Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Blaðsíða 51
51Helgarblað 25.–27. maí 2012
„Spennandi og
áhugaverð lesning“
Dauði
næturgalans
Uppáhaldskvikmyndin
Heilsu hans hrakaði og hann
horaðist mikið og þurfti að
aflýsa allnokkrum tónleikum.
Um miðjan apríl fékk Robin
svæsna lungnabólgu og var í
dái. Hann vaknaði úr dái 20.
apríl og skildi við sama dag.
Fjöldi tónlistarmanna hef-
ur lýst sorg sinni vegna fráfalls
Robins í orðum.
Falsettunum fækkar
n Bræðurnir Barry, Robin og Maurice Gibb voru Bee Gees – Barry Gibb lifir bræður sína
Ummæli
annarra
n Mér hefur ávallt fundist að
við sem erum í poppi og rokki
séum í bræðralagi og Robin er
einn okkar sem hefur kvatt of
snemma. – Cliff Richards
n Hann var dásamlegur. Hann
hafði ótrúlega kímnigáfu og það
var gaman að vera í kringum
hann. – Dionne Warwick
n Þetta er harmleikur fyrir
tónlistarheiminn. Robin var hluti
af einhverju einstöku. – Kenny
Rogers
n Robin var fyrst og fremst
prýðisnáungi sem átti ekki skilið
að deyja þetta ungur. Við munum
öll sakna hans sem manneskju
og vegna þess sem hann færði
tónlistinni. – Tony Blair,
fyrrverandi forsætisráðherra
Bretlands
n Robin verður minnst sem tón-
listarmanns og sem söngvara og
hluta af Bee Gees. Arfleifð þeirra
verður Staying Alive, raddirnar og
tónlistin sem þeir skrifuðu.
– Ringo Starr
n Við höfum misst sannarlega
frábæran tónlistarmann í dag.
Eitt af átrúnaðargoðum mínum.
– Justin Timberlake
n Hvíl í friði, Robin. Stórmenni í
tónlistinni. – Mick Hucknall
Bræðurnir saman á sviði 1997
Fremstur er Barry, síðan Robin og
fjærst er Maurice.
Jafnfrábær í dag Ingó Geirdal töframaður
„Kvikmyndin Modern Times eftir Chaplin er í miklu uppáhaldi hjá mér, enda
eitt af fjölmörgum meistaraverkum þessa mikla snillings. Jafnfrábær í dag og
þegar ég sá myndina fyrst í bíó fjögurra ára gamall.“
„Ekki alvond
sýning“
Svar við
bréfi Helgu
Þ
eir sem eru komnir
yfir miðjan aldur
muna eftir lögunum
Release Me, Quando
Quando Quando,
og The Last Waltz, svo ein-
hver séu nefnd. Ungt fólk sem
hefur gaman af gamalli tónlist
þekkir þessi lög eflaust einnig.
Sá sem gerði þau fræg var á
sínum tíma mikið kvennagull
og heillaði með huggulegu
útliti og hljómmikilli rödd. Í
dag er hann 76 ára og fulltrúi
Bretlands í Söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva
– Engelbert Humperdinck –
elsti keppandinn ef undan er
skilin rússnesk babúska.
Engelbert er breskur, en
fæddist í Madras á Indlandi
1936, sonur bresks foringja,
Mervins Dorsey, og konu
hans Oliviu sem var af ind-
versku bergi brotin. Þegar
Engelbert var tíu ára flutti fjöl-
skyldan til Leicester á Eng-
landi.
Leiðin til frægðar
Arnold George, eins og Engel-
bert var skírður, hugði á frægð
og frama og var um skeið, í
byrjun sjötta áratugar síðustu
aldar, kallaður Gerry Dorsey
af vinum sínum vegna þess
hversu góð Jerry Lewis-eftir-
herma hann var.
Engelbert fékk sitt fyrsta
tækifæri hjá hljómplötufyrir-
tækinu Decca árið 1958 þegar
hann hljóðritaði I‘ll Never Fall
in Love Again. Lagið
varð ekki smellur.
Árið 1965 kynnt-
ist Engelbert umboðs-
manni söngvarans
Toms Jones, Gordon
Mills. Mills ráðlagði
Engelbert að kasta
nafni sínu fyrir róða og
taka upp meira gríp-
andi nafn – Engelbert
Humperdinck – nafn
19. aldar þýsks tón-
skálds. Mills útveg-
aði Engelbert einnig
samning við Decca.
Slepptu mér
Snemma árs 1967
uppskar Engelbert
laun þolinmæði sinn-
ar. Þá komst lagið
Release Me á topp
tíu lista beggja vegna Atl-
antshafsins. Lagið komst í
fyrsta sæti í Bretlandi og fyrir
vikið urðu Bítlarnir að sætta
sig við að smáskífa þeirra
Strawberry Fields Forever/
Penny Lane sat í öðru sæti.
Talið er að Release Me hafi
selst í 85.000 eintökum á dag
þegar vinsældir þess voru
sem mestar. Það sat í 56 vikur
á topp 50 lista yfir vinsælustu
lögin og var lengi vel vinsæl-
asta lag Engelberts Humper-
dinck.
Engelbert Humperdinck
hefur ekki átt lag
á topp 20 síðan 1972 en er
vonarstjarna Breta í Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva í ár.
Ekki dauður úr öllum
æðum
Þrátt fyrir að mikið vatn hafi
runnið til sjávar síðan Engel-
bert Humperdinck, eða
Hump eins og hann er stund-
um kallaður, átti smell hefur
hann ekki setið aðgerðalaus
með hendur í skauti. Hann
ku njóta einhverra vinsælda í
nokkrum þeirra landa sem
taka þátt – og kjósa – í Euro-
vision-keppninni í ár.
Í fyrra lagði hann land
undir fót og fór í hljómleika-
ferðalag um Belgíu, Rúmen-
íu, Holland og stakk meira að
segja niður fæti í Ísrael.
Engelbert er án efa vel
þekktur og kynntur á alþjóð-
lega tónlistarsviðinu. Hann
hefur selt yfir 150 milljónir
hljómplatna, verið tilnefnd-
ur til Grammy-verðlauna
fjórum sinnum og hlotið Gol-
den Globe-verðlaunin sem
skemmtikraftur ársins.
Engelbert Humperdinck
hefur fengið 63 gullplötur
og 24 platínuplötur og varð
þess heiðurs aðnjótandi að fá
stjörnu á Hollywood Walk of
Fame – geri aðrir betur.
Hver veit nema vinsældir
hans gangi í endurnýjun líf-
daga með þátttöku hans í
Eurovision.
Aldraður, ekki
andaður „Hump“
n Bretar tefla ekki fram neinu ungviði í Eurovision í ár
„Ég þoli ekki
þegar þær
henda brjósta-
höldurum í mig –
eða nærbuxum.
Það er svo mikil
sóun. Ekkert af
þessu passar á mig.
n Engelbert er talinn einn auðugasti tónlistarmaður í heimi og er
metinn á um 100 milljónir Bandaríkjadala.
n Hann er í útlegð frá Englandi vegna skattamála. Útlegðin veldur því
að hann getur aðeins dvalið þar 90 daga á ári. Tíma sínum ver hann
annars á heimili sínu í Los Angeles í Bandaríkjunum.
n Engelbert, líkt og Tom Jones, naut þess heiðurs að konur áttu til að
fleygja í hann nærfatnaði þegar hann kom fram. Hver veit nema sú
sé enn raunin.
n Árið 1989 var eftirfarandi haft eftir honum: „Ég þoli ekki þegar þær
henda brjóstahöldurum í mig – eða nærbuxum. Það er svo mikil
sóun. Ekkert af þessu passar á mig.“
n Engelbert býr í bleiku höllinni, „Pink Palace“, í Hollywood. Villan var
áður í eigu leikkonunnar Jayne Mansfield og þar er meðal annars að
finna hjartalaga sundlaug.
Engelbert Humperdinck
Fyrir framan bleiku höllina sem hann býr í „Pink Palace“ í Hollywood var áður í eigu leikkonunnar Jayne Mansfield.
Á náttsloppnum Engelbert
Humperdinck virðist ekki eyða
tíma fyrir framan arininn.