Dagblaðið Vísir - DV - 28.03.2014, Qupperneq 64
Helgarblað 28.–31. mars 2014
25. tölublað 104. árgangur Leiðbeinandi verð 659 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Kaffihús fyrir
5–10 einstak-
linga?
Nóg af Bond
n „Guð hjálpi mér allir heilagir.
Það er búið að ræða þetta svo
mikið að ég held að það ætti
að hætta tökum á James Bond.
Þetta eru yfirleitt allt einhverj-
ir geðveikir vísindamenn, ein-
hverjir ofurmenn á sviði ill-
virkjanna. Ég get ekki svarað
því hvernig hún ætti að vera,“
svarar Jón Magnússon, lögmað-
ur og fyrrverandi þingmaður
Frjálslynda flokksins, aðspurð-
ur hvernig hann vilji hafa næstu
James Bond-kvikmynd í Radio-
Stam, netvarpi
sem bein-
ir athygli að
stömurum.
Spyrill, Árni
Heimir Ingi-
mundarson,
stamar
og fær
viku-
lega
þjóð-
þekkt
fólk í
við-
tal.
„Hagfræðinörd“
flytur til London
n Stjörnuhagfræðingurinn Haf-
steinn Gunnar Hauksson leggur
land undir fót í haust og flytur
til London þar sem hann hyggst
fara í framhaldsnám við London
School of Economics. Hafsteinn,
sem er 24 ára, hefur komið víða
við þrátt fyrir ungan aldur. Hann
vakti athygli fyrir skarpar grein-
ingar og lifandi fréttir sem frétta-
maður hjá Stöð 2 áður en hann
var ráðinn sem sérfræðingur í
greiningar-
deild Arion
banka. Í
viðtali við
DV árið
2012 sagði
Hafsteinn
að hann væri
„eiginlega bara
algjört hag-
fræðinörd“.
„Ömurleg
stjórnmálakona“
n Sóley Tómasdóttir, borgarfull-
trúi Vinstri grænna, segist á Face-
book-síðu sinni vera stolt af því
að vera ömurleg stjórnmálakona.
„Ef skilgreining á góðu stjórn-
málafólki krefst fagurgala, þá er
ég hreint ömurleg stjórnmála-
kona,“ skrifar hún. Vitnar hún þar
í pistil Óla Gneista Sóleyjarsonar
þar sem hann segir hana lélegan
stjórnmálamann vegna þess að
hún tjái sig um umdeild málefni.
„Góðir stjórnmálamenn hafa vit á
að tjá sig ekki um umdeild málefni
ef þeir komast hjá
því. Sóley hefur
ekki vit á því. Við
vitum nákvæm-
lega hvar hún
stendur af því
að hún segir
okkur það,“
skrifar Óli
Gneisti.
Í áraraðir hefur Ragnar Björnsson ehf. framleitt rúm af öllum stærðum og gerðum,
allt eftir þínum óskum. Lengd, breidd og mismunandi hæð á rúmunum eykur þægindin.
Mismunandi stífleika er hægt að velja, allt eftir þyngd þeirra sem á dýnunum hvíla.
Þú velur rétta hæð á rúmið þitt og stígur létt framúr.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn okkar.
Svíf þú inn í svefninn
RÚMDalshrauni 8 - Hafnarfirði | Sími 555 0397 | rbrum@rbrum.is| rbrum.is
ÍSLENSK HÖNNUN – ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
Þ
eir leyfa mér að vera með af því
að ég er búinn að suða svo mikið
í þeim að fá að opna þetta,“ segir
Gísli Marteinn Baldursson, fjöl-
miðlamaður og fyrrverandi borgar-
fulltrúi, aðspurður um kaffihúsið sem
hann og þrír vinir hans munu opna á
Melhaga í Vestur bænum í Reykjavík á
næstu mánuðum.
Gísli Marteinn segir að hann muni
einungis eiga lítinn hlut í kaffihús-
inu í gegnum eignarhaldsfélag sem
heitir Ferdinand ehf., um 2,5 pró-
sent. Aðaleigandi kaffihússins verður
eignarhaldsfélag sem tengist KEX
hostel en tveir vinir Gísla Marteins,
Pétur Marteinsson og Kristinn Vil-
bergsson, eru tveir af eigendum þess.
Félagið heitir Sæmundur á spari-
fötunum ehf. Þá mun Einar Örn Ólafs-
son, fyrrverandi forstjóri Skeljungs,
einnig koma að eignarhaldi og rekstri
kaffihússins.
Fá kaffihús eru á þessu svæði í
Vestur bænum og segir Gísli Marteinn,
sem sjálfur býr á Melhaga, að hann
hafi oft þurft að fara á Kaffitár í
Þjóðminjasafninu eða í kaffiaðstöðuna
í Neskirkju þegar hann hefur viljað
fara á kaffihús í nágrenninu. „Það
eru alltaf fimm til tíu einstaklingar í
Þjóðminjasafninu sem segja: Það verð-
ur að fara að opna kaffihús í Vestur-
bænum.“ Gísli Marteinn telur því að
mikil stemning sé fyrir kaffihúsinu í
hverfinu og segist hann hafa gengið
hús úr húsi í hverfinu og spurst fyrir um
áhuga íbúa. „Ég hef mikla trú á þessu;
að opna svona kaffihús í hverfinu.“
Kaffihúsið verður á horni Melhaga
og Hofsvallagötu, beint á móti Vestur-
bæjarlauginni, þar sem lyfjaverslunin
Apótekarinn hefur verið til húsa. Gísli
Marteinn segir að ekki liggi fyrir hvort
hann komi á rekstri kaffihússins.
Hann segir að um verði að ræða 30
sæti en að ekki séu komnar teikningar
að rýminu ennþá. „Markmiðið er bara
að ná að opna og reka þarna kaffihús.
Þetta er mjög lítið og sætt verkefni.“ n
„Ég er búinn að suða svo mikið í þeim“
Gísli Marteinn Baldursson opnar kaffihús í Vesturbænum ásamt vinum sínum
Þörf á
kaffihúsi
Gísli Marteinn
segir að þörf
sé á kaffihúsi í
Vesturbænum.
Mynd SIGTryGGur ArI