Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 58

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 58
58 Lífsstíll 25.–27. maí 2012 Helgarblað Nýtt fyrir kylfinginn n Sæktu Nike Golf 360° appið án endurgjalds N ýjasta viðbótin frá Nike+ sys- tem er Nike Golf 360° appið sem hægt er að hlaða niður í snjallsíma án endurgjalds. Appið skiptist í raun í fjóra hluta. „Leikurinn“ heldur utan um töl- fræðilegar upplýsingar og skor. Í „sveiflunni“ getur þú séð mynd- bandsupptökur af sveiflunum þín- um og borið þær saman. Í þeim hluta geturðu einnig fengið pers- ónulega leiðsögn frá starfsfólki Nike Swoosh. „Líkaminn“ hjálpar þér að komast í rétta golfformið og „búnað- urinn“ heldur utan um það sem er í golfpokanum þínum og bendir þér á nýjan búnað sem kemur á mark- aðinn. Nike Golf 360° appið er eitthvað sem allir kylfingar ættu að sækja sér fyrir golfvertíð sumarsins. Fáðu leiðsögn Appið býður upp á persónulega leiðsögn frá starfsfólki Nike Swoosh. F rá barnæsku fáum við að heyra: „Borðaðu grænmetið þitt!“ Og oft fáum við líka að heyra að ávextir og grænmeti séu svo bráðhollt fæði, að án þess séu líf og heilsa í hættu. En stundum geta grænmeti og ávextir verið heilsuspillandi. Meðan næring úr einu epli gefur þér lífskraft og orku geta fræ þess orsakað veik- indi. Enginn ætti að sneiða hjá hollu grænmeti og ávöxtum en gott er að vita nokkrar staðreyndir um þetta holla hversdagsfæði. Nýrnabaunir Nýrnabaunir innihalda mikið af eit- urefninu PHA og neysla á hráum nýrnabaunum getur valdið eitrunar- einkennum, jafnvel þótt aðeins fárra bauna sé neytt. Best er að sýna var- úð, baunirnar þurfa að liggja í bleyti í nokkrar klukkustundir. Þá skal skola þær vel og síðan þarf að sjóða þær í 10 mínútur hið minnsta áður en þeirra er neytt. Kirsuberja- steinar Kirsuber eru bæði sæt og holl. Inni í kirsuberjasteininum eru hins vegar lítil fræ sem innihalda svolítið magn af blásýru. Ekki japla á þessum fræj- um. Grænar kartöflur Jafnvel kartöflur geta gert okkur veik. En ekki hvaða kartöflur sem er. Aðeins þær óþroskuðu og grænu. Grænar kartöflur innihalda lítið magn af „solanine“, eitri sem hefur áhrif á taugar. Ef þess er neytt í ein- hverju magni þá getur það valdið lömun og óvirkni í miðtaugakerfi. Eplakjarni Það er ástæða fyrir því að okkur hef- ur verið margsagt að borða ekki fræ eplakjarnans. Þau eru eitruð. Þessi litlu fræ virðast meinlaus en inni- halda í reynd eitrið „amygdalin“, sem er ákaflega heilsuspillandi. Hráar lima-baunir Lima-baunir innihalda eitrið „lim- arin“ þegar þær eru hráar. Aðeins handfylli af hráum lima-baunum getur valdið lífshættulegum veikind- um. Lima-baunir eru annars bráðhollar soðnar og góð viðbót við mataræði hverrar manneskju. Rabarbari Það er vitað að lauf rabarbarans eru eitruð og þeirra skal aldrei neyta. Ferskjusteinar Það eru um 88 milligrömm af blá- sýru í ferskjusteini af meðalstærð. Ef þú verður fyrir því óláni að gleypa einn slíkan stein þá þarf varla að hafa áhyggjur því hörð skelin heldur ban- eitruðum fræjunum inni. Tómatar Á átjándu öld var tómatávöxturinn talinn eitraður. Nú er vitað að það eru aðeins blöðin sem innihalda eit- ur. Blöð og stilkar innihalda eitrið „glycoalkaloid“ sem veldur miklum kvíðaeinkennum og magakveisu. Finndu pítsustein í fjallgöngunni Svokallaðir pítsusteinar hafa verið vinsælir til notkunar á grillið og í ofninn. Þá er pítsudeigið sett á steininn og verður pítsan stökkari og bragðbetri en ella. Pítsustein- ar þessi kosta sitt en það má vel finna þessa steina úti í náttúrunni og nota. Finnir þú flatan stein í ákjósanlegri þykkt og stærð, um það bil fimm sentimetrar á þykkt, þá er kominn pítsusteinn á grillið. Þvoðu steininn vel, helltu til að mynda á hann sjóðandi vatni og skrúbbaðu hann hreinan. Berðu svo á hann góða ólífuolíu áður en þú skellir honum á grillið eða í ofninn. Hafðu grillið eða ofninn lokaðan meðan steinninn hitnar. Settu svo deigið á og bættu fyllingunni ofan á pítsuna. Ást við fyrstu sýn? Er hægt að verða ástfanginn við fyrstu sýn? „Já, það getum við,“ segir geðlæknirinn Roland Gori sem trú- ir því að við getum sjálf búið okkur til það hugarástand að við verðum líklegri til þess að verða ástfangin og það í skyndi. „Þetta hugarástand gerir að verkum að við trúum því að við þurfum á einhverjum að halda í lífi okkar til þess að verða heilar manneskjur,“ segir Roland sem segir fullnægðar manneskjur fullar sjálfstrausts ekki líklegar til að verða ástfangnar í skyndi. Eitrað hvers- dagsfæði n Ekki allt sem sýnist Ekki fara reið í ræktina Líkamsrækt losar streitu það satt og sannað. En ef þú ert virkileg reið/ur þá er ekki góð hugmynd að fara í ræktina ein- göngu til að fá útrás. „Það eykur á streituna og nærir neikvæðar tilfinningar,“ segir Deborah Rozman sál- fræðingur og mælir frekar með hugleiðslu, tebolla og góðum göngutúr. „Eða því að tala út um málin og reyna að finna á þeim lausn. Það er besta ráðið.“ Borðaðu grænmetið þitt Frá barnæsku fáum við að vita að ávextir og grænmeti sé holl og góð fæða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.