hafi ekki verið með í úttektinni.
Í Suður-Kóreu eru slagsmál
vegna neyslu sterkra áfengra drykkja
tíð. Vandamálið þykir stórt en það
má að mestu rekja til neyslu drykkj-
ar sem kallaður er Soju. Raunar má
rekja 97 prósent neyslu sterks áfeng-
is til neyslu á Soju – sem fæst af ýms-
um bragðtegundum.
Mikil drykkja í Tyrklandi
Engin þjóð drekkur meira magn af
tei en Kínverjar. Sú mynd breytist
hins vegar þegar horft er til neyslu
á hvern íbúa. Tyrkir og Írar og Bret-
ar drekka mest allra þjóða þegar te-
drykkjunni er deilt niður á íbúa-
fjölda. Hver Tyrki notar að jafnaði
3,5 kíló af tei. Írar og Bretar nota á
bilinu 2 til 2,5 kílóa á ári – að meðal-
tali en þessar þrjár þjóðir eru í
nokkrum sérflokki.
Hollendingar þamba kaffi
Norðurlandaþjóðirnar raða sér í
nokkur af efstu sætunum þegar
kemur að kaffidrykkju. Aðeins Hol-
lendingar drekka meira en Finnar,
Svíar og Danir – og raunar drekka
þeir miklu meira. Dæmigerður
Hollendingur drekkur að meðaltali
2,4 bolla af kaffi á dag. Engin þjóð
kemst með tærnar þar sem þeir
hafa hælana. n
Þessir drekka mest
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Skot
Skot
pund
pund
pund
pund pund
pund pund pund pund pund
Skot
Skot Skot
Skot Skot Skot
Skot
Bollar
Bollar
Bollar
Bollar Bollar Bollar Bollar Bollar Bollar Bollar
Sterkt áfengi
Tedrykkja
Kaffineysla
B
ra
si
lía
Fjöldi skota á viku
Neysla á ári í pundum
Fjöldi bolla á dag
S
uð
ur
-K
ór
ea
T
yr
kl
an
d
Ír
la
nd
R
ús
sl
an
d
M
ar
ok
kó
N
ýj
a-
S
já
la
n
d
H
ol
la
n
d
Fi
n
n
la
n
d
S
ví
þ
jó
ð
D
an
m
ör
k
Þ
ýs
ka
la
n
d
S
ló
va
kí
a
Té
kk
la
n
d
P
ól
la
n
d
N
or
eg
ur
S
ló
ve
n
ía
E
g
yp
ta
la
n
d
P
ól
la
n
d
Ja
p
an
S
ád
i-
A
ra
b
ía
S
uð
ur
-
A
fr
ík
a
R
ús
sl
an
d
Fi
ll
ip
se
yj
ar
Ta
íl
an
d
Ja
pa
n
B
úl
ga
rí
a
Ú
kr
aí
na
Sl
óv
ak
ía
13,7
7,0
4,3
3,0
2,7 2,6
2,4
1,8
1,4 1,2 1,2 1,2 1,2 1,2 1,1 1,1
2,3 2,2 2,1 2,0 1,8
6,3
5,4
4,5 4,4
3,9 3,9 3,8 3,6
Soju Þetta er
vinsælasti sterki
drykkurinn í Suður-
Kóreu.
Ölvun Áfengisdrykkja er
mikið vandamál í Suður-
Kóreu. MynD SHuTTerSTock
Hollendingar
öflugir Norðurlanda-
þjóðirnar eru ofarlega
þegar kemur að kaffi-
drykkju. Enginn skákar
þó Hollendingum.
Böstuð með
bjór og barn
á brjósti
Tasha Adams, 27 ára móðir í Ark-
ansas í Bandaríkjunum, var hent
í grjótið þegar hún var staðin að
áfengisneyslu á sama tíma og hún
gaf barni sínu brjóst. Atvikið átti
sér stað á veitingastað í Conway
í Arkansas, en gengilbeina til-
kynnti málið til lögreglu. Adams
var kærð fyrir að stofna heilsu
barns síns í hættu. Þar með er
ekki öll sagan sögð því málið gegn
henni var látið niður falla, enda
ekkert í lögum Arkansas- ríkis
sem kveður á um að ekki megi
neyta áfengis með barn á brjósti.
Var ekki talið að Adams stofnaði
barni sínu í hættu þótt hún hafi
fengið sér bjór með matnum á
veitingastaðnum. „Ég drakk og ég
gaf brjóst,“ viðurkennir hún. „Ég
vissi ekki að þetta væri ólöglegt,
hefði ég vitað það hefði ég aldrei
gert þetta,“ segir Adams við ABC-
fréttastöðina.
Gleypti gaffal
Rúmeninn Radu Calincescu
komst í hann krappan á dögun-
um þegar hann ákvað að taka
óvenjulegri áskorun frá vinum
sínum. Áskorunin fólst í því að
gleypa gaffal, eins eðlilegt og það
hljómar. Eins og kannski gefur
að skilja gekk þetta ekki áfalla-
laust fyrir sig og var þessi 25 ára
Rúmeni fluttur á sjúkrahús vegna
brjóstverkja í kjölfarið. Eins og
sést á meðfylgjandi röntgenmynd
sat gaffallinn kyrfilega fastur inni
í honum.
Burger King-
barn fann
móður sína
Fyrir 27 árum var Katheryn
Deprill skilin eftir á baðher-
bergi Burger King-veitinga-
staðar í Bandaríkjunum, aðeins
nokkurra mínútna gömul. Ekki
alls fyrir löngu biðlaði Deprill til
Facebook-samfélagsins um að
hjálpa henni við leitina að móður
sinni. Ekki stóð á viðbrögðunum
og deildu tugþúsundir stöðuupp-
færslu Deprill, sem fékk í kjöl-
farið viðurnefnið Burger King-
barnið.
Óhætt er að segja að leitin hafi
borið árangur því á mánudag
hitti Deprill móður sína í fyrsta
skipti síðan þennan örlagaríka
dag árið 1986. Ekki liggur fyrir
hvað fór þeim á milli á fundin-
um. Í stöðuuppfærslunni, þegar
hún lýsti eftir móðir sinni, sagðist
hún þó vilja spyrja hana nokkurra
spurninga. „Í fyrsta lagi vil ég
þakka þér fyrir að hafa ekki hent
mér í ruslið og í öðru lagi fyrir að
hafa fætt mig inn í þetta líf,“ sagði
hún. Fyrst og fremst vildi hún þó
vita hvers vegna móðir hennar
kaus að yfirgefa hana.