Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Page 29

Úr þjóðarbúskapnum - 01.12.1961, Page 29
RANNSÓKN Á NEYZLU EINSTAKLINGA Á VÖRUM OG ÞJÓNUSTU landi þykir ekki fært að áætla með þeim hætti. 2) Sjúkra- og ellitryggingar. í löndum, þar sem sjúkra- og ellitrygging- ar eru lögboðnar, er venja að fara með ið- gjöldin á sama hátt og beina skatta. Greiðsla hins opinbera vegna lyfjakaupa o. fl. er því þar talin vera tilfærsla frá hinu opinbera til einkaaðila. Þó að sjúkra- og ellitryggingar séu lögboðnar á Islandi eru iðgjöld einstaklinga liér talin til neyzlu, einnig beinar greiðslur einstaklinga til lækna og helmingur lyfjakostnaðar. Sjá nán- ar í 9. kafla. B) Hina áætluðu neyzlu einstaklinga er tæplega hægt að fella inn í heildarkerfi þjóð- hagsreikninga nema með samræmingu við aðra neyzlu- eða tekju-þætti kerfisins. En þar sem meðfylgjandi áætlun um neyzluna má teljast nær sanni, ætti hún að gefa nokkurn veginn til kynna hve mikilla leiðréttinga er þörf á útreikningi þjóðarteknanna. Utgjöld einstaklinga vegna matvæla 1957 og 1958. (Liður 1, OEEC). Matvæli eru stærsti útgjaldaliðurinn í vísi- tölu framfærslukostnaðar. I vísitölu fram- færslukostnaðar frá marz 1950 voru matvæli 46.5 % heildarútgjaldanna (3). I hinni nýju vísi- tölu eru matvæli 38.2% heildarútgjaldanna í grundvallarmánuðinum marz 1959. Arskostn- aður matvæla fyrir vísitölufjölskylduna 4.24 einstaklinga, var í marz 1959 kr. 23 203.39. Miðað við 1957 verðlag námu matvælaútgjöld- in kr. 22 915.67 og 1958 kr. 24 625.76. Aætlaður meðalmannfjöldi þjóðarinnar var 165 110 árið 1957 og 168 770 árið 1959. Væri matarneyzla þjóðarinnar reiknuð einfaldlega eftir meðaltali grundvallarins á einstakling, mundu fást upphæðir 892 mkr árið 1957 og 980 mkr árið 1958. Hins vegar hafa mann- fjöldatölurnar verið umreiknaðar til matar- neyzlueininga. Einingin er jafngildi karlmanns á aldrinum 16—69 ára. Börn 0—7 ára teljast 0.35 einingar hvert, en 8—15 ára 0.75 eining- ar, kvenfólk 16—69 ára reiknast 0.83 eining- ar, en eldra fólk, 70 ára og eldra, 0.75 eining- ar. Meðalfjölskylda búreikninganna, 4.24 ein- staklingar, jafngildir samkvæmt þessu 3.02 matarneyzlueiningum (2). Meðalmannfjöldi hvors árs um sig, reiknaður til matarneyzlu- eininga samkvæmt aldursskiptingunni, var 126 721 einingar 1957, en 129 439 einingar 1958. Matvælaútgjöld vegna hverrar matar- neyzlueiningar hafa, samkvæmt ofangreindum umreikningi vísitölugrundvallarins, numið kr. 7 587.97 árið 1957 og kr. 8 154.22 árið 1958. Matvælaneyzla allrar þjóðarinnar, reiknuð samkvæmt þessu, mundi hafa numið 962 mkr og 1 055 mkr umrædd ár. Eftirfarandi yfirlitstafla (tafla 1) sýnir niður- stöður útreiknings matvara, er voru fáanlegar til neyzlu, eða raunverulega neytt, árin 1957 og 1958. Hægt cr að skipta matvörunum í fjóra flokka: a) Innfluttar matvörur, óbreyttar til neyzlu; b) Innfluttar matvörur, til frekari vinnslu; c) Innlendar matvörur, til neyzlu í frum- ástandi; d) Innlendar matvörur, til neyzlu eftir nokkra vinnslu. Verzlunarskýrslur Hagstofunnar eru heim- ildir um brúttómagn og c.i.f.-verðmæti inn- fluttra matvara (4). Þyngd umbúða var dreg- in frá í magni, þar sem það var hægt. Heild- söluverð fengust upplýst af ýmsum innflutn- ingsfyrirtækjum. Um smásöluverð var að nokkru leyti stuðst við Hagtíðindi (5) og að nokkru við upplýsingar frá smásöluverzlun- um, en einnig voru þau áætluð með verð- reikningi samkvæmt lögum og reglugerðum og í samráði við skrifstofu verðlagsstjóra (6). Magn innlendra matvæla var fengið úr land-. búnaðarskýrslum Hagstofunnar til Matvæla- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, Árbók land- 27

x

Úr þjóðarbúskapnum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úr þjóðarbúskapnum
https://timarit.is/publication/1134

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.