Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 14
14 Fréttir 25.–27. maí 2012 Helgarblað
Einfalt að hætta við
n Bjarni Benediktsson fundaði sérstaklega með stækkunarstjóra ESB
S
tefan Füle, stækkunarstjóri
Evrópusambandsins, er
staddur hér á landi þar sem
hann fundar með íslensk-
um ráðamönnum og leið-
togum stjórnarandstöðunnar. Þetta
er önnur heimsókn stækkunarstjór-
ans hingað til lands en að þessu
sinni má gera ráð fyrir að heimsókn
hans snúist í meira mæli um að tala
við stjórnarandstöðuna en fulltrúa
ríkisstjórnarinnar. Sú einkennilega
staða er uppi að Sjálfstæðisflokkur-
inn, stærsti stjórnarandstöðuflokk-
urinn og sá flokkur sem líklegastur
er til að leiða næstu ríkisstjórn sam-
kvæmt skoðanakönnunum, hefur
það á stefnuskrá sinni að slíta við-
ræðunum.
Sjálfstæðisflokkurinn með
skýra afstöðu
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, átti fund með Willi-
am Hague, utanríkisráðherra Bret-
lands, í síðustu viku þar sem hann
ræddi meðal annars stöðu Evrópu-
sambandsins. Hague er fulltrúi
breska Íhaldsflokksins og hefur
flokkur hans verið á svipaðri línu og
Sjálfstæðisflokkurinn varðandi að-
ild að Evrópusambandinu og fram-
tíð þess. Ekki er þess þó að vænta
að Bretar segi sig úr sambandinu á
næstunni þó erfitt sé að lesa í framtíð
sambandsins vegna krísunnar sem
enn sér ekki fyrir endann á í sumum
ríkjum þess.
„Ég mun segja nákvæmlega minn
hug til þess hvernig málið stendur,
hversu illa þetta mál var sett af stað
og hvers vegna það er í þeirri stöðu
sem það er í í dag,“ segir Bjarni að-
spurður hvort hann muni ræða hug-
myndir flokksins við Füle. „Ég nota
hvert tækifæri þess.“
Alþingi samþykkti að sækja um
aðild að Evrópusambandinu 16. júlí
árið 2009 og eru því þrjú ár liðin frá
umsókninni. Þegar umsóknin var
samþykkt höfðu Bjarni og Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður og
þáverandi varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins, lagt fram tillögu þess
efnis að efnt yrði til þjóðaratkvæða-
greiðslu um hvort sækja ætti um að-
ild eða ekki.
Enginn samningur á borðinu
Afstaða þeirra sem sóst hafa eftir því
að draga umsóknina til baka hefur
fyrst og fremst byggt á andstöðu við
Evrópusambandið sem slíkt og þró-
unina annars staðar í Evrópu. Enn
er langt í að það liggi fyrir hvern-
ig samning Íslendingar gætu fengið
við sambandið þó að ekki sé vikið
frá grundvallarreglum sambands-
ins. Það eru þó mörg dæmi þess að
samið sé um sérlausnir sem henta
hverju aðildarríki fyrir sig. Hvort og
þá hvaða sérlausnir bjóðast Íslend-
ingum liggur hins vegar ekki fyrir fyrr
en aðildarsamningur liggur á borð-
inu og búast má við því að það taki
enn nokkurn tíma.
Alþingi hafnaði á fimmtudag með
afgerandi hætti að efna til þjóðarat-
kvæðagreiðslu um hvort draga ætti
umsóknina til baka. Óljóst er hvort,
og þá hvernig, stuðningsmönnum
þess að hætta aðildarviðræðunum
takist að fá kröfu sína samþykkta.
Sviss setti umsóknina á ís
Verði niðurstaða Alþingis sú að
hætta eigi við aðildarviðræður að
Evrópusambandinu verður Ísland
fyrsta ríkið til að gera það. Ekk-
ert ríki hefur beinlínis dregið að-
ildarumsókn sína að sambandinu
til baka þótt að aðildarviðræður
hafi verið settar á ís. Svisslendingar
sóttu um aðild að sambandinu fyrir
um 20 árum en þeir hættu aðildar-
viðræðum við sambandið eftir að
aðild að Evrópska efnahagssvæð-
inu var hafnað í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Umsóknin er hins vegar
enn í fullu gildi þótt engar viðræð-
ur hafi átt sér stað. Einnig eru dæmi
um að aðildarferli hafi tekið langan
tíma.
Þrátt fyrir þetta er ekkert sem
kemur í veg fyrir að hægt sé að slíta
viðræðunum og draga umsóknina
sjálfa til baka. Einföld tilkynning til
sambandsins ætti að duga til þess.
Í raun er heldur ekkert sem kemur
í veg fyrir að þjóðir sem þegar eru
aðilar að sambandinu segi sig úr
því. Dæmi um það er þegar Græn-
lendingar sögðu sig úr sambandinu
árið 1985.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Vill hætta við Bjarni Benediktsson átti fund með Stefan Füle en líkur eru á að sá fyrr-
nefndi komist í aðstöðu til að hætta við aðildarviðræðurnar eftir næstu kosningar.
Mættur Stefan Füle er stækkunarstjóri
Evrópusambandsins. Hann kom á mið-
vikudagskvöld hingað til lands í annað sinn
en hann fer í kvöld, föstudag.
„Ég mun segja ná-
kvæmlega minn
hug til þess hvernig málið
stendur.