Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Page 21

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Page 21
ÞJÓÐARAUÐUR ÍSLENDINGA aðildar að fjármunaflokkunum. Niðurstöðurnar koma fram í töflu I hér á eftir. Samkvæmt yfirlitstöflunni um þjóðarauðinn er heildarverðmæti fiskiskipaflotans í árslok 1957, reiknað á verðlagi 1954, talið 590 m. kr. Skiptingu eignaraðildar varð hins vegar að miða við vátryggingarvirði skipanna í árslok 1957. Samtala þess virðis, færðs til verðlags ársins 1954 samkvæmt reglum tryggingafélag- anna, reyndist þó aðeins 547 m. kr. Munurinn skýrist af því, að tölur bankans byggjast ekki á tryggingarvirði, heldur á upphaflegu kaup- virði, færðu eftir sérstökum vísitölum til 1954- verðlags, með viðaukum fyrir endurbótum og frádrætti vegna fyrninga (sbr. 3. hefti þessa rits). Samábyrgð íslands á fiskiskipum viðhef- ur svipaðar aðferðir. En skip yfir 100 rúm- lestum eru í frjálsri tryggingu og getur eitt- hvert vanmat þeirra til tryggingar verið senni- legust skýring þessa misræmis. Eignaraðild að fiskiskipunum í heild og einstökum undirflokk- um er látin fylgja sömu hlutfallslegri skiptingu og kemur fram í tilsvarandi flokkun eftir tryggingarverðmæti. Kemur þessi skipting fram í töflu II. Auk þessa hefur fiskiskipaeign hlutafélag- anna verið skipt á hina aðilana eftir hlutfalls- legri hlutaeign þeirra. Kemur þá í ljós, að hlutur einstaklinga er rúm 94% þessa verðmæt- is, sem reiknað er hlutafélögunum. Illutdeild hinna fjögurra eigendaflokka í þessum eignum hefur verið bætt við beina aðild þeirra, og eru niðurstöðurnar sýndar í töflu III. Samhengið við töflu II. kemur fram í eftirfarandi yfirliti: Eignaraðild að tiskiskipailotanum i árslok 1957 Milljónir króna Verðlag 1954 1) Einslaklingar og sam- Bein aðild O S a 1 «D .O' ^ ’5J -G Alls bein og óbein aðild eignarfélög 164 253 417 2) Samvinnufélög 6 6 12 3) Bæjar- og sveitarfélög 136 11 147 4) Ríki og ríkisstofnanir 14 — 14 Alls 1— 4: 320 270 590 Eignaraðild að fjármunum iðnaðarins er metin í aðalatriðum eftir hlutfallslegri skipt- ingu í óbirtri úrvinnslu iðnaðarskýrslna hag- stofunnar fyrir árið 1953. Aðildarskiptingin er sýnd í töflu IV, skipt á fimm iðnaðargreinar. Aðild að áburðarverksmiðju og sementsverk- smiðju er reiknuð sérstaklega, en hlutfallsleg skipting hinna þriggja greinanna miðast við skiptinguna í árslok 1953 með lítils háttar breytingum, sem stafa af annarri skiptingu fjármunamyndunarinnar 1954—1957 á undir- greinar. Eignaraðild að flutningatækjum, öðrum en flutningabifreiðum, er skipt eftir hlutfallslegri skiptingu vátryggingarupphæða í hverjum fjármunaflokki. Talsverður munur er á milli tryggingarupphæðanna og þeirra matsupp- hæða, sem notaðar eru í þessum skýrslum. Tryggingarvirði kaupskipa reynist 17% hærra, annarra skipa 13% hærra og flugvéla 70% hærra en tilsvarandi matsupphæðir reiknaðar á veg- um bankans. Virðingarmismunur skipanna vekur enga furðu, þar sem tryggingarupphæð- irnar eru venjulega látnar standa óbreyttar í erlendum gjaldeyri um árabil. Verður að telja matsreglur bankans nákvæmari að því er þau varðar. Hins vegar gefur matsmunur flugvél- anna tilefni til endurskoðunar á matsreglum bankans, en því verður ekki við komið að þessu sinni. Flutningabifreiðir eru allar taldar til eign- ar einstaklinga og sameignarfélaga. Þetta þýð- ir þó ekki annað en það, að engar aðgengileg- ar heimildir liggja fyrir um skiptinguna. En vegna hins mikla fjölda vörubifreiða í eigu einstaklinga, þykir réttast að láta flokkinn all- an auka gildi einstaklingseignar í samanburð- inum. Um hina fjóra fjármunaflokkana er fátt eitt fram að taka. Skipting verzlunarbygginga o. fl. er áætluð eftir fremur óáreiðanlegum heim- ildum, en langmest af fjármunum hinna flokk- anna er í opinberri eign. 19

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.