Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Side 26
A
f gervihnattamyndum að
dæma bendir allt til þess
að norðurkóresk stjórnvöld
hafi á undanförnum mán-
uðum hafið byggingu á nýj-
um eldflaugaskotpalli. Við saman-
burð á gervihnattamyndum frá því
fyrr í mánuðinum og frá síðustu mán-
uðum má greinilega sjá nýtt mann-
virki sem gæti verið slíkur pallur.
Þessar upplýsingar hafa verið eins og
olía á eld ótta Vesturlandaríkja um að
kommúnistaríkið á Kóreu skaganum
sé að setja upp kjarnorkuvopnakerfi.
Gæti verið fyrir geimflaugar
Skotpallurinn gæti þó ekki bara nýst
til að senda af stað langdrægar kjarn-
orkueldflaugar heldur einnig fyrir
geimflaugar. Líkt og áður hefur ver-
ið greint frá gerðu Norður-Kóreu-
menn misheppnaða tilraun til að
senda geimflaug á loft fyrr á árinu.
Tilgangurinn var að koma gervi-
tungli á sporbraut um jörðu. Þrátt
fyrir að pallurinn sé nú greinilegur
á gervihnattamyndum er ekki lík-
legt að hann verði nothæfur nærri
því strax. Starfsmenn Bandarísk-kór-
esku stofnunarinnar við Johns Hopk-
ins-háskólann í Bandaríkjunum hafa
farið yfir myndirnar og telja þeir að
skotpallurinn verði tilbúinn til notk-
unar fyrir árið 2016.
„Þessi stóra viðbót og uppfærsla á
kerfinu þeirra, sem er hannað til að
auðveldara sé að skjóta upp stærri
og betri eldflaugum í framtíðinni,
er bæði vottur um ákveðni og ein-
beittan vilja Norður-Kóreu í verk-
efninu,“ segir á vef stofnunarinn-
ar um eldflaugaskotpallinn. Bæði
Bandaríkin og Kína hafa þrýst á
Norður-Kóreu að hætta við kjarn-
orkuáform sín en ríkið hefur ekki vilj-
að ganga að kröfum þess efnis.
Stríðið ennþá í gangi
Deilurnar á Kóreuskaganum hafa
verið ógn við frið í Asíu og víðar allt
frá því að beinum hernaðaraðgerð-
um í Kóreustríðinu lauk. Stríðinu
hefur þó aldrei formlega lokið þrátt
fyrir að núna sé hægt að segja að um
kalt stríð sé að ræða. Norður-Kórea,
eða Alþýðulýðveldið Kórea eins og
það heitir opinberlega, er eitt lok-
aðasta ríki heims og er eins konar
svartur blettur á ratsjá alþjóðlegra
stofnana og öryggissveita vestrænna
ríkja. Lítið er vitað um raunverulega
vopnaeign ríkisins og hvort norður-
kóresk stjórnvöld búi í raun og veru
yfir kjarnorkuvopnum.
Stuðningur við ríkið hefur dalað
mikið en áður fyrr átti það stuðning
vísan frá bæði Rússlandi og Kína.
Eftir að Sovétríkin liðuðust í sundur
dró verulega úr aðstoð við ríkið og
erfiðar aðstæður til landbúnaðar í
landinu hafa haft þau áhrif að ríkið
hefur ekki getað sinnt íbúum eftir
þeim leiðum sem hugmyndafræði
stjórnvalda í landinu byggir á.
26 Erlent 25.–27. maí 2012 Helgarblað
Væg refsing fyrir nýársnauðgun
n Notfærðu sér ástand 14 ára stúlku og tóku myndir
S
autján ára piltur, Teejay Wal-
ker, og 18 ára félagi hans, Da-
vid Lindgard, voru í Burnley á
miðvikudag dæmdir í rúmlega
þriggja ára fangelsi fyrir að nauðga
14 ára stúlku á nýársdag. Breska dag-
blaðið The Daily Mail tekur harða af-
stöðu í umfjöllun sinni um dóminn
og gagnrýnir harðlega hversu vægur
hann er.
Stúlkan var meðvitundarlaus af
áfengisneyslu og gat því ekki sporn-
að við því þegar Walker og Lind gard
færðu hana upp í rúm, afklæddu hana
og þukluðu á henni. Lindgard nauðg-
aði henni síðan meðan Walker tók
myndir og myndband af glæpnum
með farsíma sínum. Fram kom fyrir
dómi að Walker hefði á hótað að birta
myndefnið á netinu ef stúlkan kjaft-
aði frá.
Upp komst um nauðgunina þegar
stúlkan brotnaði saman og sagði
kennaranum sínum frá því sem henni
hafði verið gert.
Dómari málsins var ómyrkur í
máli þegar hann dæmdi piltana. „Þið
eruð ekki börn, heldur ungir menn
sem ákváðuð að hunsa alla viður-
kennda siðferðisstaðla og lög þegar
þið frömduð þennan glæp.“
Dómarinn hafnaði beiðni verj-
enda piltanna um að nöfn þeirra yrðu
ekki birt sökum aldurs þeirra. Báðir
játuðu þeir sök fyrir dómi og fengu
þrjú ár og fjóra mánuði í refsingu. Þeir
verða í þokkabót á skrá yfir kynferðis-
glæpamenn um ókomna tíð.
Verjandi Lindgards fullyrti fyrir
dómi að piltarnir hefðu ekki hellt
stúlkuna ölvaða í þeim tilgangi að
nauðga henni. Verjendur beggja
sögðu fyrir dómi: „Gjörðir hans eru
algjörlega úr karakter við þennan
unga mann.“
Verjandi Walkers sagði engar skýr-
ingar á því sem gerðist. „Það gerðist.
Það var skelfilegt. Hann er miður sín
yfir þessu en getur ekki breytt því sem
gerst hefur.“
The Daily Mail slær því upp í fyrir-
sögn að refsing piltanna sé væg, þeir
hafi „bara“ fengið þriggja ára dóm.
mikael@dv.is
Hjálpsömum
lækni refsað
fyrir landráð
Pakistanski læknirinn Shakil Afridi
sem Leon Panetta, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, sagði í
janúar að ætti að öðrum ólöstuð-
um hvað mestan heiður af því að
Bandaríkjamönnum tókst að hafa
uppi á Osama bin Laden hefur
verið dæmdur í 33 ára fangelsi í
heimalandinu fyrir hjálpsemina.
Dómurinn er síst til að bæta
síversnandi samband Banda-
ríkjanna og Pakistan, enda hefur
ríkisstjórn Baracks Obama ítrekað
krafist lausnar Afridis. Hann stýrði
bólusetningarátaki í Abbottabad
sem talið er hafa verið yfirskin til
að að hafa upp á bin Laden. Og
það virkaði. Einhverra hluta vegna
fannst stjórnvöldum í Pakistan
þetta ekki jafn sniðugt uppátæki
og ákærðu og dæmdu nú Afridi
fyrir landráð. Hann þarf að auki að
greiða 320 þúsund pakistanskar
rúpíur í sekt.
Birti mynd af
röngum manni
Breska samgöngulögreglan
hefur viðurkennt að það hafi
verið mistök að birta mynd á
þriðjudag af manni sem leitað
var vegna kynferðisbrots um
borð í lest á leið frá London til
Birmingham í febrúar síðast-
liðnum. Þá hafði 29 ára kona
sofnað um borð í lest snemma
morguns en vaknaði við að
ókunnugur maður var að þukla
á brjóstum hennar. Konunni
var skiljanlega afar brugðið
og stökk úr lestinni á næstu
stoppistöð til að ná áttum. Að
svo búnu stökk hún aftur um
borð og tók mynd af mannin-
um sem hún taldi hafa framið
verknaðinn. Á næstu stoppi-
stöð fór hún frá borði og hafði
samband við lögreglu. Þessa
mynd birti lögregan á þriðju-
dag í von um að hafa uppi á
manninum. Á miðvikudag lýsti
lögreglan því yfir að maðurinn
á myndinni væri saklaus.
Á þríhjóli í
umferðinni
Það fór talsvert betur en á horfðist
í Wenzou í Kína á dögunum þegar
þriggja ára labbakútur á þríhjóli
slapp frá afa sínum og hjólaði út í
traffíkina á stórum gatnamótum í
borginni.
Atvikið óhugnanlega náðist á
eftirlitsmyndavélar og á mynd-
bandi má sjá hvar pjakkurinn fer
með öllu óhræddur út á miðja
götu, í veg fyrir rútur og aðrar að-
vífandi bifreiðar. Klukkan var hálf
sex um dag og því um háanna-
tíma að ræða. Eftir að hafa sloppið
undan fjölmörgum bifreiðum var
drengnum á endanum bjargað
af lögreglumanni og skilað til afa
sem skiljanlega var afar brugðið.
Nauðgarar Walker (t.v.) og Lindgard fengu rúmlega þriggja mánaða dóm fyrir að nauðga
14 ára stúlku á nýársdag. MyNd SkjáSkot af vef tHe daily Mail
n Halda áfram að byggja upp varnarkerfi n Fara ekki að tilmælum
Norður-Kórea eflir
eldflaugavarNirNar
Nýi skotpallurinn Á þessari gervihnattamynd má sjá nýjan eldflaugaskotpall norður-
kóreskra stjórnvalda.
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
enn í stríði Deilurnar á
Kóreuskaganum hafa verið ógn
við frið í Asíu og víðar allt frá því
að beinum hernaðaraðgerðum
í Kóreustríðinu lauk. Stríðinu
hefur þó aldrei formlega lokið.