Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 46
38 Lífsstíll Helgarblað 28.–31. mars 2014
F
yrir ofan okkur blasir við
Siglufjarðarskarð. Hér á öld
um áður helsta leið Sigl
firðinga yfir í Fljótin og aðr
ar byggðir. Ferðafélag Íslands
er að leggja af stað í fjögurra daga
ferð yfir í Héðinsfjörð og Hvanndali.
Fyrsti dagur ferðarinnar hefst þó með
göngu á fjöllin ofan við Siglufjarðar
bæ.
Siglufjarðarskarð var illræmt og oft
erfitt yfirferðar. Fjölmargir fórust hér á
leiðinni yfir skarðið. Ferðafélagið hef
ur í mörg ár staðið staðið fyrir ferðum
í Héðinsfjörð og Hvanndali. Hvann
dalir er afskekktasta byggð sem hef
ur verið á landinu og Héðinsfjörður
er einn fallegasti eyðifjörður lands
ins. Að þessu sinni hefur ferðaáætlun
verið breytt nokkuð frá fyrri ferðum.
Leiðin liggur um fáfarnar og illfær
ar slóðir, sögulegar leiðir sem jafnvel
hafa ekki verið farnar í 150 ár.
Fyrsti dagur ferðarinnar hefst í
Skarðsdal. Við tökum fyrsta stopp við
upptök Leyningsár.
Illviðrahnúkur
Skriðan upp hrygginn ofan við skíða
svæðið er brött og laus og nokkuð
leiðinleg. Hryggurinn sá liggur á
Illviðrahnúk. En nú er sól og blíða
og útsýni sem er engu líkt. Í dag gæti
Illviðrahnúkur heitið Sólskinstindur.
Horfum yfir hrikafjöll Héðinsfjarðar
og Hvanndala, yfir til Ólafsfjarðar og
allan Tröllaskagann, yfir Eyjafjörð
og enn lengra austur. Úlfsdalir eru til
norðurs. Þangað komust við ekki nið
ur snarbratta klettana, en klöngrumst
áfram fram af fjallinu til austurs og
höldum á Snók, þaðan sem póst
kortamyndir eru teknar af Siglufirði.
Fjörðurinn og síldarbærinn
sögufrægi skarta sínu fegursta.
Eftir útsýnisstopp er haldið áfram
eftir eggjum Hafnarfjalls, á Hvann
eyrarhyrnu og yfir á Stráka. Hluti
hópsins fer niður í Hvanneyrarskál og
niður í bæ. Aðrir ganga yfir á Stráka,
út á ystu brúnir og niður í Engidal.
Á öðrum degi er lagt af stað frá
Siglufjarðarhöfn klukkan níu. Við
stoppum stutt við á Siglunesi. Leiðin
liggur yfir í Nesdal sem liggur á milli
Hestfjalls og Siglunesmúla. Nesdalur
er allstór og mikill dalur. Reyðará
hlykkjast niður dalinn í mörgum
sveigjum en annars er votlendi og
mýrlendi og allhátt sef upp eftir daln
um. Best er því að halda sig ofarlega
við fjallsrætur í dalnum. Á meðan
nestið er borðað leika skýin, eða haf
goluþokan við fjöllin. Pútuskörð, nær
okkur og allbrött, og Einbúaskarð
innst í dalnum. Hvora leiðina eigum
við nú að fara? er spurt. Sjáum til, seg
ir fararstjórinn. Svo er lagt af stað.
Þoka læðist yfir fjöllin. Kannski endar
þetta bara með brölti í þokunni. Pútu
skörð birtast sem hlið í þokunni og
það er engu líkara en Pútuskörð séu
að bjóða okkur velkomin.
Besta leiðin upp brött fjöll er að
ganga nógu hægt. Það er skrýtin for
múla en þó margsönnuð að eftir því
sem þú gengur hægar á erfið fjöll, því
mun fljótari ertu á tindinn. Og nýtur
ferðarinnar einnig margfalt betur.
Við leggjum á brattann. Og blasir
þá við Héðinsfjörður. Fegursti eyði
fjörður landsins. Við horfum beint
yfir til Víkur, þar ætlum við að hafa
næturdvöl. Kyrrð og ró í Héðinsfirði,
svartur sandurinn í flæðarmálinu
og mikill rekaviður. Ferðin er bak
pokaferð og því þátttakendur með allt
sitt á bakinu til fjögurra daga. Í boði er
þó ein grillveisla og er hún Vík og er
því tekið við að tjalda og grilla. Fyrsta
verk er þó að taka út kamarinn, kló
settholu og verður líklega ekki fegurra
útsýni af nokkru klósetti landsins.
Yfir í Hvanndali
um sögulegar slóðir
Hvanndalir er eitt afskekktasta dal
verpi landsins – girt reginfjöllum í all
ar áttir nema til hafsins þar sem klett
ar ganga fram í sjó. Dalurinn er allstór
og víðari út til hafsins en þrengist inn
eftir því sem hann hækkar og er þar
innst kallað Vestara vik og Austara vik.
Í Hvanndali eru nokkrar færar leiðir:
frá Ólafsfirði er gengið frá YtriÁ, út í
Fossdal upp á Hvanndalabjarg, nið
ur í Sýrdal og í Hvanndali. Einnig er
hægt að ganga frá YtriÁ, inn Ytriár
dal, um Rauðskörð yfir í Víkurdal og
yfir Víkurbyrðu niður í Hvanndali. Frá
Siglufirði þarf að ganga í Héðinsfjörð
að Vík og þá yfir Víkurbyrðu. Einnig
var áður hægt að ganga undir Hvann
dalabyrðu, hrikalegt fjall, þar efst
með klettunum eftir kindaslóðum en
eftir að sauðfé hvarf af svæðinu hafa
slóðarnir máðst út. Þá er ótalin sú
leið að ganga fjöruna undir Hvann
dalaskriðu. Leið sem ung ófrísk kona,
Guðrún Þórarinsdóttir, gekk 1857, úr
Hvanndölum í Héðinsfjörð, um há
vetur til að sækja eld í bæinn sinn. Í
minningu þessarar konu og svona
eins og til að leggja áherslu á virðingu
fyrir dugnaði hennar er annar farar
stjóri FÍ í ferðinni okkar komin fimm
mánuði á leið.
Að loknum góðum svefni,
morgunverði og morgunleikfimi er
tekið til við að ganga frá. Nú miðast
ganga dagsins við sjávarföll og leggj
um við því ekki af stað frá Vík fyrr en
um hádegi. Höldum út fjörðinn. Það
er sól og einmuna blíða líkt og verið
hefur daga tvo á undan. Þokan skríð
ur út með firðinum, líkt og hún vilji
vera samferða okkur og Hesturinn
birtist í allri sinni dýrð, eitt svipmesta
fjall landsins. Við njótum útsýnisins
og höldum áfram í rólegheitunum.
Ekki laust við að eftirvænting ríki
í hópnum. Nú skal farin leið sem
enginn hópur hefur farið áður. Og
jafnvel enginn síðan Guðrún gekk hér
fyrir 150 árum.
Þar sem leiðin niður í fjöru ligg
ur frá brún eru um 30 metrar. Efst er
mold og grjót en neðst er laus skriða
og klettar. Neðsta hlutann er not
ast við kaðalspotta. Þetta er töluvert
bratt og hér fer einn í einu. Það tekur
okkur um 30 mínútur að komast nið
ur í fjöru. Og opnast hér nýr heimur,
ægifagur og hrikalegur. Við horfum
yfir Héðinsfjörð yfir á Hestinn sem rís
reistur úr sjó. Og austur út með sjó að
Hvanndölum eru snarbrattir klettar.
Hér er flughált, svo ekki sé meira sagt.
Flughálir sjávarsteinar, þari og þang,
litadýrð kletta og sjávargróðurs og
seiðandi sjávarniður. Það er nokkuð
í háfjöru og við höfum um fjóra tíma
til að ganga fjögurra kílómetra langa
leið. Ekki líður á löngu þar til fyrsti
göngugarpurinn liggur kylliflatur í
hálu fjörugrjótinu. Og svo hver af öðr
um. En við mjökumst áfram og inn
á milli verður leiðin greiðfærari. En
stundum líka torfærari. Á nokkrum
stöðum þurfum við að príla niður
eða láta okkur síga. Á öðrum stöðum
þurfum við að vaða fyrir kletta. Vaða
út í sjó fyrir forvaða. Og skiljum við
nú betur orðtakið „Það fara að verða
síðustu forvöð.“ Eftir um þriggja tíma
brölt skynjum við að það er farið að
flæða að. Við síðasta forvaðann færir
lognaldan okkur í sjó upp að mitti. En
þaðan er stutt i uppgönguna, upp færa
leið um klettana. Ólétti fararstjórinn
fer fyrstur og velur leið. Búin að brölta
yfir flughált grjót, klifra, síga, stingast á
hausinn, og vaða sjó upp að mitti. Líkt
og Guðrún forðum. Úr gljúfrinu sem
við göngum upp eru 1,2 kílómetrar í
neyðarskýlið í Hvanndölum þar sem
við sláum upp tjaldbúðum. Og hér
upplifir hver og einn staðinn á sinn
hátt. Fegurðin, kyrrðin, hrikaleikinn.
Fjarlægðin, sólarlagið, sagan. Brim
ið, fiskibátar og höfrungar. Var virki
lega búið hérna? Úti við sjónarrönd
sjáum við sólina hníga til viðar. Og lita
himininn rauðan. Ævin týri dagsins er
ljúka. Nýtt að hefjast.
Hvanndalabjarg
Hvanndalabjarg er hæsta standberg
landsins sem rís beint úr sjó. Reynd
ar hæst í Evrópu og það sem meira er
hæsta standberg í heimi sem rís beint
úr sjó. Sjö hundruð og áttatíu metr
ar. Til samanburðar er Látrabjarg 380
metrar og Hornbjarg 420 metrar. Og
Hvanndalabjarg er hrikalegt eftir því
og hefur aldrei verið klifið frá sjó.
Lokaáfanginn á þessari
fjögurra daga gönguferð liggur úr
Hvanndölum, yfir Hvanndalabjarg
og til Ólafsfjarðar. Það er svartaþoka
þegar við vöknum. Sér vart handa
skil. Hvað þá til fjalla. En allt hefur
sinn gang og tíma. Við gefum okkur
góðan tíma til að vakna og taka okk
ur til og vonumst til að þokunni létti.
Hún liggur þó sem fastast yfir Hvann
dölum og lítið annað að gera en leggja
af stað. Við þokumst áfram áleið
is upp í Selskál í þokunni og sjáum
ekki neitt en finnum þegar leggjum á
brattann. Í Selskál er fyrsta stopp. Og
nú er mynduð lína og skal nú blásið
burt þokunni. Hver bylgjan er tekin
af annarri og blásið af miklum móð.
Þetta á eftir að duga segir fararstjór
inn og svo er haldið áfram í þokunni.
Upp eftir rananum á Hádegisfjalli. Og
það er kannski ágætt að það er þoka.
Þá sjáum við ekki hvað það er bratt
hérna fram af klettunum.
Fyrir miðjum Sýrdal er óhemju
stór og mikill steinn sem fallið hefur
úr bjarginu. Frá honum er bein lína
upp skarðið sem fært er upp á bjargið.
Það eina af þremur úr Sýrdal sem fært
er á Hvanndalabjarg. Við fáum okkur
vatn og búum okkur undir að leggja í
skriðuna, snarbratta, sem við sjáum
ekki enn. Það veitir ekki af að fá sér
tvo súkkulaðibita. Á móti okkur eru
komnir tveir Ólafsfirðingar, ættaðir
frá YtriÁ og þekkja hér hvern stein.
Það voru fagnaðarfundir að rekast á
þá í þokunni. Og svo er lagt af stað á
Hvanndalabjarg. Það er bratt fyrst,
síðan verður það brattara segir annar
Ólafsfirðingurinn. Eftir dágóða stund
er eins og hann sé að rofa til. Hrikaleg
snarbrött fjöllin birtast nú í öllu sínu
veldi. Við erum um það hálfnuð upp
bjargið. Snarbrött skriðan fram und
an. Efst breytist laus skriðan í kletta
og hér þarf aðeins að príla. Lína ligg
ur niður af bjargbrúninni og gott að
grípa í hana. Hér er töluvert grjóthrun
og við skiptum hópnum í nokkra
smærri og hinir fyrstu komast upp og
svo koll af kolli. Loks eru allir komnir
á Hvanndalabjarg. Og nú duga fá orð
til lýsingar. Við höldum áfram. Niður í
Fossdal, út á Kleifar og til Ólafsfjarðar.
Út á höfn og þar bíður okkar bátur
inn sem siglir með okkur til baka til
Siglufjarðar. Í siglingunni sjáum við
leiðina alla sem höfum gengið. Og
fyllumst lotningu. En um leið stolti.
Fór ég þarna. Þarna niður. Og þarna
upp. Ég ætla aftur. Strax næsta sumar.
Páll Guðmundsson
fararstjóri og framkvæmdastjóri
Ferðafélags Íslands
Fegurðin, kyrrðin
og hrikaleikinn
Fjögurra daga gönguferð í Héðinsfjörð og Hvanndali
Undir Hvanndalaskriðum
Myndin er tekin undir Hvann-
dalaskriðum á leið í Hvanndali.
Héðinsfjörður Kyrrð og ró tók
á móti hópnum í Héðinsfirði.
Í Hvanndölum Hvanndalir er enn af-
skekktasti dalur landsins.
Kaffipása Hópurinn hvílir lúin bein innan
um rekavið í Héðinsfirði.