Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2009, Page 25
11. desember 2009 föstudagur 25
SKÖMM TIGERS WOODS
ATbuRðARáSIn í GRófuM DRáTTuM
27. nóvember
Tiger Woods slasast eftir að hafa ekið á brunahana og tré fyrir utan heimili hans á
Flórída.
Lögreglan lýsir yfir að áfengi hafi ekki átt þátt í óhappinu
Vangaveltur vakna á slúðurvefsíðum í Bandaríkjunum að óhappið kunni að
tengjast eldri fréttum National Enquirer um meint ástarsamband Tigers og Rachel
Uchitel, móttökudömu á næturklúbbi í New Yorkæ.
28. nóvember
Þjóðvegalögregla Flórída staðfestir að ekki hafi tekist að ræða við Tiger Woods og
Elinu, eiginkonu hans.
29. nóvember
Tiger Woods viðurkennir að bera fulla ábyrgð á óhappinu.
30. nóvember
Woods tilkynnir að hann muni ekki taka þátt í eigin góðgerðargolfmóti, Chevron
World Challenge.
1. desember
Tiger Woods er afhent áminning vegna gáleysislegs aksturs og sektaður um 164
dali. Rannsókn er lokið að sögn lögreglunnar.
Í yfirlýsingu frá þjóðvegalögreglu Flórída segir: „Enginn hefur lagt fram kærur
vegna heimilisofbeldis.“
2. desember
Tímaritið US Weekly birtir viðtal við þjónustustúlkuna Jaimee Grubbs sem fullyrðir
að hún hafi átt í sambandi við Tiger Woods.
Woods biðst afsökunar á óskilgreindum syndum.
4-10 desember
Fleiri konur, þeirra á meðal klámmyndaleikkonur, segjast hafa átt í ástarævintýr-
um með kylfingnum.
8. desember
Barbro Holmberg, tengdamóðir Tigers, er flutt af heimili hans á sjúkrahús vegna
kviðverkja.
góðum eiginleikum [...] Þegar þú ert
dæmd af þjóðinni þá er það verulega
erfitt. Það er hræðilegt,“ sagði Uchit-
el, sem ku hafa misst unnusta sinn í
hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin
2001, í viðtali sem birt verður í næsta
tölublaði tímaritsins OK.
Ein klámmyndaleikkona í viðbót
Klámmyndaleikkonan Holly Samp-
son bættist í hóp nefndra ástkvenna
Woods fyrir nokkrum dögum og nú
hefur ein klámmyndaleikkona í við-
bót verið nefnd til sögunnar, Veroni-
ca Siwik-Daniels, betur þekkt sem Jo-
slyn James. Um leiklistarafrek hennar
verður ekki fjölyrt hér, en á vefsíðunni
radaronline.com segir hins vegar að
hún sé eftirlýst í Washington vegna
ógreiddra meðlagsgreiðslna upp á
12.000 dali.
Nýjustu fréttir herma að Woods
óttist nú að kynlífsmyndband með
honum endi á netinu, og kannski
ekki að undra í ljósi þess að á meðal
meintra ástkvenna hans er að finna
tvær fagmanneskjur í þeim bransa.
Í sumum tilfellum hefur myndband
af þeim toga aukið frægð aðalleikar-
anna en hætt er við að slík auglýsing
hugnist Woods ekki. Myndbandið
fengi án efa titilinn Hola í höggi.
Vinsældir Woods hverfandi
Jaimee Grubbs, sem nefnd var í kjöl-
far Rachel Uchitel, iðrast að eigin
sögn og biður Elinu afsökunar. „Ég
gæti ekki lýst hve mjög ég iðrast þess
að hafa sært fjölskyldu hennar [El-
inar] og hana tilfinningalega,“ sagði
Grubbs í viðtali í þættinum Extra sem
sérhæfir sig í fréttum af fræga fólk-
inu.
En Jaimee Grubbs bætti því reynd-
ar við, sjálfri sér til varnar, að ef það
hefði ekki verið hún „þá hefðu það
orðið hinar stúlkurnar.“
Vinsældir Tigers Woods hafa tek-
ið algjöran viðsnúning. Fyrir tveimur
árum höfðu 83 prósent Bandaríkja-
manna jákvætt viðhorf til Woods, fyr-
ir viku var það hlutfall komið niður
í 56 prósent og á fimmtudaginn var
hlutfallið 38 prósent og að mati al-
mannatengslasérfræðingsins How-
ards Rubinstein er Tiger í slæmum
málum og almannahylli hans beðið
varanlegan skaða.
Eins og oft vill verða er dómur göt-
unnar miskunnarlaus og á vefsíðu
Tigers, tigerwoods.com, hafa aðdá-
endur, eða fyrrverandi aðdáendur,
látið skoðun sína í ljós. „Þú ættir að
fjarlægja þessa vefsíðu og fela þig í
skömm,“ segir einn reiður einstakl-
ingur.
„[...] Allt sem þú segir héðan í frá
mun fá mig til æla. [...] Skömm skömm
skömm. Aldrei aftur mun ég styðja
þig,“ segir annar á vefsíðu Tigers.
Veronica Siwik-Daniels
Sena úr ónefndri mynd
með klámmyndaleikkon-
unni Joslyn James.
fréttir
Lífrænar
mjólkurvörur
Lífræn jógúrt
6
ferskar
bragðtegundir
Múslí
Kókos
Mangó
Kaffi
Hrein
Jarðarberja
Brettapakkar
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500