Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Side 27
Erlent 27Helgarblað 25.–27. maí 2012 R epúblikanar eru þeir sem eyða mestu af peningum rík- isins, segir Barack Obama, forseti Bandaríkjanna. Obama segir að repúblikan- ar eyði um efni fram og það endi svo á herðum demókrata að hreinsa upp eftir óráðsíu í ríkisfjármálum þegar þeir komast til valda. „Ég tók við ríkis- sjóðnum í 1.000 trilljón dala halla og kom strax á 2.000 trilljón dala niður- skurði,“ sagði Obama á fjáröflunar- kvöldverði vegna forsetaframboðs- ins á miðvikudag. „Ég er að reyna að borga niður þessar skuldir með leið- um sem ógna ekki stöðugleika og eru ábyrgar.“ Fjárlögin haldast stöðug Fulltrúar Repúblikanaflokksins, með Mitt Romney, forsetaframbjóðanda flokksins í broddi fylkingar, hafa haldið því fram að demókratar eyði meira af peningum almennings en repúblikanar. Tölur sem teknar voru saman af MarketWatch, sem tilheyrir bandaríska blaðinu Wall Street Journ- al, sýna hins vegar fram á hið gagn- stæða. Samkvæmt tölunum hefur enginn forseti á síðustu árum auk- ið eyðslu fjármuna ríkisins hægar en Obama. Það þýðir að hann hafi ekki aukið eyðslu ríkisins jafn snöggt og fyrirrennarar hans í starfi. Fullyrðingar um annað byggja að öllum líkindum á tölum þar sem ein- ungis er litið til þess hvenær kostnað- urinn kom til en ekki hvenær ákvörð- un um fjárútlát var tekin. Stærstur hluti þess kostnaðar sem jafnan hef- ur verið skrifaður á Obama var til- kominn vegna ákvarðana George W. Bush, fyrrverandi forseta og fulltrúa Repúblikanaflokksins, síðasta mánuð hans í embætti. Útgjöld vaxa um 1,4 prósent Samkvæmt áætlunum Obama fyr- ir núverandi kjörtímabil, sem senn er á enda, mun eyðsla bandaríska ríkisins aukast um sem nemur 1,4 prósentum. Það er minna en hjá nokkrum öðrum forseta Bandaríkjanna á síðustu fimm- tíu árum. „Síðan ég varð forseti hefur eyðsla ríkisins ekki aukist minna í meira en 60 ár. Hugsið um það,“ sagði Obama á fjáröfl- unarkvöldverðinum og bætti við að andstæðingar sínir myndu samt lík- lega aldrei viðurkenna það. „Ríkiseyðsla eykst alltaf minnst undir stjórn forseta frá Demó- krataflokknum,“ sagði Obama einnig. „Ég veit ekki hvern- ig andstæð- ingar okkar hafa blekkt fólk til að halda að þeir séu hinn ábyrgðarfulli, agasami stjórnmálaflokkur. Þeir keyra upp gegndarlausar skuldir ríkisins og svo kemur það í okkar hlut að laga það.“ Það er þó ekki hægt að líta framhjá því að það er ekki bara Obama að þakka að ríkisútgjöld haldist nokkuð stöðug á milli ára. Banda- ríska þingið hef- ur alls ekki sam- þykkt öll fjárútlát sem Obama hefur viljað fara út í og eru það einna helst repúblikanar sem reyna að stöðva hann. Demókratar eru ábyrgari n Barack Obama segir demókrata alltaf þurfa að hreinsa til eftir repúblikana Hlutfallsaukning á útgjöldum bandaríska ríkisins miðað við fjárlög sem samþykkt eru undir stjórn hvers forseta fyrir sig. Athugið að fyrstu fjárlög hvers forseta taka gildi ári eftir að hann tekur við embætti. Lítil aukning Ronald Regan 1982–1985 Ronald Regan 1986–1989 George Bush 1990–1993 Bill Clinton 1994–1997 Bill Clinton 1998–2001 George W. Bush 2002–2005 George W. Bush 2006–2009 Barack Obama 2010–2013 H ei m il d : m a r k et W a tc H , W a ll S tr ee t Jo u r n a l 8,7% 4,9% 5,4% 3,2% 3,9% 7,3% 8,1% 1,4% Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is minnsta hækkunin Ríkisútgjöld í Bandaríkj- unum hafa hækkað minna undir stjórn Obama en fyrirrennara hans í starfi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.