Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2012, Qupperneq 72
Eina með
öllu, takk!
Kom hjólandi
til bjargar
n Evrópusérfræðingurinn Baldur
Þórhallsson tók sæti á Alþingi í vik-
unni sem varamaður Jóhönnu Sig-
urðardóttur forsætisráðherra. Athygli
vakti þegar Baldur hjólaði í vinn-
una fyrsta daginn sinn á Alþingi og
ekki var að sjá annað en hann væri
spenntur fyrir nýja starfinu, þó það
væri aðeins tímabundið. Hann fékk
svo að greiða atkvæði í máli sem
hann hefur líklega einna mestan
áhuga á, aðildarviðræðum Íslands
að Evrópusambandinu. Enda var
hann fljótur að setja inn færslu á
Facebook þar sem hann fagnaði
atkvæðagreiðslunni eftir að tillaga
um þjóðaratkvæða-
greiðslu um að
hætta viðræðun-
um var felld. Ekki
er hægt að gera
ráð fyrir
öðru en
að vikan
hafi verið
Baldri
góð.
Forsetinn á
Fabrikkunni
n Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, gerði sér dagamun ásamt
eiginkonu sinni Dorrit Moussaieff,
Tinnu dóttur sinni, barnabörnum
og fleirum á Hamborgarafabrikk-
unni á miðvikudagskvöld. Forset-
anum stóð til boða að panta sam-
nefnda máltíð af matseðlinum en
engum sögum fer af
því hvað varð fyrir
valinu hjá honum.
Forsetinn og föru-
neyti hans sátu dá-
góða stund í góðu
yfirlæti á staðnum
en það vakti athygli
viðstaddra að á
meðan mátti
forsetabílstjór-
inn Einar Sigur-
jónsson bíða
með bílinn
kláran fyrir
utan veit-
ingastað-
inn – von-
andi ekki
svangur.
Blása í gamlar
glæður
n Hljómsveitin Sóldögg kemur
fram á Bestu útihátíðinni í ár en
bandið var mjög vinsælt á tíunda
áratugnum. Besta útihátíðin verður
haldin í þriðja sinn í ár en í fyrra
kom hljómsveitin Quarashi fram á
hátíðinni en hún hafði ekki spilað
saman í nokkur ár. Skipuleggjendur
hátíðarinnar virðast leggja tölu-
vert upp úr því að koma gömlum
hljómsveitum saman en hljóm-
sveitin 200.000 naglbítar hefur líka
boðað komu sína á hátíðina og auk
þess hafa skipuleggjendur boðað að
önnur fræg hljómsveit muni koma
fram á hátíðinni.
Þ
að vantaði bara svona stað
hér, góðan skyndibita,“ seg-
ir Friðrik Þorbergsson, einn
þriggja Íslendinga sem opnað
hafa pylsubar í Pattaya í Taílandi. Á
barnum eru seldar pylsur að íslensk-
um sið ásamt drykkjum. Meðeig-
endur Friðriks að staðnum eru þeir
Sigurður Ingi Lúðvíksson og Valgeir
Blöndal en þeir hafa allir búið meira
eða minna í Taílandi undanfarin ár
og því vel kunnugir á þeim slóðum.
Pylsurnar segir hann vera að ís-
lenskum sið. „Þetta er svona íslenska
módelið,“ segir hann en allt hráefni
fá þeir þó úti nema sinnep og remúl-
aði sem kemur frá Danmörku. „Þetta
er mjög líkt íslensku pylsunum. Við
látum baka brauðið fyrir okkur hér
og fundum svo pylsur sem eru mjög
svipaðar þeim íslensku.“
Pylsubarinn er staðsettur í miðbæ
Pattaya og Friðrik segir heimamenn
jafnt sem ferðamenn taka vel í pyls-
urnar. „Hér er mikið af útlendingum,
Bretum og Þjóðverjum, og svo kem-
ur mér á óvart hvað Taílendingarn-
ir eru sólgnir í pylsurnar, hvað þeim
finnst þetta gott.“
Á pylsubarnum er líka sjónvarps-
tæki og þar verða beinar útsending-
ar. „Við erum með þrjá stóra skjái
og erum með íþróttarásir þannig að
hér er hægt að fylgjast með íþrótta-
viðburðum. Svo ætlum við að sýna
Eurovision um helgina,“ segir hann.
Friðrik segir þá félagana ekki hafa
tekið ákvörðun um það hvort þeir
opni fleiri pylsubari á svæðinu. „Það
kemur bara í ljós, tíminn leiðir það í
ljós hvort við opnum fleiri.“
Taílendingar sólgnir í pylsur
n Selja pylsur að íslenskum sið í Taílandi
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 25.–27. Maí 2012 60. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Á pylsubarnum Friðrik á pylsubarnum.
Hann segir það hafa komið á óvart hvað
Taílendingar eru sólgnir í pylsur.