Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 12
12 Fréttir 25.–27. maí 2012 Helgarblað Nauðstaddir sektaðir n Fóru í Fjölskylduhjálp og fengu sekt Þ eir sektuðu menn fyrir allt sem heitir að leggja ólöglega,“ segir maður sem setti sig í samband við DV og lýsti yfir óánægju sinni vegna starfsmanna Bílastæðasjóðs Reykjavíkur sem sektuðu ökumenn sem höfðu lagt bifreiðum sínum ólöglega við Fjölskylduhjálp Íslands í Eskihlíð í Reykjavík á miðvikudaginn. Maðurinn var sjálfur að sækja sér mataraðstoð í Fjölskylduhjálp og fannst blóðugt að þurfa síðan að horfa á sektarmiða upp á 2.500 krónur á bíl sínum. Hjá Bílastæðasjóði fengust þau svör að alls staðar í borginni séu eigendur bifreiða, sem staðnir eru að því að leggja bílum sínum ólöglega, sektaðir og enginn undanskilinn því. „Þetta er í annað sem sem þetta hefur gerst á níu árum,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands, en hún segir það vera svekkjandi fyrir fólk að lenda í þessu. „Fólk er auðvitað mjög svekkt yfir því að lenda í þessu. Þetta fólk er að koma til okkar því það hefur ekki efni á mat og fyrir utan það jafnvel ekki eigendur bílanna, hafa fengið þá lánaða. Það hefur verið gífurleg ásókn hérna í dag [miðvikudag] En eflaust eru þeir frá Bílastæðasjóði að sinna sinni skyldu,“ segir Ásgerður Jóna sem tekur fram að ekki séu mörg bílastæði við Fjölskylduhjálpina. „Þetta eru fleiri hundruð fjölskyldur sem koma hérna á miðvikudögum. Mér finnst þetta afar leiðinlegt því þetta getur komið mjög illa við fólk sem á ekki peninga. Fólk er að koma hérna vegna þess að það er í mikilli neyð og þetta bætir ekki úr skák. Ef fólk borgar ekki skuldina innan þriggja daga þá hækkar hún. Mikið vildi ég að yfirvöld myndu kannski sýna smá sveigjanleika þegar svona er,“ segir Ás­ gerður Jóna.  birgir@dv.is Enn græðir Arion banki milljarða Afkoma Arion banka á fyrsta árs­ fjórðungi ársins 2012 var jákvæð um fjóra og hálfan milljarð króna eftir skatta samanborið við þrjá milljarða á árinu 2011. Eigið fé bankans var 119 milljarðar króna í mars síðastliðnum en það hafði aukist úr 112 milljörðum króna frá mars í fyrra. Á sama tímabili jukust eignir bankans um rúma 97 milljarða króna, eða úr 802 millj­ örðum í 899 milljarða. Útlán til viðskiptavina í mars námu 584 milljörðum króna, sam­ anborið við 432 milljarða á sama tíma í fyrra en þá aukningu segir Arion banki skýrast fyrst og fremst af yfirtöku á íbúðalánasafni Kaup­ þings undir lok síðasta árs. Glitnistoppur ákærður Friðfinnur Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjárstýringar Glitnis, hefur verið ákærður fyrir innherjasvik og er það embætti sérstaks saksókn­ ara sem gefur út ákæru á hendur Glitnismanninum fyrrverandi. Um er að ræða aðra innherjasvika­ ákæruna sem embættið gefur út frá hruni. Friðfinnur Ragnar er ákærður fyrir að hafa selt hlutabréf sín í bankanum þrátt fyrir að vita um slæma stöðu bankans. Bréfin seldi hann í aðdraganda banka­ hrunsins en viðskiptin eru metin á annan tug milljóna króna. Einkavæðingin verði rannsökuð Meirihluti stjórnskipunar­ og eftirlitsnefndar Alþingis hefur samþykkt þingsályktunartil­ lögu um að hefja rannsókn á einkavæðingu FBA, Lands­ bankans og Búnaðarbank­ ans. Einkavæðing bankanna í byrjun áratugarins hefur allar götur síðan verið umdeild og vill meirihluti nefndarmanna rannsaka hana. Lagt er til að þriggja manna rannsóknarnefnd fari yfir einkavæðingu og sölu hluta­ bréfa í bönkunum. Í nefndar­ áliti meirihlutans kemur fram að nefndin þurfi að hafa ríkar heimildir til aðgangs að gögn­ um sem varpað gætu ljósi á einkavæðinguna. Er rannsókn­ arnefndinni ætlað að starfa á svipaðan hátt og rannsóknar­ nefnd Alþingis sem rannsakaði bankahrunið gerði. Ekki voru allir nefndarmenn sammála um þetta og lögð­ ust fulltrúar Sjálfstæðisflokks­ ins, þau Birgir Ármannsson og Ólöf Nordal, gegn nefndaráliti meirihlutans. Auk þess skilaði Vigdís Hauksdóttir, þingkona Framsóknarflokksins, séráliti í málinu en hún vill að rann­ sóknarnefndin fari einnig í það sem hún kallar síðari einka­ væðingu bankanna, það er að segja uppgjör þrotabúa gömlu bankanna eftir hrun. Þ etta var svolítið erfitt stund­ um en skemmtilegt,“ segir hinn kólumbíski Edgar Alej­ andro Arango Hurtado sem útskrifaðist sem stúdent frá Framhaldsskólanum á Laugum í Þingeyjarsveit um síðustu helgi. Fyr­ ir fimm árum kom Alejandro, eins og hann er kallaður, í um þrjátíu manna hópi flóttamanna til landsins frá Ekvador, ásamt móður sinni og syst­ ur. Fjölskyldan er upprunalega frá Kólumbíu en flúðu stríð þar í landi og hafði dvalið í flóttamannabúðum þar í sjö ár áður en hún kom hingað til lands í október 2007. Skildi ekki tungumálið Viku eftir að Alejandro kom til Ís­ lands byrjaði hann í Verzlunarskóla Íslands. Hann segir það hafa verið frekar erfitt til að byrja með að vera í nýjum skóla, þar sem hann hvorki talaði tungumálið né skildi það. Þeir voru fjórir úr flóttamannahópnum sem byrjuðu saman í Verzlunarskól­ anum. „Skólinn var byrjaður því við komum til landsins í október. Það var erfitt því við töluðum ekki sama tungumál, við töluðum enga ensku eða íslensku og þau ekki spænsku,“ segir hann en ber skólafélögum sín­ um vel söguna. „Það voru mjög góð­ ir strákar þarna í bekknum og svo fór ég smám saman að skilja meira. Stundum skildi ég og stundum ekki,“ segir hann en námsefnið var á íslensku. „Það var spænskukenn­ ari þarna sem þýddi stundum fyrir okkur og það var mikil hjálp í því,“ segir Alejandro sem í dag er nánast altalandi á íslensku. Fór út á land til að læra íslensku Hann var í tvö ár í Verzlunarskól­ anum en hélt því næst í Tækniskól­ ann í Reykjavík. „Ég var í eina önn í húsasmíði þar. Það var mjög gaman en það var svolítið erfitt því ég skildi ekki nógu mikla íslensku þá. Ég var ekki búinn að læra nógu mikið í tungumálinu því ég talaði spænsku heima og var ekki orðinn nógu góður í íslensku.“ Alejandro vildi gjarnan bæta ís­ lenskukunnáttu sína og ákvað þess vegna að fara í Framhaldsskólann á Laugum. „Ég ákvað að fara burtu frá bænum þannig að það gæti enginn talað við mig á spænsku. Það var ekki hægt hérna í Reykjavík. Ég á marga vini hér sem tala spænsku og heima er líka töluð spænska. Ég var bara lítið með Íslendingum og æfði mig aldrei neitt í íslensku. Það voru kom­ in þrjú ár og ég var ekki ennþá orðinn nógu góður í íslensku. Þá ákvað ég að fara í Framhaldsskólann á Laugum,“ segir hann brosandi. Eignaðist vini í gegnum herbergisfélaga Fyrstu tveir mánuðirnir voru erfiðir á Laugum. „Ég þekkti engan þarna og var bara búinn að tala við skólastjór­ ann þegar ég kom. Fyrst þekkti ég engan þarna og var einn í herbergi á heimavistinni. Svo fékk ég herbergis­ félaga og það var strákur sem var bú­ inn að vera þarna í meira en tvö ár og í gegnum hann byrjaði ég að eignast vini. Þá hætti að vera leiðinlegt,“ segir hann hlæjandi. Hann segir aðstöðuna á Laugum hafa verið til fyrirmyndar. „Það var mjög góð aðstoð í skólanum og ég fékk íslenskukennara bara fyrir mig sem hjálpaði mér mjög mikið,“ segir hann. Ætlar að læra húsgagnasmíði Alejandro útskrifaðist svo eins og áður sagði um síðustu helgi sem stúdent. „Ég útskrifaðist af félags­ fræði­ og íþróttabraut. Við vorum 27 sem útskrifuðumst saman.“ Hann er nú fluttur aftur í höf­ uðborgina til móður sinnar sem starfar sem dagmamma og systur sinnar sem er að byrja í Verzlun­ arskólanum í haust. Hann stefn­ ir á að fara aftur í Tækniskólann í haust. „Mig langar að læra hús­ gagnasmíði í Tækniskólanum,“ segir hann og tekur fram að hann hafi mikinn áhuga á smíði. Fjöl­ skyldunni líður vel á Íslandi og ætlar að dvelja hér áfram enda komin vel inn í íslenskt samfélag. „Hér fáum við að vera öll saman í friði. Okkur líður mjög vel hérna og hér viljum við vera.“ Stúdent Alejandro útskrifaðist sem stúdent um síðustu helgi. Það eru aðeins fimm ár síðan hann kom til landsins og talaði ekki stakt orð í íslensku. n Útskrifaðist sem stúdent n Kom sem flóttamaður til landsins fyrir 5 árum Flutti úr borginni til að læra íslensku Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Allir jafnir Enginn er undanskilinn því að fá sekt þegar hann leggur bíl sínum ólöglega.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.