Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Blaðsíða 52
Helgarblað 28.–31. mars 201444 Menning
É
g veit meira en þið haldið,“ segir
Steinunn Eldflaug Harðardóttir
þegar hún ljóstrar því upp við
eldhúsborðið á heimili sínu í
Hlíðunum að hún sé 26 ára.
Steinunn Eldflaug er manneskjan á
bak við dj. flugvél og geimskip sem
hefur vakið fáheyrða athygli síðustu
mánuði og skapað miklar umræður
eftir að platan Glamúr í geimnum kom
út í fyrra. Steinunn veit einmitt meira
en við höldum. Hún hefur til dæmis
fylgst með því sem sagt er um hana á
förnum vegi og á veggjum samfélags-
miðla. En meira um það síðar.
Steinunn er með brennandi áhuga
á geimnum en þarf enn sem komið er
að sætta sig við fábrotið líf á jörðinni
sem hún nær þó að slíta sig frá í gegn-
um tónlistina. Á heimili hennar í fjöl-
býlishúsi í Hlíðunum býður hún upp
á kaffi, suðusúkkulaði og smákök-
ur af ýmsu tagi. Kaffið er ekki borið
fram í neinum venjulegum bollum,
heldur sparibollunum sem eru ætlað-
ir gestum. Þetta er allt að því sami fíl-
ingur og að mæta í kaffi til ömmu og
afa, nema hvað amma og afi eru jafn-
an ekki með mikið safn kvikmynda á
myndbandsspólum í stofunni. Inni í
þessu safni leynast rússneskar „sci-
fi“-myndir sem hún fær frá aðdáanda
sínum í Rússlandi í skiptum fyrir tón-
list dj. flugvélar og geimskips. Í stof-
unni eru einnig málverk og plaköt af
nokkrum af sígildustu kvikmyndum
sögunnar, eins og kvikmyndin Blade
Runner sem innihélt framandi tónlist
gríska raftónskáldsins Vangelis, eitt-
hvað sem rímar afskaplega vel við dj.
flugvél og geimskip.
Það er reyndar ekki stofan sem
fangar fyrst athygli gesta þegar inn er
komið. Það er herbergið sem hún hef-
ur breytt í hljóðver. Það er hlaðið fá-
gætum hljómborðum af öllum stærð-
um og gerðum. Reykelsislykt leggur
frá herberginu og heyrast framandi
hljóð inni í mikilli litadýrð.
Vill nafnabreytingu
En Steinunn Eldflaug er ekki nafnið
sem foreldrar hennar gáfu henni.
Það var einfaldlega Steinunn Harðar-
dóttir en hún á sér þá ósk heitasta að
fá millinafnið Eldflaug samþykkt af
mannanafnanefnd. „Ég reyndi að fá
það samþykkt en það gekk ekki upp.
Í fyrsta lagi segir mannanafnanefnd
ekki vera hefð fyrir því að fólk sé
nefnt eftir manngerðum farartækjum.
Að undanskildu nafninu Vagn sem
hefur unnið sér sess í íslensku tungu-
máli. Í úrskurði mannanafnanefnd-
ar kom einnig fram að ef Eldflaug
yrði samþykkt sem nafn þá gætu
aðrir nefnt börnin sín Eldflaug og
mannanafnanefnd þarf að taka tillit til
þess að nafnið gæti orðið barninu til
ama. Sem er svo sem skiljanlegt. En ég
var kölluð Steinunn Kleinunn í æsku
og það er alveg hægt að snúa út úr
hverju sem er, held ég. Þannig að það
er svolítil synd. Mér finnst þetta nafn
eiga mjög vel við. Það er kúl og það
minnir mig á skemmtilega hluti eins
og að það er hægt að fara út í geim á
eldflaug. Það er gott að heita í höfuðið
á uppáhaldinu sínu.“
Hún ætlaði ekki lengra með þetta
mál en eftir að hafa hitt Ketil Larsen
á kaffihúsinu Mokka í miðbæ Reykja-
víkur í vikunni snerist henni hugur.
Steinunn hafði ráðgert að hitta annan
mann á kaffihúsinu, Bjarna Bernharð,
en það varð ekki af því. Á leiðinni út
af Mokka hóar Ketill í hana og seg-
ir: „Ég myndi nú ekki fara strax.“ Úr
varð að Steinunn fékk sér kaffi með
Katli sem er margfrægur sögumaður
og lífskúnstner. Ketill sýndi Steinunni
hvernig hann getur spilað á penna og
notaði hann meðal annars sem flautu.
Hann dró einnig fram annan penna
og spilaði á þessa tvo penna í einu,
annan notaði hann sem hljóðfæri og
hinn sem boga. „Það komu endalaus
hljóð úr pennunum,“ segir Steinunn
sem segir Ketil síðan hafa bent
henni á að gefast ekki upp á nafna-
breytingunni. „Hann sagði að ég gæti
örugglega prufað að finna latneskt orð
yfir eldflaug og bera það sem nafn.
Það gæti mögulega gengið því krakk-
ar skilja ekki latnesku og geta ekki eins
auðveldlega gert grín að nafninu. Ég
ætla heldur ekki að gefast upp. Það
eru líka öðru hverju mannabreytingar
í mannanafnanefnd, þannig að
kannski mun þetta takast einhvern
tímann. Ég ætla að halda áfram. Mér
þætti leiðinlegt að hætta við og heita
bara venjulegu nafni.“
Leiðinlegt að spila lög eftir aðra
Steinunn stendur því næst upp frá
eldhúsborðinu og nær í penna fyrir
viðstadda þannig að þeir geti teikn-
að meðan á viðtalinu stendur. „Mér
finnst það mjög fínt að fá að teikna
á meðan.“ Hún segir okkur því næst
frá því hvenær tónlistaráhuginn
kviknaði. Eins og hálfs árs gömul
var hún farin að halda rapptón-
leika heima hjá sér og úr varð að
foreldrarnir keyptu handa henni Fis-
her Price-segulbandstæki sem hún
notaði til að hljóðrita allt að því allt
sitt líf. Fjögurra ára hóf hún fiðlunám
við Suzuki-skólann í Reykjavík. „Það
var bæði skemmtilegt og leiðinlegt í
senn. Mér finnst voða leiðinlegt að
spila lög sem er búið að semja áður,“
segir Steinunn en þar á meðal var hið
víðfræga Kópavogur hopp stopp sem
margir foreldrar þekkja alltof vel.
„Pabbi og mamma sögðu mér frá
því að á fyrstu tónleikum mínum ætti
ég að spila Kópavogur hopp stopp. Þá
fór ég upp á svið og sagðist ætla að
spila lög sem ég samdi sjálf og heita
Smjör og Gluggi læðist út um nótt. Svo
gerði ég einhverja vitleysu og kennar-
inn þurfti að stoppa þetta af,“ segir
Steinunn. „Það var samt gott að læra
á fiðlu. Ég held að það hafi alveg gagn-
ast við að gera meiri tónlist í framtíð-
inni.“
Þegar grunnskólagangan hófst var
hún ófeimin við að auglýsa tónleika í
frímínútum fyrir samnemendur sína
þar sem hún söng frumsamin lög á
staðnum um hluti sem krökkunum í
skólanum datt í hug þá stundina. Líf
hennar hefur því verið umvafið tónlist
og ósköp skiljanlega enda faðir henn-
ar Hörður Bragason sem hefur gert
garðinn frægan meðal annars með
Júpíters og Apparat Organ Quartet.
Heima fyrir kynntist hún því
Vildi að hún
væri úr geimnum
Birgir Olgeirsson
birgir@dv.is
Steinunn Eldflaug er manneskja sem hefur
verið töluvert á milli tannanna á fólki undanfarið
fyrir tónlist sína undir merkjum dj. flugvélar og geim-
skips. Steinunni finnst öll sú umræða mjög merkileg,
sér í lagi sú sem snýst um hvort hún sé annaðhvort
geðveik eða skemmtileg. DV ræddi við Steinunni um
tónlistina, umtalið og endimörk alheimsins.
„Ég er samt
aðallega
hissa á fólki sem
finnst tónlistin
mín leiðinleg, mér
finnst það skrýtið.