Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Blaðsíða 56
56 Lífsstíll 25.–27. maí 2012 Helgarblað H ryssurnar klára þetta yfir- leitt sjálfar en ég fer út nokkrum sinnum á dag og fylgist með þeim. Annars er ég farin að þekkja þær svo vel og veit hvenær þetta gerist,“ seg- ir Svanhildur Hall hjá Úrvalshestum sem hefur fylgst með ófáum hryss- um kasta. „Ég hef séð þetta gerast á tveimur mínútum, frá því að hryssan er farin að vera óróleg þar til folald- ið er komið út. Svo hef ég líka orðið vitni að því að þetta taki klukkutíma. Það var mjög erfið fæðing þótt hún hafi komið þessu frá sér óstudd á endanum,“ segir Svanhildur og bætir við að hún haldi sig í fjarlægð á með- an hryssurnar kasti. „Þær þekkja mig þannig að ég er nokkuð viss um að ég sé ekki að trufla þær en samt er ég alltaf nokkra metra í burtu ef allt gengur vel. Ég hef þó bjargað folaldi með því að rífa gat á belginn. Þá var farið að snörla í því svo ég stökk til.“ Öll folöldin sem koma í heiminn hjá Svanhildi fá að lifa. „Ég er með þetta á mjög stórum skala. Þetta er bara búskapur. Þótt dýrin séu mér ekki eins og gæludýr þá þekki ég hvert hross ansi vel en vissulega þykir manni misjafnt um þau. Þær hryssur sem ég hef sjálf tamið, sýnt og rækt- að eru í ákveðnu uppáhaldi og minn uppáhaldshestur er 18 vetra gömul hryssa sem heitir Kráka. Ég tamdi hana og sýndi hana sjálf í fyrstu verð- laun. Þetta er okkar besta og flott- asta hryssa,“ segir hún og bætir við að geðslagið og útlitið skipti máli. „Við viljum kraft, áræðni og yfirveg- un. Svo verða þeir að vera reistir, með langan og hringaðan háls, háfættir og með mikið fax.“ Svanhildur segir engan skilja í þessum hestaáhuga hennar. „ Ég er fædd í Reykjavík og það voru aldrei neinir hestar í minni fjölskyldu. Samt var ég alltaf alveg vitlaus í hesta. Þetta var bara vesen. Ég endaði á því að kaupa mér hest fyrir fermingarpen- ingana. Mamma og pabbi voru skít- hrædd um að sitja uppi með hestinn þegar ég nennti þessu ekki lengur. En bakterían hefur hins vegar bara vax- ið,“ segir Svanhildur brosandi að lok- um. indiana@dv.is n Svanhildur Hall hefur fylgst með mörgum hryssum kasta Vitlaus í hesta Spæta Hryssan Spæta frá Hólum komin að því að kasta. Á leið í heiminn Litla folaldið er á leiðinni í heiminn. Snilld Folaldið Snilld er undan Kveik frá Miðsitju. Fallegt Litla folaldið hlaut nafnið Snilld. Komið á fætur Folaldið var komið á fætur stuttu eftir að það kom í heiminn. Móðurást Spæta sleikir nýfædda folaldið sitt. Viltu léttast? Drekktu vatn Þarftu að losna við aukakíló. Þá er gott ráð að drekka glas af vatni fyr- ir hverja máltíð. Helst hálfan lítra. Þeir sem venja sig á þetta innbyrða, sam- kvæmt rannsóknum, 13–75 kalorí- um minna í hverri máltíð. Það hljómar kannski of lítið til að gera veður út af en ef þú inn- byrðir 100 kaloríum meira en þú þarft þá bætir þú á þig 5 kílóum á einu ári. Þetta eru 100 kaloríur: 1. Einn banani 2. Ein lítil dós af kók 3. Eitt glas af rauðvíni Heimild: balance og levebroedskuren.dk Banvænt framhjáhald Getur framhjáhald verið banvænt? Ný rannsókn háskólans í Flórens gefur að minnsta kosti til kynna að karlmenn sem halda framhjá eiginkonu sinni eigi frekar á hættu að fá hjartaáfall en aðrir. Þau hjartaáföll sem tengjast kynlífi beint og eiga sér stað í miðri kynlífsathöfn eru einnig mun líklegri til að henda í framhjáhaldi en í kynlífi með maka. Hamingjusamir ungling- ar líklegri til að skilja Nýleg rannsókn Cambridge-há- skóla leiddi nokkuð óvænt í ljós. Unglingar sem eru hamingjusamir á þeim umbrotatímum sem ung- lingsárin geta verið eru líklegri til að skilja við maka sinn seinna meir. Vísindamenn notuðu gögn úr breskri rannsókn á hamingju og líðan unglinga árið 1946 og tóku stöðuna í nútímanum og í ljós kom að því hamingjusamari sem þessir unglingar voru því meiri voru lík- urnar á að þeir hefðu skilið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.