Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Side 30
30 Umræða 25.–27. maí 2012 Helgarblað
Fundarstjóri: Ólöf
Skaftadóttir spyr: Þú hefur
nefnt að þú viljir setja þak á
eignarrétt – geturðu útskýrt það
nánar?
Herdís: Ég hef kallað eftir
umræðum um eignarréttinn þar
sem auður og völd hafa verið að
þjappast á æ færri hendur og sum
fyrirtæki sem teygja anga sína
víða eru orðin sterkari en þjóðríkin
sjálf. Höfundum bandarískrar
stjórnskipunar fannst þetta lýð-
ræðisspurning á 18. öld. Umræður
eru nauðsynlegar. Samþjöppun á
auði og valdi er ógn við lýðræðið.
Elísa Snæ: Ertu femínisti?
Herdís: Femínismi
er aðgerðarstefna um
að nauðsynlegt sé að grípa til
aðgerða þegar jafnréttislög eru
virt að vettugi. Að því leyti er ég
femínisti – það hallar enn á konur
og ef réttur þeirra er fyrir borð
borinn – þá er réttur barna þeirra,
drengja og stúlkna, einnig fyrir
borð borinn.
Harpa Hjálmtýsdóttir:
Hvað finnst þér um
skopmyndina sem var nýlega
birt af núverandi forseta?
Herdís: Mér fannst hún ekki
smekkleg. Skop er mikilvægur
þáttur af tjáningarfrelsinu og
George Washington var einu sinni
teiknaður sem afturendi en þetta
var ekki fyndið.
Jónas Bjarnason: Sem
forseti Íslands, hyggst þú þá
reyna að hafa áhrif á
pólitíkina áður en gengið er frá
frumvörpum í þinginu?
Herdís: Nei, ég tel það ekki hlut-
verk forseta Íslands. Hann sver eið
að stjórnarskránni og verður að
virða höfuðeinkenni okkar stjórn-
skipunar sem er þingræðið. Hann
getur haft áhrif með öðrum móti.
Arnar Björnsson: Hefur þú
starfað fyrir einhvern
stjórnmálaflokk? Ef já, hvaða
flokk og með hvaða hætti?
Herdís: Nei, ég hef ekki starfað í
stjórnmálaflokki. Skilst að það séu
fleiri spurningar um hvort ég hafi
starfað í stjórnmálaflokki. Nei,
vildi aldrei koma nálægt pólitísku
starfi sem ritstjóri og ekki heldur
sem fræðimaður.
Þuríður Einarsdóttir:
Hverjar eru áherslur þínar í
náttúruverndarmálum?
Hvernig getur forsetinn beitt sér í þeim
efnum?
Herdís: Ég er náttúruverndarsinni.
Við þurfum að breyta viðhorfi
okkar til þess hvernig við högum
okkur gagnvart náttúrunni. Við
verðum að nýta auðlindirnar betur
og ganga ekki hraðar á þær en þær
endurnýjast.
Ásta Sigrún Magnúsdóttir:
Sæl, Herdís. Hvert yrði þitt
fyrsta embættisverk næðir
þú kjöri?
Herdís: Að hóa í starfsmenn og
ræða embættið – kynnast þeim
og leggja drög að samstarfi okkar.
Hrönn Hauksdóttir: Hverjir
styrkja kosningabaráttu
þína?
Herdís: Við treystum á framlög
frá almenningi – sjá Herdis.is þar
er hægt að finna kennitölu og
reikningsnúmer. Margt smátt gerir
eitt stórt. Þetta er spurning um
lýðræði fyrir okkur.
Kara Hergils: Hvað varð til
þess að þú varðst snemma
svona áhugasöm um
mannréttindi?
Herdís: Ég las bækur sem krakki
– t.d. eftir Charles Dickens, sem
vöktu hjá mér samkennd með
lítilmagnanum. Ég er alin upp í
kristnum gildum og tel mikilvægt
að við vinnum saman að réttlátari
heimi.
Viktoría Hermannsdóttir:
Hvað hefur þú fram yfir hina
frambjóðendurna?
Herdís: Ég er hvorki bundin stjórn-
málaöflum né peningaöflum; ég
hef mikinn skilning á stjórnskipun,
mannréttindum og lýðræði; ég hef
öðlast talsverða lífsreynslu, rekið
eigið fyrirtæki og fleira – þjóðin
á að geta sameinast um fram-
bjóðanda sem hefur hennar hags-
muni að leiðarljósi – EINGÖNGU.
Marteinn Kristjánsson: Í
hvers konar málum finnst þér
að forseti eigi helst að beita
málskotsréttinum?
Herdís: Áhugaverð spurning,
Marteinn. Í umdeildum, mikil-
vægum málum þar sem ákvörðun
er jafnvel óafturkræf – og skapast
hefur gjá milli þings og þjóðar.
Andri Sturluson: Ég spyr þig
sömu spurningar og Ólaf sem
því miður fór undan í
flæmingi: Ef þú værir ekki í framboði
hver væri líklegastur til að hreppa
atkvæði þitt?
Herdís: Þá væri ég í standandi
vandræðum :)
Eggert Eyjólfsson: Óháð
núverandi kosningabaráttu,
telur þú að hámark eigi að
vera á fjölda kjörtímabila sem forseti
getur setið?
Herdís: Vald spillir – valdafíkn
er mönnum í blóð borin og því
verður að stemma stig við langri
valdasetu. Átta ár eru hæfilegur
tími.
Kristín Guðnadóttir: Sæl,
Herdís, geturðu upplýst um
afstöðu þín til sambands ríkis
og kirkju?
Herdís: Mér þykir vænt um
kirkjuna. Ég er í þjóðkirkjunni og
hef mína trú. Sem fræðimaður á
sviði mannréttinda virði ég eins
og stjórnarskráin trúfrelsi. Það má
breyta kirkjuskipan með lögum
og þjóðin á síðasta orðið. Nú
skilst mér að um einn fimmti hluti
Íslendinga sé ekki í þjóðkirkjunni.
Þegar höfundar bandarískrar
stjórnskipunar voru að kljást
við aðskilnað kirkju og ríkis var
kirkjan mjög voldug og víða mjög
spillt. Í mínum huga er „kirkjumál“
nútímans þau sterku peningaöfl
sem bráðnauðsynlegt er að að-
skilja frá ríkisvaldinu – þjóðkirkjan
virkar „meinlaus“ í samanburði.
Hinrik Hinriksson: Sæl,
Herdís og takk fyrir að bjóða
þig fram. Hefðir þú beitt
málskotsréttinum í þeim málum sem
ÓRG gerði? Hvers vegna (ekki)?
Herdís: Ég hefði beitt mál-
skotsréttinum í Icesave – eins
og hann gerði í fyrra skiptið
– jafnvel í síðara skiptið – það
á að lesa stjórnarskrána út frá
grundvallarreglunni um lýðræði
og sjálfsákvörðunarrétt fólksins.
Eggert Eyjólfsson: Í
framhaldi af fyrri spurningu
minni, telur þú að rétt væri að
setja sama eða svipuð ákvæði um
þingmenn?
Herdís: Já, alfarið. Hámark 8 ár.
Brýnt mál í þágu lýðræðis að setja
hámark á fjölda kjörtímabila þing-
manna.
Sveinn Þórarinsson: Til
baka í spurninguna um þak á
eignarréttinn. Er það rétt að
þú hafir nefnt að 100 millj. kr. sé
hæfilegt þak/upphæð fyrir hvern og
einn að eiga?
Herdís: Nei. Fjarri því. Ég var
að hvetja til umræðu en ekki
til skerðingar á eignum fólks –
heldur umræðu um samþjöppun
gífurlegs auðs og valds sem er
mikil ógn við lýðræðið.
Elísa Snæ: Ef gerð væri
bíómynd um líf þitt, hver
myndi leika þig?
Herdís: Meryl Streep ef ég fengi
að ráða – hún er svo mikil leikkona
– getur brugðið sér í flest hlutverk.
Ef ekki hún – þá yngri systir mín,
Katla Margrét, sem er leikkona.
Hún þekkir mig.
Bryndís Torfadóttir Sæl,
Herdís, hvernig hyggst þú
nýta stöðu þína sem forseti
Íslands á alþjóðavettvangi?
Herdís: Ég hyggst tala máli
Íslands og Íslendinga; máli mann-
réttinda og lýðræðis – hjálpa
íslenskum hagsmunum eins og
ég get en um leið styrkja stöðu
okkar í samfélagi þjóðanna – og
best væri ef ég gæti komið Íslandi
á kortið vegna áhuga hér á grund-
vallarspurningum samtímans.
Fundarstjóri: Sigríður
Ásgeirsdóttir spyr: Það er
algengt að framagjarnar
konur og hommar séu kölluð frekjur,
og hefur frekjuorðræðan loðað að
einhverju leyti við þig. Af hverju heldur
þú að það sé?
Herdís: Kannski af því að einhverj-
um finnst ég frek – eða ákveðin
:) en þetta kann líka að stafa af
öðrum ástæðum – af því að ég er
komin í framboð …
Erla Einarsdóttir Sæl,
Herdís. Hver er skoðun þín á
inngöngu Íslands í ESB?
Herdís: Afi minn sagði við dætur
sínar þegar þær kynntu manns-
efni sín fyrir honum: Er jafnræði
með ykkur? Það eru mjög erfiðir
tímar núna í Evrópu og meirihluti
þjóðarinnar virðist á móti
aðild. Það eru áhyggjur vegna
ástandsins í Evrópu – ég held að
það sé rétt að skoða hvað kemur
út úr aðildarviðræðum – það
liggur ekki einu sinni fyrir hvernig
stóru málunum reiðir af. Þjóðin á
að eiga lokaorðið.
Njörður Helgason: Hvaða
stefnu vilt þú marka þér í
embætti verðir þú kosin?
Herdís: Ég vil verða þjóðinni að
liði með því að tala fyrir þeim
málum sem ég hef „helgað“ líf
mitt – það er mannréttindum og
lýðræði; ég vil hvetja þjóðina til
samræðu um þau mál – hvetja
fólk til þátttöku í lýðræðislegu
stjórnarfari – efla vitund fólks
um réttindi sín og hvetja til
borgaralegs hugrekkis. Þannig
getum við bægt frá ótta og stefnt
fram á við til betra og réttlátara
samfélags. Við verðum að taka
meiri þátt sjálf – annars stefnir í
óefni. Ég vil tala fyrir samvinnu
okkar, ættjarðarást, nægjusemi,
sjálfbærni, afturhvarfi til gamalla
gilda, t.d. dyggða.
Elvar Örn Unnþórsson:
Ólafur Ragnar svaraði ekki
þessari spurningu þegar hann
mætti í Beina línu DV, vona að þú gerir
betur. Hefðir þú veitt Árna Johnsen
uppreisn æru?
Herdís: Ég hefði aldrei veitt einum
umfram öðrum uppreisn æru og
alls ekki á pólitískum forsendum.
En þekki ekki/man ekki rökin að
baki þeirri kröfu að veita Á.J. upp-
reisn æru.
Ólafur Sindri: Þú ert lögst í
freyðibað með rauðvínsglas á
baðbrúninni og ilmkerti á
borðinu. Hvaða tónlist myndirðu setja
á fóninn, hvaða bók myndirðu grípa í
og hvernig ilmur væri af kertunum?
Herdís: Ólafur, nú erum við að
tala saman. Kannksi Al Green –
Bowie, jafnvel eða Debussy. Bók –
góður reyfari – jafnvel tímarit sem
má blotna – og lavander-ilmur.
Elísa Snæ: Áttu þér
uppáhaldstónlistarmann? Og
hverjir eru skemmtilegustu
tónleikar sem þú hefur farið á?
Herdís: Nei, margir góðir – Bítl-
arnir – Bowie, reggae-tónleikar í
Boston þegar ég var þar í námi –
skemmtilegustu tónleikar sem ég
man eftir.
Arnar Sigurðsson: Sæl,
Herdís, hver er afstaða þín
gagnvart hvalveiðum
Íslendinga?
Herdís: Við eigum að fara eftir
alþjóðalögum .
Ásta Sigrún Magnúsdóttir:
Nú hefur komið í ljós að
spurningar tengdar
stjórnlagaráði verða settar í
þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar.
Hvernig hugnast þér það?
Herdís: Lýðræði er alltaf svarið –
þjóðaratkvæðagreiðsla er ágæt
lausn í þessu samhengi.
Vera Sölvadóttir: Telur þú
að forseti Íslands ætti að
hafa meiri völd en hann hefur
nú?
Herdís: Þetta er flókin spurning.
Ég tel brýnt að undirstöður
okkar stjórnskipunar virki þannig
að þrískipting ríkisvaldsins sé
tryggð – forsetinn hefur ýmis völd
– þótt formleg séu samkvæmt
stjórnarskrá. Hann gegnir ákveðnu
öryggishlutverki og ég tel mikil-
vægt að tryggja það áfram.
Kristín Þórðardóttir: Ef
Dalai Lama eða ráðherrar úr
útlagastjórn Tíbet kæmu
hingað, tækirðu á móti honum sem
forseti á Bessastöðum opinberlega
þrátt fyrir augljósa andstöðu (og
jafnvel þrýsting) kínversku
stjórnarinnar?
Herdís: Dalai Lama er virtur út
um allan heim – ef hann kæmi til
Íslands myndi ég að sjálfsögðu
vilja bjóða honum til Bessastaða
og ræða við hann. Hef reyndar hitt
hann einu sinni.
Vera Knúts: Nú förum við
eftir alþjóðalögum í
sambandi við hvalveiðar þar
sem við höfum sett fyrirvara við
ályktanir IWC. Hver er þín afstaða til
hvalveiða?
Herdís: Ég get ekki sagt að ég sé
hrifin af þeim.
Hallur Guðmundsson:
Hyggst þú stíga það skref að
aðstoða við útrás íslenskrar
dægurtónlistar náir þú kjöri sem
forseti?
Herdís: Ég mun – eins og ég best
get – verða öllu listafólki að
liði – og hjálpa til við kynningu á
verkum þeirra ef til mín yrði leitað.
Fundarstjóri: Hver er
hjúskaparstaða þín?
Spyrjandinn kallar sig „Valur“.
Herdís: Ég er fráskilin.
Sigríður Gísladóttir: Hvað
finnst þér um samskipti
sitjandi forseta við Kínverja?
Hvað myndir þú gera öðruvísi, m.t.t.
áhuga þíns á mannréttindum?
Herdís: Ég myndi með sama hætti
og alltaf – vilja ræða mann-
réttindamál við kínverska for-
ystumenn – setja þau í samhengi
við pólitík og þau viðmið sem við
byggjum á.
Hannes Þórisson: Hvernig
hefur þér fundist kosninga-
baráttan hafa farið af stað
núna í vor? Og hefur þér fundist
fjölmiðlar draga taum einhvers
ákveðins frambjóðanda fram yfir
annan?
Herdís: Kosningabarátta mín
fór frekar hægt af stað. Þeir
sem vinna með mér eru allir
sjálfboðaliðar – fólk í fullu starfi
annars staðar, sem hefur samt
verið tilbúið að leggja dag við
nótt. Sökum þess að það er engin
„maskína“ á bak við mig verðum
við að gera allt sjálf – þannig vann
ég sjálf að gerð heimasíðu o.s.frv.
– fór ekki á Beina línu á DV í apríl
af því að ég var að sinna störfum
erlendis o.s.frv. Ég held að það
hafi ekki farið fram hjá neinum að
sumir frambjóðendur hafa verið
mun meira áberandi í fjölmiðlum
en aðrir – en ég kýs ekki að gagn-
rýna þá meira en gert hefur verið
– sjáum hvort fjölmiðlarnir taka
sig ekki á – núna þegar framboðs-
frestur er útrunninn. Það verður
spennandi að sjá.
Ólafur Sindri: Með hvaða liði
heldurðu í enska boltanum?
Herdís: Ég held með sama liði og
sonur minn, 17 ára – Arsenal!
Herdís Þorgeirsdóttir telur að forseti Íslands eigi að sitja að hámarki í 8 ár í embætti.
Óbundin öllum stjórnmálaöflum
Rangfærslur
um bóluefni
leiðréttar
Í
opnu bréfi frá Þorsteini Scheving
Thorsteinssyni sem birt er í DV sl.
miðvikudag, er því ranglega hald
ið fram að lát 14 barna í Argent
ínu á árunum 2007 til 2008 tengist
bóluefni sem notað var í læknis
fræðilegri rannsókn á vegum Glaxo
SmithKline (GSK) sem fram fór í
Argentínu, Kólumbíu og Panama.
Jafnframt er látið að því liggja að
GSK hafi verði sektað vegna þessara
dauðsfalla. Þessar fullyrðingar eru
rangar.
Sekt Lyfjastofnunar Argentínu
(ANMAT) varðaði utanumhald
rannsóknargagna í COMPAS rann
sókninni í fylkjunum Mendoza,
Santiago del Estero og San Juan á
árunum 2007 og 2008. Málið varð
aði á engan hátt öryggi bóluefnis
ins Synflorix sem notað var í rann
sókninni.
GSK viðurkennir að mistök áttu
sér stað varðandi meðferð rann
sóknargagna. Þessi mistök upp
götvuðust flest við eftirlit fyrirtækis
ins á framkvæmd rannsóknarinnar
á árunum 2007 og 2008 og vörðuðu
aðeins lítinn hluta nærri 14.000
þátttakenda.
GSK hafði frumkvæði að því að
tilkynna málið þegar í stað til AN
MAT og greip strax til ráðstafana til
að leiðrétta þá misfellu sem komið
hafði í ljós við framkvæmd rann
sóknarinnar. Öryggi þátttakenda var
aldrei hætta búin og því heimilaði
ANMAT að rannsóknin héldi áfram
samkvæmt áætlun.
GSK áfrýjaði þeirri ákvörðun
ANMAT að sekta GSK í þeim þrem
ur fylkjum sem um ræðir. Í fylkinu
Mendoza tapaði GSK þessari áfrýj
un.
COMPAS rannsóknin er mjög
mikilvæg rannsókn og sú fyrsta
sinnar tegundar í S.Ameríku.
Henni er ætlað að svara lykilspurn
ingum um virkni pneumokokka
bóluefnisins frá GSK. Gerðar eru
vonir um að niðurstöður rannsókn
arinnar staðfesti notagildi bólu
efnisins gegn alvarlegri sýkingu til
hagsbóta fyrir milljónir barna í S.
Ameríku þar sem há sýkingartíðni
pneumokokka er víða landlæg.
Alþjóðaheilbrigðismálastofn
unin WHO áætlar að árið 2000 hafi
meira en 800 þúsund börn yngri
en 5 ára látist af völdum pneumo
kokka og að 90% þessara dauðs
falla hafi orðið í þróunarlöndum.
Synflorixbóluefnið gegn pneumo
kokkasýkingum var skráð og leyft til
notkunar í Evrópu í mars 2009 og í
Argentínu af ANMAT í ágúst 2009
og það er nú fáanlegt um allan heim
sem vörn fyrir börn gegn sýking
um af völdum pneumokokka. Frá
árinu 2009 hefur yfir 50 milljónum
skammta af Synflorix verið dreift til
bólusetningar á börnum í meira en
100 löndum.
Aðsent
Mest lesið á DV.is
1 Ragna hefur ekki efni á lögfræðingi Ragna Erlendsdóttir, móðir Ellu Dísar Laurens.
2 Þorðu ekki með Börk í Héraðsdóm Suðurlands Dómarinn kom á Litla-Hraun.
3 „Þau ákváðu þetta bara sjálf“ Starfs-brautarnemendur í Flensborgarskólanum tóku
ákvörðun um að vera með hvítar húfur líkt og
nýstúdentar.
4 Jim Parsons kemur út úr skápnum Jim Parsons, sem leikur Sheldon Cooper í Big Bang
Theory, er samkynhneigður.
5 Vill kæra rangt verð til lögreglunnar Viðskiptavinur Krónunnar segist íhuga að kæra
Krónuna til lögreglunnar fyrir að auglýsa lágt
verð en viðskiptavinir greiða mun hærra verð.
6 Kom alblóðug í Arion banka eftir árás hunds Ko na kom alblóðug inn í Arion banka í
Austurstræti eftir að hundur hafði ráðist á hana.
7 Alin upp í flugvél Fjölmiðlakonan Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir er búin með bóklega hlutann
af flugnáminu og er byrjuð á verklega þættinum.
Hjörleifur
Þórarinsson
framkvstj. GlaxoSmithKline
Nafn: Herdís Þorgeirsdóttir
Aldur: 58 ára
Menntun: Doktorspróf í
lögfræði frá lagadeild Lund-
arháskóla (Dr. Juris)
Starf: Lögmaður á sviði
mannréttinda.