Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Qupperneq 7

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Qupperneq 7
ÞJÓÐARAUÐUR ÍSLENDINGA að leitað hefur verið eftir upplýsingum um eignaflokka tiltekið ár, venjulega 1957, og síð- an reiknað verðmæti hvers flokks önnur ár, samkvæmt þeim upplýsingum, sem liggja fyr- ir í bankanum um fjármunamyndun á tímabil- inu 1945—1957 og þá tekið tillit til afskrifta eins og hver einstök undirtafla ber með sér. Allar tölur eru færðar til verðlags 1954 sam- kvæmt vísitölum, svo um sambærilegt verð- lag sé að ræða. Með þessu móti hafa verið byggðar upp talnaraðir fyrir öll árin 1945— 1957 um verðmæti einstakra fjármunaflokka og þjóðarauðsins alls, en á hinn bóginn eru ekki, eins og áður er nefnt, fyrir hendi upp- lýsingar um eignaraðild í flestum flokkunum nema eitt ár, árið 1957. Allar reglulegar afskriftir notaðar í þessari rannsókn eru reiknaðar sem ákveðin hundraðs- tala af virði eigna í hverjum flokki um næst- liðin áramót, en ekki af upphaflegu virði þeirra, svo sem venjulegast er. Hin notaða af- skriftaregla, regla afskrifta af eftirstöðvavirði, er í rauninni hin eina nothæfa í verki sem þessu, þar sem upplýsingar um aldurskiptingu fjármunanna liggja ekki fyrir eða eru óhæfi- lega seinunnar. En jafnframt má hiklaust halda því fram, að sú regla nái tilgangi afskrifta í efnahagslegum skilningi betur en nokkur önn- ur einföld regla. Upphæð afskrifta hvers fjár- munar er þá hæst fyrst og lækkar ár frá ári í sama mæli og eftirstöðvar verðmætisins. Þetta vegur á móti hækkandi viðhaldskostnaði og öðrum atriðum, er rýra afköst og arðgjöf með aldri. Hreinn afrakstur eignar, þannig reiknaður, ætti því ár frá ári að standa í mjög svipuðu hlutfalli við virði eignarinnar, afskrif- að með tilsvarandi hætti. En hlutverk afskrifta er að jafna kostnaði slits og úreldingar niður á árin sem næst þeirri meginreglu. Virði fjármunanna, þannig afskrifað, er ekki að sama skapi réttur mælikvarði á verga (brúttó) framleiðsluafkastagetu þeirra, svo sem auðséð má vera af einstökum liðum yfirlits- töflurnar t. d. af flutningatækjum. Tæki geta 2 haldið vergri afkastagetu sinni næstum óbreyttri meðan þau eru í notkun, þótt síðast séu þau orðin verðlaus sökum slits og úreldingar og skili engum hreinum arði. Sá annmarki fylgir þó aðferðinni, að seint gengur að hreinsa upp síðustu eftirstöðvar verðmætisins, og strangt tekið er aldrei af- skrifað til fulls. Við þessu má þó sjá með aukaafskriftum, er miðist við að hreinsa út hæfilega gamla fjármuni í hinum einstöku flokkum. Timabil það, sem skýrslurnar ná yfir, er ekki svo langt, að slíkar aðgerðir séu tíma- bærar að þessu sinni. Sjálfar afskriftaprósenturnar eru ákveðnar með gaumgæfilegri yfirvegun um eðlilega og venjulega endingu fjármuna í hverjum flokki, en ekki með beinni könnun á raunverulegri endingu. Til þess að ákvarða endinguna af nokkru öryggi, þurfa að liggja fyrir tvær sam- bærilegar virðingar þjóðarauðsins, en milli þeirra nokkuð langt árabil, 10—12 ár, sem sam- hangandi fjármunamyndunarskýrslur ná yfir. Þessum skilyrðum er enn ekki fullnægt. Til flestra nota henta upplýsingar um þjóð- arauðinn reiknaðan frá ári til árs eftir fösturn verðum. Þannig fæst samanburður milli ára á raunverulegri stærð hans, þ. e. raunverulegu magni fjármunanna, vöxtur hans í hundraðs- tölum af eigin stærð og hlutföll miðað við talnaraðir þjóðarframleiðslu, reiknaðar á föstu verðlagi sama árs. Komið getur þó fyrir, að þörf sé fyrir tölur um þjóðarauðinn reiknaðan eftir verðlagi hvers árs um sig. Þetta á einkum við um samanburð við aðrar stærðir, er liggja fyrir, metnar eftir verðum hvers árs, en sömu- leiðis eiga þær tölur bezt við, ef óskað er upp- lýsinga um hlutfallslega skiptingu í fjármuna- flokka, eins og virði þeirra horfði við þau ár, sem um er fjallað, þ. e. reiknað eftir verðhlut- föllum eins og þau voru hvert ár um sig. Til þess að fullnægja þess háttar þörfum er hér að auki birt yfirlitstafla um þjóðarauðinn á verðlagi hvers árs um sig. Flestir liðir töfl- unnar eru reiknaðir eftir sömu liðum í yfirlits- 5
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.